Víkurfréttir - 06.09.1984, Qupperneq 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. september 1984 11
leggja ökutæki
Þarna hefur vöruflutningabifreið verið lagt upp á gangstétt
og lokað henni algerlega. Hvers á t.d. kona með barna-
vagn að gjalda, að þurfa að fara út á mestu umferðargötu
bæjarins, til að komast leiðar sinnar?
Þarna er bifreiðum lagt þannig, að torvelt er fyrir ökumann
vöruflutningabifreiðar að komast leiðar sinnar.
Bláa lónið:
Skorað á
Hitaveituna
að koma upp
baðaðstöðu
Á fundi stjórnar Sam-
bands sveitarfélaga á Suð-
urnesjumvar fyrir nokkru
rædd baðaðstaða við Bláa
lónið og kom fram að menn
telja hagsmunaaðila ekki
hafa sýnt þessu máli nægi-
legan áhuga að svo komnu
máli.
Samþykkti stjórn SSS að
skora á stjórn Hitaveitu Suð-
urnesja að hún hafi forgöngu
um að koma nú þegar upp
viðunandi baðaðstöðu og eft-
irliti við Bláa lónið. - opj.
Verður nafni
Sjúkrahússins
breytt?
Á aðalfundi Sjúkrahúss-
ins sem haldinn var nýlega,
benti Áki Granz á að
tímabært væri að skipta um
nafn á Sjúkrahúsi Keflavíkur-
læknishéraðs og Heilsu-
gæslustöð Suðurnesja og
gefa þeim eitt nafn. Áður hef-
ur Kristján Sigurðsson flutt
tillögu um nafnbreytingu á
Sjúkrahúsinu, þ.e. að það
verði nefnt Sjúkrahús Suður-
neja, og þannig tengt Suður-
nesjum eins og heilsugæsl-
an. - epj.
Enn brotist inn
í Bókasafnið
Sl. fimmtudag var brotist
inn í Bókasafn Keflavíkur við
Mánagötu. Er þetta annað
innbrotið á sama stað á einni
viku. Var eins og í því fyrra
litlu stolið, enda er þarna lítið
sem ekkert að hafa. - epj.
Kreditkortin
verða áfram í
sérverslunum
Kaupfélagsins
Sú missögn var í síðasta
tbl. varðandi uppsögn fjög-
urra stórverlslana á notkun
kreditkorta, að sagt var að
Kaupfélag Suðurnesja myndi
hætta móttöku þeirra í öllum
sínum verslunum. Uppsögn
þessi gildir aðeins í matvöru-
verslunum félagsins. Sér-
verslanir félagsins munu
áfram taka á móti kredit-
kortum, s.s. Járn & Skip,
vefnaðarvöruverslunin og
Vinnufatabúðin. Kortin munu
þó ekki gilda í Samkaup þó
verið sé að að kaupa sérvör-
ur, þar sem sú verslun fylgir
sömu reglum og aðrir stór-
markaðir. - epj.
Skrifstofustarf
Óskum að ráða starfsmann til almennra
skrifstofustarfa. Skriflegar umsóknir send-
ist undirrituðum fyrir 14, september n.k.
Lögmenn
Garðar Garðarsson
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Pósthólf 16, Hafnargötu 31, Keflavík
Sími 1733 - 1723
Tónlistarskóli
Keflavíkur
Skemmdir á
sumarhúsi
á Ströndinni
I síðustu viku voru unnar
skemmdir á sumarhúsi inni á
Vatnsleysuströnd. Var rúða
brotin, grindverk skemmt,
blóm og kartöflugrös rifin
upp. Er málið upplýst og eru
skaðvaldarnir taldir vera 4
piltar. - epj.
Innritun fer fram í allar deildir skólans á
mánudögum, miðvikudögum og föstudög-
um milli kl. 14.30 og 17.
Vegna takmörkunar á fjölda nemenda er
nauðsynlegt að þeir nemendur sem sóttu
um skólavist í vor staðfesti umsóknir sínar
og gangi frá greiðslufyrirkomulagi skóla-
gjalds.
Skólasetning verður föstudaginn 14. sept.
n.k. kl. 17.30.
Skólastjóri
KERASTASE-línan er komin