Víkurfréttir - 06.09.1984, Side 12
12 Fimmtudagur 6. september 1984
VÍKUR-fréttir
Auglýsingasíminn er 1717
NJARÐVÍK
Aðstoðar-
maður bygg-
ingafulltrúa
Starf aðstoðarmanns byggingafulltrúa er
laust til umsóknar.
Um er að ræða hálft starf. Æskilegt að við-
komandi hafi unnið við tækniteiknun.
Nánari upplýsingar gefur byggingafull-
trúi. Umsóknarfrestur er til 30. september
1984.
Bæjarstjóri
Atvinna - Atvinna
Starfsfólk óskast í almennafiskvinnu. Unn-
ið eftir bónuskerfi. Næg vinna framundan.
Upplýsingar í síma 7101.
GARÐSKAGI HF. - GARÐI
Heimir hf.
óskar að ráðastarfsmann til almennraskrif-
stofustarfa sem fyrst.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf sendist í pósthólf 204.
ATVINNA
Skipasmíðastöð Njarðvíkur óskar að ráða
vélvirkja nú þegar. Getum einnig tekið
nema í rennismíði.
Upplýsingar gefur verkstjóri í síma 2844.
Atvinna - Atvinna -
Mikill golfáhugi í Grindavík
Þ-meistar G.G.,
Guömundur Bragason
4. flokkur
Víðis
Suður-
nesja-
meistarar
Strákarnir i 4. flokki Víðis
urðu um helgina Suður-
nesjameistarar í knatt-
spyrnu er þeir unnu UMFG í
úrslitaleik með fimm mörk-
um gegn þremur. Góður
endir á ágætu timabili, en
strákarnir hafa staðið sig
mjög vel í sumar undir
stjórn Jónasar Andrésson-
ar og fóru m.a. til Danmerk-
ur, þar sem þeir tóku þátt í
móti í Hjörring og komust í
undanúrslit í mótinu, sem er
mjög gott miðað við að mót-
herjarnir voru flestir tveim-
ur til þremur árum eldri en
þeir. - bf.
VÍKUR-fréttir
vikulega.
Atvinna
( sumar hefur verið mjög
blómleg starfsemi hjá
Golfklúbbi Grindavíkur
þrátt fyrir vætuna. Félagar
eru orðnir40talsins. Völlur-
inn er orðinn mjög
skemmtilegur og aðeins
lokaátakið eftir í viðgerð
hússins, sem notaö er sem
golfskáli. Uþpgangur
klúbbsins hefur verið mjög
ör á þeim þremur árum sem
hann hefur starfað.
Golfklúbbur Grindavikur
hef ur haldið 19 mót í sumar,
það stærsta var meistara-
mót klúbbsins. Það var
höggleikur með og án for-
gjafar. Meistari án forgjafar
varð Sigurgeir Guðjóns-
son, en með forgjöf Aðal-
geir Jóhannsson.
Niu svokölluð Þ-mót voru
haldin og náðu feðgarnir
Guðmundur Bragason og
Bragi Ingvason bestum ár-
angri. Guðmundur fékk 55
stig og fékk hann vikuferð
til London að launum, sem
klúbburinn hafði safnað
fyrir. Bragi var með 54 stig
og í þriðja sæti varð Jakob
Eyfjörð með 46,5 stig.
Fjögur mót eru eftir af
þessu keppnistímabili. Það
stærsta er svokallað Kóngs-
klapparmót, 29. sept. Þaðer
punktakeppni með 7/8 for-
gjöf. Það verða veitt mjög
vegleg verðlaun á þessu
móti sem fiskvinnslustöðv-
ar í Grindavík hafa gefið,
m.a. Wilson Staff golfsett
módel ’84. - eþg.
1. deild:
Ósanngjarn sigur Þórs
- Sigruðu ÍBK 2:1 í „dómaraleik“
Flestum ber án efa saman
um að sigur Þórs yfir (BK
var í meira lagi ósanngjarn.
Leikurinn fórfram á laugar-
daginn í blíðskaparveðri.
Þórsarar sigruðu 2:1 eftirað
staðan í hálfleik hafði verið
1:1. Keflvíkingar geta svo
sem kennt sjálfum sér um
tapið, því þeir áttu að vera
löngu búnir að gera út um
leikinn. Ekki hjálpaði heldur
dómari leiksins upp á, en
hann kom við sögu í síðara
marki Þórs. Það hefði svo
sem verið hægt að sætta sig
við jafntefli íleik þessum.en
ósigur var fullmikið. Kefl-
víkingar áttu að minnsta
kosti 20 dauðafæri í leikn-
um, en nýttu aðeins eitt.
Það var Óskar Færseth
sem skoraði glæsilega eftir
sendingu frá Ingvari Guð-
munds. Annars var leikur
þessi merkilegur fyrir það
hve mikil tengsl eru á milli
þessara tveggja liða. Óli Þór
Magnússon, fyrrum leik-
maður (BK, leikur nú með
Þór. Helgi Bentsson lék
áður með Þór en nú með
(BK. Þorsteinn Ólafsson,
Þorsteinn Ólafsson,
þjálfari Þórs
er fyrrverandi markvörður
(BK og núverandi þjálfari
Þórs, og bróðir Magnúsar
Garðarssonar leikmanns
(BK, Guðbjörn Garðars-
son, er í knattspyrnuráði
Þórs.
Eftir leikinn hafði Þor-
steinn Ólafsson það á orði
við leikmenn ÍBK, að hann
hefði aldrei unnið jafn
ósanngjarnan sigur yfir
nokkru liði. Má svo sannar-
lega færa þau orð til sanns
vegar. - gæi.
2. deild:
Njarðvíkingar misstu
af lestinni
Okkur vantar fólk til ýmissa starfa í frysti-
hús okkar, s.s. í snyrti- og pökkunarsal,
flökunarsal og móttöku.
Unnið eftir bónuskerfi.
Hafið nú strax samband við verkstjóra á
vinnustað, því að það er mikil vinna fram-
undan. - Verið velkomin.
- við 3:0 tap gegn Skallagrími
Njarðvíkingar riðu ekki
feitum hesti í Borgarnesi
um helgina. Þeir léku þar
gegn heimamönnum og
biðu ósigur 3:0.
Með þessu tapi sínu hafa
Njarðvíkingar misst alla
möguleika á því að ná sæti í
1. deild að ári. Þess má geta
að Njarðvíkingar hafa misst
nokkra af fastamönnum í
liði sínu, þar á meðal Bene-
dikt Hreinsson, Ólaf Björns-
son, Frey Sverrisson og
Björn Ingólfsson. Einhverjir
munu vera að fara utan, en
aðrir eru meiddir. - gæi.
VIKUR
4*00*
HRAÐFRYSTIHÚS KEFLAVÍKUR HF.
eru gefnar út á Suðurnesjum,
skrifaðar fyrir Suðurnesjamenn,
en lesnar af öllum sem komast yfir þær.