Morgunblaðið - 27.10.2015, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.10.2015, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015 ÍÞRÓTTIR Handbolti Íris Björk Símonardóttir, markvörður Íslands- og bikarmeistara Gróttu, er leikmaður 7. umferðar í Olís-deildinni. Átti stórleik á milli stanganna í sigrinum gegn Valskonum 3 Íþróttir mbl.is „Ég er mjög stolt yfir að ná þeim áfanga að leika 100 landsleiki,“ sagði Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, sem lék í gær sinn 100. landsleik þegar íslenska landsliðið vann landslið Slóveníu, 6:0, í undankeppni Evrópumótsins í Lendava í Slóveníu. Hólmfríður er sjötta konan til þess að leika 100 landsleiki fyrir Ís- lands hönd. Hinar eru Dóra María Lárusdóttir, Edda Garðarsdóttir Katrín Jónsdóttir, Margrét Lára Viðarsdótir og Þóra Björg Helga- dóttir. Hólmfríður hefur verið meidd í hné um skeið og gat m.a. ekki tekið þátt í landsleik við Makedóníu í und- ankeppninni fyrir helgina. Hún náði að byrja leikinn í gær og leggja upp fyrsta mark íslenska liðsins í leikn- um áður en hún meiddist eftir tæp- lega hálftíma leik. „Ég var í keppni við tímann að ná leiknum og með góðri hjálp þá hafð- ist það en því miður þá entist ég bara í 30 mínútur,“ sagði Hólmfríður við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hún rann til á lausum vellinum í Lendava og fékk högg á hnéð og fór af leik- velli eftir skoðun hjá lækni íslenska landsliðsins. „Það hefur verið leiðinlegt að hafa ekki getað tekið þátt í æfingum með landsliðinu af fullum krafti síðustu vikur vegna meiðslanna,“ sagði Hólmfríður og bætti við: . „Ég er ánægð með að hafa fengið að vera með liðinu síðustu daga og hafa notið trausts hjá Frey þjálfara sem var viss um að ég myndi ná þessum leik. Nú gef ég mér næstu vikur til þess að jafna mig því ég ætla að taka þátt í úrslitaleik bikarkeppninnar í Nor- egi með Avaldsnes gegn Lilleström 21. nóvember,“ sagði Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðskona í knatt- spyrnu, galvösk. iben@mbl.is Stolt yfir þessum áfanga  Hólmfríður komst í 100 landsleikjaklúbbinn og lagði upp mark í stórsigri Morgunblaðið/Styrmir Kári Áfangi Hólmfríður Magnúsdóttir hefur náð merkum áfagna. FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Það má segja að það sé búinn að vera stanslaus fögnuður hjá okkur frá því leiknum við Ströms- godset lauk,“ sagði Matthías Vilhjálmsson, leik- maður Rosenborg, við Morgunblaðið í gær en hann, Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar hans í Rosenborg tryggðu sér norska meistaratitilinn með því að gera 3:3 jafntefli við Strömsgodset í fyrradag. Þegar tvær umferðir eru eftir er Ros- enborg með tíu stiga forskot á Strömsgodset en Rosenborg var að vinna meistaratitilinn í 23. sinn og í fyrsta sinn í fimm ár. Þá getur liðið bætt öðr- um titli í safn sitt í næsta mánuði þegar það mæt- ir Saarpsborg bikarúrslitaleik á Ullevi-leikvang- inum í Ósló en Rosenborg hefur ekki unnið bikarinn síðan árið 2003. Fínt að bæta þessu á ferilskránna „Strax eftir leikinn var klukkutíma rútuferð frá Drammen til Gardemoen-flugvallar. Það er eðli- lega mikið fjör og við komuna til Þrándheims var haldið beint á skemmtistað í bænum og þar var sungið og trallað fram eftir nóttu. Í dag var svo kökuveisla þar sem við úðuðum í okkur meist- arakökunni,“ sagði Matthías við Morgunblaðið en hann fór frá Start á miðju tímabili og samdi við sigursælasta lið Noregs til loka tímabils 2017. „Það er ansi ljúf tilfinning að vera orðinn Nor- egsmeistari. Það er fínt að bæta því á fer- ilskrána,“ sagði Ísfirðingurinn, sem þrívegis hef- ur hampað Íslandsmeistaratitlinum með FH og tveimur bikarmeistaratitlum. „Það er búið að ganga rosalega vel hjá Rosen- borg í ár og ég var heppinn að fá tækifæri til að koma til félagsins í sumar og upplifa þetta. Það er mikil ánægja í bænum enda fólk búið að bíða í nokkur ár eftir titlinum. Nú er bara að fullkomna þetta frábæra tímabil með því að vinna bikarinn. Ég gerði mér góðar vonir þegar ég kom hingað um mitt tímabil að við yrðum meistarar enda var liðið í góðri stöðu. Það er sterkt að hafa haldið sjó og vera búnir að vinna titilinn þegar tvær um- ferðir eru eftir,“ sagði Matthías, sem hefur komið við sögu í 10 leikjum Rosenborg í deildinni og hefur í þeim skorað eitt mark Matthías hefur leikið flestar stöður á vellinum með meistaraliðinu og í leiknum í fyrradag lék hann síðustu mínúturnar með Hólmari Erni í miðvarðarstöðunni. „Ég kom inn á fyrir Söderlund en fljótlega fékk annar miðvörðurinn krampa svo ég beðinn um að leysa þá stöðu. Ég er búinn að spila sem fremsti maður, hef verið framliggjandi miðjumað- ur og einnig aftastur á miðjunni og nú bætti ég miðverðinum við. Nú á bara eftir að spila á kant- inum og í bakverðinum. Ég er bara þakklátur að fá að spila og að vinna leikina. Ég vissi að það yrði mikil samkeppni um stöður í liðinu en ég leit á þetta ár sem góða innkeyrslu fyrir næsta tíma- bil þar sem ég ætla að eigna mér sæti í byrj- unarliðinu,“ sagði Matthías en um næstu helgi tekur Rosenborg á móti titlinum eftir heimaleik á móti Haugasundi. Ekki er hægt að sleppa Matthíasi án þess að spyrja hann út í landsliðið og möguleika hans á að komast í EM hópinn. „Ég held að það sé mark- mið flestra íslenska fótboltamanna að komast í hópinn sem fer á EM. Ég er engin undantekning og ég stefni bara á að gera eins vel og ég get með mínu félagsliði og vonast svo til að fá kallið.“ Frá því að Matthías yfirgaf Start hefur liðið ekki unnið leik og er í bullandi fallbaráttu. „Það eru blendnar tilfinningar hjá mér núna þegar ég er kominn með titil í hendur en sé svo gömlu fé- laganna í miklu basli. Það er ekki gaman að sjá það en vonandi tekst Start að halda sæti sínu.“ Stanslaus fögnuður  Mikið fjör hjá Matthíasi og Hólmari eftir að hafa tryggt sér Noregsmeistaratit- ilinn með Rosenborg  Matthías búinn að spila flestar stöður á vellinum Ljósmynd/rbk.no Fögnuður Matthías Vilhjálmsson og Hólmar Örn Eyjólfsson fagna marki með Rosenborg á leiktíðinni.  Marteinn Geirsson lék sinn 67. og síðasta landsleik á þessum degi árið 1982 þegar Íslendingar töpuðu fyrir Spánverjum, 1:0, í undankeppni Evr- ópumótsins en leikið var á Spáni.  Marteinn er fæddur árið 1951. Hann átti lengi vel landsleikjametið en hann lék sinn fyrsta landsleik árið 1971. Hann skoraði átta mörk í leikjunum 67 og var fyrirliði í 20 leikjum. Hann lék með Fram á sínum ferli og eitt tímabil með Víði í Garði og þá lék hann með belgíska liðinu Royal Union frá 1976-78. Mar- teinn þjálfaði Víði, Fylki og Fram. ÍÞRÓTTA- MAÐUR- DAGSINS Guðbjörg Gunn- arsdóttir, lands- liðsmarkvörður í knattspyrnu og liðsmaður norska meistaraliðsins Lilleström, rif- beinsbrotnaði í viðureign Slóv- eníu og Íslands í undankeppni EM í gær. Hætt er við að Guðbjörg verði frá keppni um tíma af þessum sökum og gæti orðið af þremur stórum leikjum sem framundan eru hjá Lilleström. Lilleström mætir þýska liðinu Frankfurt í 16-liða úrslitum Meist- aradeildar Evrópu 11. nóvember og aftur viku síðar. Þá leikur Lille- ström til úrslita um norska bik- arinn 21. nóvember gegn Avalds- nes. Guðbjörg fór til skoðunar á sjúkrahúsi í Lendava í gærkvöldi. „Við vildum vera viss um að ekki hafi orðið innvortis blæðingar við höggið. Það verður allt að vera á hreinu áður en við höldum áfram ferð okkar heim,“ sagði Freyr Al- exandersson landsliðsþjálfari við Morgunblaðið en hann taldi víst að Guðbjörg væri brotin. iben@mbl.is Þrír stórir leikir í hættu Guðbjörg Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.