Víkurfréttir - 05.09.1985, Page 17
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 5. september 1985 17
Er Keflavíkurflugvöllur
fylki í Bandaríkjunum?
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hefur verið í sviðs-
ljósinu á þessu ári. Ritað, rætt og rifíst hefur verið um
flutninga á vörum til þess, innflutning á kjöti og ýmsu
fleira. Einn helsti ráðamaður þjóðarinnar, Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra, hefur staðið í
ströngu vegna þessa. En það er fleira matur en feitt
kjöt, Albert.
Eftirfarandi frásögn segir okkur það, að ýmislegt fer
fram á Keflavíkurflugvelli, sem margan hafði ekki órað
fyrir. Og þarna flýgur mörg krónan fyrir bí, sem ætti
að fara í ríkiskassann.
BÍLABRASK -
Hundruð bíla horfnir
Á Keflavíkurflugvelli eru
á milli 2000-2500 einkabíl-
ar með JO-númerum í eigu
varnarliðsmanna og ó-
breyttra Bandaríkjamanna
sem eru hér á vegum varn-
arliðsins. Enginn veit hvað
bílarnir eru nákvæmlega
margir.
Bílarnir ganga kaupum
og sölum milli Bandaríkja-
Söluspjöld í gluggum bíla varn-
arliðsmanna er daglegt brauð.
manna. Sumir eiga jafnvel
4-5 bíla og leigja þá út.
Ekkert eftirlit er með eig-
endaskiptum eða afskrán-
ingu. Ef bílar þessir lenda í
umferðaróhöppum kemur
oft fram að sá sem ók bíln-
um er 4.-5. eigandi frá
skráðum eiganda. Lögregl-
an er nú að svipast um eftir
mörg hundruð JO-bílum,
sem hreinlega eru horfnir.
Eigendum JO-bíla er
skylt að hafa bíla sína
tryggða hjá íslenskum
tryggingafélögum, en ið-
gjöld eru 40% af þeim
tryggingaiðgjöldum sem
Keflvíkingar greiða, auk
þess sem þau eru undan-
þegin söluskatti. Til þess að
sleppa við tryggingaiðgjöld
og önnur afskipti hafa
margir náð sér í VL-númer
og fest þau á einkabílana.
Þau liggja í bunkum þarna
á vellinum. Útsjónarsamir
varnarliðsmenn gera þetta
oft, enda amast enginn við
þessu. Bílar með VL-núm-
erum eru eign varnarliðsins
og því ótryggðir.
Gott dæmi um þetta
eru bdar Navy Exchange,
sem íslendingar þekkja
undir nafninu „píexið“.
Þetta er fyrirtæki í eigu
Gyðinga (Navy Exchange
er verslunarkeðja sem þeir
reka á herstöðvum um all-
an heim). Allir bílar fyrir-
tækisins eru merktir með
VL-númerum, þó þeir
komi varnarliðinu ekkert
við.
Hringferð á
útsölubensíni
Olíufélagið hf„ ESSO,
sér JO-bílum fyrir bensíni á
kr. 12.72 pr. líter. Banda-
ríkjamenn sem fara í lengri
ökuferðir hafa í öllum til-
fellum með sér bensínbirgð-
ir á allt að 6-8 brúsum. Þeir
sem taka bíl á leigu hjá ís-
lenskum bílaleigum hafa
aðgang að þessu útsölu-
bensíni. Vamarliðsmenn
geta því léttilega farið
hringinn í kringum landið
án þess að þurfa að kaupa
dropa af bensíni af land-
anum. Á bensínstöðinni á
vellinum eru einnig seldir
ótollaðir hjólbarðar og
varahlutir.
Bílhræ fá skoðun
Bifreiðaeftirlit ríkisins
hefur eftirlit með JO-bílum
að nafninu til. Sundurryðg-
aðar druslur með brotnar
Framh. á nœstu siðu
Haugryðgaður og skemmtilega „bættur" bíll . . .
. . . með hvitan skoðunarmiða 1985. Fengi íslendingur skoðun á
svona bíl?
Hér fá varnarliðsmenn útsölubensín . . .
. . . og fara með það út fyrir völlinn í mörgum brúsum.
34,79%
ÁRSÁVÖXTUN
með KASKÖ
2. VAXTAVEXTIR
leqajast inn á
KASKÓ á
3ja mán. fresti.
3. SAMAN-
BURÐUR
á verð- og óverð-
tryggðum reikning-
um mánaðarlega
tryggir hæstu
ávöxtun.
KASKÖ BÆTIR
UM BETUR!
• VAXTAUPPBÓT
- þrátt fyrir úttekt.
• RÝMRI INNLEGGSTfMI
I UPPHAFI
VAXTATfMABILS.
VERTU
VELKOMINN
f KASKÓ.
VŒZLUNRRBRNKINN
-(mmmmsi með !
VATNSNESVEGI 14 - KEFLAVlK - SlMI 1788