Víkurfréttir - 06.09.1984, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 6. september 1984.
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er aö Hafnargötu 32, II. hæð. - Sími 1717.
SPARISJÓÐURINN
ittiit. i I h|| 1^^^*
Keflavík Njarðvík Garöi
Sími 2800 Sími 3800 Síml 7100
Þroskahjálp á Suðurnesjum:
Nýja skammtíma- og dagvist-
unarheimilið tekið í notkun
Báðum húsum félagsins við Suðurvelli gefið nafnið „Ragnarssel“
Af þessu tilefni barst
Þroskahjálp á Suðurnesjum
fjöldi gjafa, en félagið hefur
Við hátíðlega athöfn und-
ir berum himni var hin nýja
skammtima- og dagvistun
Þroskahjálpar á Suðurnesj-
um, að Suðurvöllum 7 i
Keflavík, tekin formlega í
notkun sl. laugardag. Fjöldi
gesta var við athöfnina,
þ.á.m. Alexander Stefáns-
son félagsmálaráðherra,
þingmenn kjördæmisins og
ýmsir aðrir.
Hið nýja vistheimili er i
200 ferm. húsi frá Húsein-
ingum á Siglufirði og er við
hlið endurhæfingarstöðvar
Þroskahjálpar á Suðurnesj-
um. Við opnunina var báð-
um húsununum gefið sam-
eiginlegt nafn, „Ragnars-
sel", í minningu Ragnars
Ingiþórssonar, sem lést í
fyrravetur. Hann var eins
og kunnugt er sonur hjón-
anna Laufeyjar Jóhannes-
dóttur og Ingaþórs Geirs-
sonar, og var hann skjól-
stæðingur Þroskahjálpar á
Suðurnesjum, sem sér um
rekstur heimilanna, eins og
áður hefur komið fram hér í
blaðinu.
Við athöfnina flutti fé-
lagsmálaráðherra ávarp, en
auk hans töluðu Ellert Ei-
ríksson, formaður ÞS, Ás-
geir Ingimundarson, for-
maður bygginganefndar,
og Hjördís Árnadóttir, for-
stöðumaður vistheimilisins,
og auk þess eftirtaldir gest-
ir: Jón Sævar Alfonsson,
Kjartan Jóhannsson, Ólafur
Erlingsson,
Sigurðsson
Geirsson.
Sigurfinnur
og Ingiþór
ávallt notið mikillar velvild-
ar fjölda aðila, sem stutt
hafa það á ýmsan máta.
í nýja vistheimilinu er
pláss fyrir 5 í skammvistun
og 4 til 8 í dagvistun, allt
eftir aðstæðum hverju
sinni. Mun ríkið og sveitar-
félögin á Suðurnesjum
standa straum af rekstri
þess. - epj.
v/'ó Suðurvelli i Keflavik.
,,Ragnarssel
Fjöldi gesta var viöstaddur athöfnina, sem fór fram undir berum himni.
Lítilli trillu með 2 mönnum bjargað
- Sóttir á lóðsbátnum með aðstoð lögreglu
Um kl. 20 sl. laugardags-
kvöld heyrðist neyðarkall
frá trillu, á almennri kallrás
FR-félaga, um að báturinn
væri bilaður og því á reki út
af Vogavita. Var lögreglan í
Keflavík þegar látin vita og
þar sem ekki fékkst bátur í
Vogum var lóðsbáturinn í
Keflavik fenginn til að fara
hinum nauðstadda bát til
hjálpar. Hélt hann þegar af
stað undir stjórn Auðuns
Karlssonar, en með honum
fór einn lögregluþjónn.
Jafnframt þessu var reynt
að ná sambandi við bátinn,
en það tókst ekki þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. Var þvi
lögreglubíll sendur inn eftir
til að leita uppi bátinn. En
fljótlega beindist grunur að
því að báturinn væri innar á
Vatnsleysuströndinni og
fann lögreglan hann þar
sem hann var nokkuð frá
landi, og gátu þeir sem voru
á bílnum vísað lóðsbátnum
að honum.
Kom þá í Ijós að hér var á
ferðinni lítil trilla sem ber
nafnið Sveinn Jónsson GK
Framh. á 8. siðu
T/b Sveinn Jónsson GK3 kominn heilu og höldnu til Kefla-
vikur.
Lóösbáturinn heldur af stað frá Keflavik með þá Auðun
Karlsson og Val Gunnarsson lögreglumann innanborös, til
hjálpar.
Spurningin:
Hvernig líst þér á
stefnuna í kredit-
kortaviðskiptunum?
Árni Einarsson:
,,Ja, ég veit ekki hvað
skal segja, kaupmenn hafa
líklega rétt fyrir sér, þetta er
viss fjármagnsbinding hjá
Deim“.
Brynjólfur Brynjólfsson:
,,Mér finnst hún vera hálf
vitlaus, þetta eru engin við-
skiþti, sem hægt er að
stoppa svona allt i einu upp
úr þurru“.
Finnur Bergmannsson:
„Þetta er eðlilegt, því
vöruverðið hækkar með
notkun kortanna".
Hafsteinn Emilsson:
,,Á ég að svara því? Sko,
það væri nær að viðskipta-
vinurinn fengi afsláttinn,
þ.e. þeir sem staðgreiða".