Víkurfréttir - 06.09.1984, Page 17
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. september 1984 17
Skýrsla Heilbrigðisfulltrúa Suðurnesja:
Vinsæll á veisluborð-
um gerlavinafélagsins
- Ýidustappan úr Fiskiðjunni olli
ógeði hjá Sandgerðingum
Ein af þeim skýrslum sem
menn bíða oft spenntir eftir
að fá að lesa, er skýrsla
Heilbrigðisfulltrúa Suður-
nesja, Ekki er það vegna
þess hve ítarleg hún er,
heldur fremur vegna þess
orðalags sem hann notar til
að lýsa atburðum.
í síðustu viku barst okkur
í hendur skýrsla hans fyrir
fyrstu þrjá mánuði þessa
árs, og fylgir hún orðrétt hér
á eftir:
„Sú nýbreytni var tekin
upp hjá Heilbrigðiseftirliti
Suðurnesja í byrjun árs, að
öll gjöld af hundum ásvæð-'
inu eru innheimt í einu lagi
með gíró, en þar er um að
ræða leyfis-, hreinsunar- og
tryggingagjöld með gjald-
daga 1. mars. Ætti það að
auðvelda aðilum fram-
kvæmd hundamála nokk-
uð. Heildargjald af hundi
fyrir árið 1984 er kr. 2.400.
Fiskimjölsverksmiðja
Stranda hf. í landi Hafna-
hrepps, hóf tilraunavinnslu
um miðjan febrúar og var
þar um að ræða feit bein.
Þegar fiskifræðilegar stað-
reyndir lágu svo fyrir um
mikla loðnugengd við
gamla landið enn á ný eftir
deyfðarárin tvö, þá bjuggu
útvegsmenn út vorskip sín
til veiða á hinum dýrmæta
fiski, og eftir að hafa hrist úr
honum mesta gullið, verð-
mikil hrognin, var því sem
þá varð eftirekiðtil bræðslu
í þær verksmiðjur allar sem
tekið gátu við hráefni,
þ.á.m. Strandir hf., og
fékkst þar allgóð reynsla á
vantar tilfinnanlega meira
getu og hagkvæmni vinnslu
búnaðar verksmiðjunnar.
Nokkuð bar á að menn
rugluðust í hita leiksins
þegar loðna hrannaðist upp
á vörubílspöllum útgerðar-
manna, og varð sumum það
á að fara skemmstu leið
með hráefnið og hrúguðu
þvi í opnar útiþrær við
gömlu Fiskiðjuna í Keflavík.
Var þarna um bakdyrafram-
kvæmdir að ræða án sam-
ráðs við heilbrigðisnefnd,
sem er umsagnaraðili og
veitir eða synjar um slíkt
geymsluform.
Mikill daunn varð af hrá-
efni þessu þegar geymslu-
tími þess var kominn
nokkuð á annan mánuð.
Sandgerðingar fengu svo
að finna fyrir ógeðinu þegar
brædd var þar ýldustappan
úr Fiskiðjuþrónum.
Slíkur sóðaskapur ætti að
heyra fortíðinni til og getur
ekki orðið um endurtekn-
ingu á þess háttar vinnu-
Gerðaröst, Garði:
Samfelld vinna nær
allan sólarhringinn
að undanförnu
Fleira fólk vantar til starfa
við niðursuðu á rækju
Sl. föstudag heimsótti
blaðamaður Víkur-frétta
rækjuverksmiðjuna Gerða-
röst í Garði, og tók tali
Benedikt Jónsson, en hann
er verksmiðjustjóri fyrir-
tækisins.
Sagði Benedikt að und-
anfarið hefði verið unnið
svo til samfellt allan sólar-
hringinn við niðursuðu á
rækju og hefði svo verið
síðan pessi rækjuvertíð
hófst. Væri útlit fyrir að ver-
tiðin haldi áfram út septem-
ber og jafnvel eitthvað fram
í október. En á þeim tíma
sem ekki er unnið við niður-
suðu á rækju hefur verið
soðin niður þorsklifur. Við
þessi störf vinna um 50
manns hjá fyrirtækinu, og
nú þegar skólarmr byrja
vantar tilfinnanlega meira
starfsfólk.
Eru afköstin um 40 tonn á
viku og er síðan megnið af
þessu selt til Þýskalands og
hluti til Danmerkur. Þá hafa
þeir sent prufur til ítalíu og
Frakklands og hefur gengið
ágætlega að selja rækjuna.
epj.
Benedikt Jónsson, verksmiðjustjóri Gerðarastar, Garði.
brögðum að ræða íframtíð-
inni.
Sundhöll Keflavíkur var
lokað um mánaðamótin
jan. - febr. vegna fram-
kvæmda við endurnýjun
lofts yfir sundlaugarhús-
inu.
Endurbætur voru gerðar
á hundageymslunni að
Vesturbraut 10 í febrúar, en
þær miða að því að auka á
hreinlæti og stuðla að betri
líðan þeirra dýra sem
geymsluna gista.
Matarsýking kom upp á
árshátíð lögreglumanna á
Reykjanesskaganum, sem
haldin var í samkomuhús-
inu Stapa 3. febr. sl., og
urðu almargir gestanna
veikir.
Við rannsókn á mataraf-
gangi af hátíðarborðinu
fannst svonefndur Clostri-
dium perfringens sýkill í
kjötbollum, en sáyrði vænt-
anlega hinn vinsælasti á
veisluborðum gerlavina-
klúbbsins, ef stofnaður
yrði.
Svo ber við að einstakar
lóðir fyrirtækja fást ekki
hreinsaðar þrátt fyrir til-
mæli hei I brigðisyfirvalda,
og getur þá komið til kasta
sveitarstjórna að taka af
skarið og láta framkvæma
lóðarhreinsun á kostnað
eiganda, en samkv. lögum
nr. 50/1981 um hollustu-
hætti og heilbrigðiseftirlit,
er slíkt heimilt.
Nýjasta dæmið um slíka
framkvæmd er frá í mars sl.,
er lóðarhreinsun var gerð
hjá fyrirtæki einu í Keflavík,
en lóð þessi var mikill höf-
uðverkur þeirra sem halda
eiga sómablæ á byggðum
Suðurnesja. Kostnað af
slíkum framkvæmdum má
innheimta með lögtaki ef
með þarf, en lögveð hvílir á
húsi eða lóð í tvö ár eftir að
greiðslu er krafist.
Aðgerðir sem krefjast
átaks verða stundum að
hefjast með hugarfarslegri
snyrtingu viðkomandi aðila
svo að árangur náist.
Fjórar íbúðaskoðanir
voru framkvæmdar á tíma-
bilinu.
Þrettán bréf voru send af
ýmsu tilefni.
Fylgst var með neyslu-
vatni og matvælum.
Njarðvík, 18. júní 1984.
Jóhann Sveinsson
epj.
VÖRULISTI HÚSBYGGJANDANS
Nú bjóðum við eftirtaldar
vörutegundir af lager:
LOFTPLÖTUR undir málningu í
stærðum 58x120 cm, 28x120 cm og
28x250 cm. - Verð frá 190 kr. m2.
VIÐARÞILJUR full-lakkaðar í stærð-
um 28x250 cm og 19x250 cm,
í eftirtöldum viðartegundum:
Furulamel, perutré, antik-eik, brún-eik, beyki,
furu og eik. - Verð frá kr. 390 pr. m2
TRÉ-Í
3 r
TRÉ-J
Ný
>r
TRÉ-)
AXIS
L
l
TRÉ
VEGGKLÆÐNINGAR og
MILLIVEGGIR
undir málningu, í stærðum
38,5x253 cm og 58,5x253 cm.
Verð frá 177 kr. m2.
GRENIPANILL
Parama Pine panill í miklu úrvali.
Verð frá 325 kr. m2
INNIHURÐIR afgreiddar af lager
i eftirtöldum viðartegundum:
Undir málnmgu: antik-eik, hnotulamel, perutré,
brún-eik, furulamel, eik, beyki og ask. - Aðrar
tegundir framleiddar eftir pöntunum.
Verð frá kr. 2.950.
FATASKÁPAR frá Axel Eyjólfssyni
í miklu úrvali.
GREIÐSLUSKILMÁLAR?
Já, við erum sveigjanlegir í samningum.
Allt í húsið í einum pakka.
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.
löavöllum 6 - Keflavík - Simi 3320
Opiö frá kl. 8-17 alla virka daga.
TRÉ-X ER NÝJA VÖRUMERKIÐ OKKAR.