Víkurfréttir - 06.09.1984, Side 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. september 1984 15
Video-Bubbi - Video-Bubbi:
Er JR kominn í spilið?
Nú virðist sem nýr fram-
haldsgreinaflokkur sé að
hefja göngu sína hér á síð-
um Víkur-frétta. Mér varð
það á í næst síðasta blaði að
varpa þvi fram, að í stað
samkeppni þá ríkti sam-
trygging hjá videoleigunum
hér í Keflavík. ( þessum
greinarstúf mínum lagði ég
fram nokkrar spurningar og
fór þess einnig á leit við
videoleigu-eigendur, að
þeir kæmu sér saman um
svar við þeim. Ekki varð mér
að ósk minni, þvi ekki kom
sameiginlegt svar, þeirvirð-
ast ekki hafa bein samráð
um neitt nema verðlagn-
inguna. Ég taldi mig hafa
skrifað mjög málefnalega
og taldi því víst að ég fengi
málefnalegt svar, en svo var
ekki. Þess í stað fékk ég
persónulegt skitkast og
fyrirtæki mitt og börn dreg-
in inn í málið.
VIDEO-BUBBI SVARAR
í svari Bubba kemur það
fram, að videoleigu-eigend-
ur hafi komið sér saman um
að samkeppni þeirra eigi
ekki að koma fram í verð-
lagningu, heldureingöngu í
myndaúrvali, og ef það er
ekki samtrygging, þá er hún
ekki til.
Þá kemur Bubbi aðeins
inn á Grágás, en hvað hún
kemur verðlagningu á
videospólum við, veit ég
ekki og mun því ekki ræða
það nánar.
VIDEO-BUBBI OG
MYNDBANDAKERFIN
Video-Bubbi minnist lítil-
lega á myndbandakerfin í
sinni grein, en eins og flest-
um er kunnugt, sem horfa á
video, þá er texti fremst á
flestum ef ekki öllum video-
spólum, sem bannarað þær
séu sýndar í myndbanda-
kerfum. Þetta sýnir það vel
að hann horfir ekki mikið á
þær spólur sem hann er að
leigja. Bágt á ég með að
trúa þvi að Video-Bubbi sé
að játa að hann leigi spólur
til myndbandakerfa og játi
þannig lögbrot á opinber-
um vettvangi.
UM LÉLEGAR OG
GÓÐAR MYNDIR
Video-Bubbi minnistáað
það sé misjafnt hvað
mönnum finnist gott og
lélegt, og er það rétt, því
hugtökin „gott“ og „lélegt"
eru víst nokkuð teygjanleg,
en engu að síður held ég að
Bubbi sé sammála mér í því
að þær myndir sém hér eru
á leigunum séu misgóðar.
Nýjung í hársnyrtivörum
Hárgreiðslustofa Helgu
og Þel-hárhús hafa nú tekið
upp nýjungar í hársnyrti-
vörum. Vörur þessar heita
Kerastase og eru frá
L'ORÉAL í Paris. Hafa þær
reynst mjög vel erlendis,
eins í Reykjavík þar sem
þær hafa verið á boðstólun-
um í 1 ár.
Þetta er því glaðningur
fyrir Suðurnesjamenn, því
vörurnar bjóða upp á margt
sem ekki hefur verið fáan-
legt fyrr. Auk sjampó-teg-
unda fyrir allar tegundir
hárs, gefa KERASTASE
vörurnar möguleika á ná-
kvæmari meðhöndlun hárs-
ins eftir gerðinni sjálfri. Má
m.a. nefna djúpnæringar-
kúr, meðferð til að losna við
flösu og þurrk í hársverði,
sjámpó fyrir þunnt og líf-
Ný stjórn
Sjúkrahússins
1. ágúst sl. tók ný stjórn
við rekstri Sjúkrahússins, en
rekstur þess hefur verið sam-
einaður rekstri Heilsugæslu-
stöðvarinnar. Skiptir stjórn-
in þannig með sér verkum:
Ingólfur Falsson, Keflavík,
formaður; Jón K. Ölafsson,
Sandgerði, varaformaður;
Sigurður Ingvarsson, Garði,
ritari; Elísa B. Magnúsdóttir,
fulltrúi starfsfólks á Sjúkra-
húsinu, og Þórunn Brynjólfs-
dóttir, fulltrúi starfsfólks á
Heilsugæslustöðinni, með-
stjórnendur. - epj.
laust hár þannig að hárið
virðist fyrirferðarmeira og
líflegra, meðferð við hárlosi
og hármaski sem hefur
svipuð áhrif á hárið og húð-
maski hefur á hörundið.
Hárgreiðslustofa Helgu
og Þel-hárhús bjóða alla
Suðurnesjamenn velkomna
og gefa að sjálfsögðu allar
nánari upplýsingar um
KERASTASE.
Fréttatilkynning
DALLAS!!!
Video-Bubbi klingir út
með þvi að ég eigi að fara
upp á Torg og fá mér 45
min. Dallas-spólu á 100 kr.,
og þar virðist hann vera
kominn að kjarna málsins.
Rök Video-Bubba & Co.
fyrir þessari síðustu hækk-
un virðast einfaldlega vera
þau, að fyrst fólk er tilbúið
að greiða 100 kr. fyrir 45
mín. Dallas-spólu, þá sé
það ekki of gott til að greiða
100 kr. fyrir Bubba-spólur.
Nú bíður maður bara
spenntur eftir því að Video-
Bubbi & Co. heyri sögu um
mann sem er tilbúinn að
borga 200 kr. fyrir einhverja
spólu, þá veit maður að þeir
samkeppnisaðilar verða
ekki lengi að koma til móts
við þarfir fólksins fyrir hærri
leigu, og slái til og hækki.
Já, það er ekki einleikið
með hann JR, það er sama
hvar hann birtist, alls staðar
vandræði í kjölfarið.
LOKAORÐ (f bili???)
Ekki hef ég nokkra löng-
un til að blanda fjölskyldu
Video-Bubba í þessi skrif,
en ef hann langar að skrif-
ast á við börn mín, þá heita
þau Þórdís, Vikar, Birta og
Arnar.
Kveðja.
Sig. R. Vik.
Tækni-
teiknarar
Starf tækniteiknara á Tæknideild Keflavík-
urbæjar er laust til umsóknar.
Umsóknum skal skilaö til bæjarritara,
Hafnargötu 12, eigi síðar en 10. sept. n.k.
Bæjartæknifræðingur
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
Vr j ^ LILJA BRAGA
HAFNARGÖTU 34 - KEFLAVÍK
Öll
almenn
hársnyrting.
OPIÐ
mánud.-föstud.
kl. 9 - 17.
Opið í hádeginu
og á laugardögum.
TÍMAPANTANIR í SÍMA 4585.
SUÐURNESJAMENN!
Smíðum innréttingar í eldhús, böð og svefnherbergi. - Smíðum
einnig sólbekki, útihurðir og margt fleira. - Önnumst alls konar
byggingaframkvæmdir og viðgerðir. - Seljum saum og allt til
glerísetningar. Höfum umboð fyrir GLERBORG.
Teiknum. - Gerum tilboð - Verið velkomin.
HÚSABYGGING HF.
TRÉSMIÐJA - SÍMI 7140
ERUM FLUTTIR AÐ IÐNGÖRÐUM 9, GARÐI
Líkamsþjálfun - Leikfimi - Jassballet
NJARÐVÍK:
Nýtt leikfiminámskeiö hefst 11. september i fþróttahúsi Njarövíkur.
Morguntímar - Dagtímar - Kvöldtímar - Tvisvar í viku.
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir dömur á öllum aldri. - Byrjendur
og framhaldsflokkar. - Topp aðstaða. - Topp kennsla.
„Lausir" tímar fyrir vaktavinnufólk.
KEFLAVÍK.
Nýtt leikfiminámskeið hefst 17. september í Barnaskóla Keflavikur.
Kvöldtímar tvisvar í viku. - Leikfimi fyrir dömur á öllum aldri.
Byrjendaflokkar. - Rólegar æfingar við allra hæfi.
Framhaldsflokkar. Strangir tímar.
Drifðu þig í fjörið, þú finnur flokk við þitt hæfi.
Upplýsingar og innritun i sima 6062.
JASSBALLETT í íþróttahúsi Njarövíkur
12 vikna námskeið fyrirdömurog herra, 13ára og eldri.Tímartvisvar
í viku. Góð aðstaða með speglum. Kennsla hefst 11. september.
Innritun í sima 6062.
Birna Magnúsdóttir