Víkurfréttir - 06.09.1984, Qupperneq 16
16 Fimmtudagur 6. september 1984
VÍKUR-fréttir
4000 eintök vikulega.
mun
Frá Tónlistarskóla
Sandgerðis
Innritun ferfram áskrifstofu Miöneshrepps
Tjarnargötu 4, daglega til 7. september.
300 kr. staðfestingargjald greiðist við inn-
ritun.
Þeir sem enn eiga ógreidd skólagjöld frá
síðasta vetri, vinsamlega greiði þau nú
þegar.
Skólastjóri
Tónlistarnám stuðlarað
stundvísi og löghlýðni
Tónlistarskóli
Njarðvíkur
Innritun í allar deildir skólans fer fram dag-
ana 10., 11. og 12. september n.k. frá kl.
14-18, að Þórustíg 7, Njarðvík.
Þeir nemendur Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, sem hyggjast stunda nám í Tónlist-
arskóla Njarðvíkur, afhendi stundatöflu.
Skólastjóri
Hjá Grikkjum til forna var
tónlist talin menntandi og
göfgandi, og nauösynleg
hugarþjálfun öllu mennt-
uðu fólki.
27. starfsárTónlistarskól-
ans í Keflavík er aö hefjast.
Setningarathöfnin fer
fram i skólanum föstudag-
inn 14. september n.k. og
hefst kl. 17.30, þar sem
væntanlegir nemendur eru
beðnir að mæta og hafa
stundaskrár annarra skóla
með sér.
Á Islandi eru starfandi um
60 tónlistarskólar með rúm-
lega 8000 nemendum. Þetta
eru merkilegar tölur í ekki
stærra landi og benda þær
ótvírætt til þess að almenn-
ur áhugi á tónlistarnámi sé
mikill og þörf fyrir þessa
starfsemi. Víða erlendis fer
mest öll undirstöðukennsla
fram í einkatímum og þaðer
varla fyrr en seinna í nám-
inu að tækifæri gefst til að
læra hinar svonefndu
kjarnagreinar, eins og tón-
fræði, hljómfræði o.fl. En
þvi miöur taka sumir nem-
endur þetta ekki nógu al-
varlega.
Hjá Grikkjum til forna var
„tónfræði" jafn mikilvæg og
stærðfræði og bar í sér hug-
myndir er samsvöruðu
grunnformum allífsins,
enda sagði Plato: ,,Svo sem
augu okkar eru ætluð
SUÐURNESJAMENN!
NYJUNG - NÝJUNG - NÝJUNG - NÝJUNG
Tökum í umboðssölu ýmis tæki, t.d. myndsegulbönd, hljóm-
tæki, tölvur, tölvuforrit, myndavélar, videospólur o.fl.
Nú þarf ekki lengur að standa í auglýsingastússi til að selja eða
kaupa þessa hluti. Þið einfaldlega lítið inn
eða hafið samband í síma 3663.
SPORTVEIÐIMAÐURINN
SPORTVÖRU- OG UMBOÐSSALA
Hafnargötu 26 - Keflavík
skölans
Skólatöskur, mikið úrval
Ritföng
Pennaveski, margar gerðir
Ritvélar - Vasatölvur
Nýjar vörur daglega.
Bóka- og ritfangaverslunin
NESBÓK
Hafnargötu 54 - Keflavfk - Simi 3066
stjörnufræði, eru eyru
okkar ætluð tónlist". Þeir
iðkuðu og hlustuðu á „rétta
tónlist" sem þeir kölluðu
„fína" iðju, en með vaxandi
vinsældum skemmtitónlist-
ar síðar varð „ófínt" að
stunda hljóðfæraleik.
( skólanum í vetur verður
kennt á öll algengustu
hljóðfæri, að ógleymdri
harmóniku, en því miður
verður vegna kennara-
skorts ekki enn hægt að
kenna söng í vetur. Nokkrar
breytingar eru frá ári til árs á
kennaraliðinu, sem er mjög
eðlilegt. Við höfum verið
svo lánsamir að fá aftur að
njóta krafta Þórarins Sigur-
bergssonar, gitarkennara.
Hann kenndi í skólanum frá
1978-1980, en hefur síðan
dvalið á Spáni undanfarin
fjögur ár við framhalds-
nám. Kennari hans í klass-
ískum gítarleik var hinn al-
kunni spænski gítarsnill-
ingur José Luis Gonsalez í
borginni Alcoy, þar sem
Þórarinn lauk prófi í júni sl.
Undanfarin ár hefur
áhugi eldra fólks á tónlistar-
námi farið mjög vaxandi og
vonum við í skólanum að
svo verði einnig nú í ár.
Þetta fólk stundar námið
ánægjunnar vegna og þarf
ekki að gangast undir próf
frekar en óskað er.
Fjörlegt líf var í forskóla-
deildunum þremur sl. vetur
og einnig í Unglingalúðra-
NL'
*
%
m
sveit skólans, sem sá um
mestan hluta tónlistar við
flest hátíðarhöld bæjarins.
Nemendatónleikar verða
með svipuðu sniði og að
undanförnu og vonum við
kennarar að foreldrar og
vandamenn mæti á þessa
tónleika og fylgist með
námsárangri barna sinna.
Ennfremur verður spítal-
inn og elliheimilið sótt heim
og leika nemendur skólans
fyrir vistfólk þar.
Sinfóni'uhljómsveit ís-
lands er væntanleg hingað
til Keflavíkur og heldur tón-
leika i íþróttahúsinu fimmtu
daginn 20. sept. n.k. Ein-
söngvari á þessum tónleik-
um verður Siglinde Kah-
mann, óperusöngkona.
Innheimta skólagjalda
verður með sama hætti og
að undanförnu.
Að lokum langar mig til
að vitna í orð Jesúítaprests-
ins Athanansius Kirchner,
sem uppi vará 17. öld. Hann
hélt því fram, að með tón-
listariðkun opnuðust loft-
holur likamans og að hættu-
legir andar leituðu út í
gegnum þær. Enda þóttvið
brosum að þessari kenn-
ingu, þá verða samt margir
áskynja þeirrar vellíðunar
sem tónlistariðkun færir
þeim.
Megi tónlistarlífið dafna -
loftholur líkamans opnast, -
og illir andar vera víðs fjarri.
Herbert H. Ágústsson,
skólastjóri.
X' &A
Þórarinn Sigurbergsson, gitarkennari
Umboðsmaður í Grindavík
Frá því skipuleg dreifing
Víkur-frétta í Grindavík
hófst, hafa viðtökur Grind-
víkinga verið mjög góðar,
enda hefur blaðið klárast á
svipstundu, eins og annars
staðar á Suðurnesjum.
Dreifingu hefur annast
Helga Pétursdóttir, Vestur-
braut 10 í Grindavík, en hún
er umboðsmaður blaösins á
staðnum og muna taka við
auglýsingum og greinum
frá Grindvíkingum, sem
birtast eiga i blaðinu.
Þessa dagana er verið að
ganga frá ráðningu á frétta-
riturum í Grindavík og efla
bönd heimamanna við
blaðið með ýmsu móti. Eru
allir þeir sem áhuga hafa
fyrir að gerast fréttaritarar
eða skriffinnar bæði í
Grindavík og annars staðar
beðnir að hafa samband við
okkur og ræða málin.