Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015
Undankeppni EM kvenna
1. riðill:
Slóvenía – Ísland .......................................0:6
Staðan:
Ísland 3 3 0 0 12:0 9
Skotland 2 2 0 0 10:0 6
Slóvenía 3 1 0 2 3:9 3
Makedónía 1 0 0 1 0:4 0
H-Rússland 3 0 0 3 0:12 0
Sigurlið riðlanna og sex bestu lið í öðru
sæti fara beint á EM 2017.
England
B-deild:
Cardiff – Bristol City ...............................0:0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
fyrir Cardiff.
Staðan:
Brighton 13 8 5 0 18:10 29
Hull 13 7 4 2 19:8 25
Burnley 13 7 4 2 18:12 25
Middlesbrough 13 7 3 3 20:9 24
Derby 13 6 6 1 18:10 24
Birmingham 13 7 3 3 19:13 24
Reading 13 6 4 3 20:12 22
Cardiff 13 5 6 2 15:11 21
Sheffield Wed. 13 5 5 3 18:16 20
QPR 13 5 4 4 22:22 19
Fulham 13 4 5 4 22:19 17
Brentford 13 5 2 6 19:20 17
Ipswich 13 4 5 4 16:21 17
Wolves 13 4 3 6 18:20 15
Huddersfield 13 3 5 5 13:16 14
Nottingham F. 13 3 5 5 11:14 14
Leeds 13 2 7 4 12:17 13
Blackburn 13 2 6 5 12:14 12
Preston 13 2 6 5 10:13 12
Bristol City 13 2 5 6 15:22 11
MK Dons 13 3 2 8 12:19 11
Charlton 13 2 4 7 11:21 10
Rotherham 13 2 3 8 15:24 9
Bolton 13 1 6 6 10:20 9
Svíþjóð
Åtvidaberg – Örebro................................2:3
Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hjörtur
Logi Valgarðsson léku allan leikinn með
Örebro.
AIK – Gautaborg ......................................1:2
Haukur Heiðar Hauksson lék allan leik-
inn fyrir AIK.
Hjálmar Jónsson lék allan leikinn fyrir
Gautaborgarliðið.
Staðan:
Norrköping 29 19 6 4 58:33 63
Gautaborg 29 18 8 3 50:20 62
AIK 29 18 6 5 53:33 60
Malmö 29 15 9 5 54:32 54
Elfsborg 29 15 7 7 55:40 52
Djurgården 29 13 9 7 48:35 48
Häcken 29 12 6 11 43:38 42
Helsingborg 29 11 4 14 42:43 37
Örebro 29 9 9 11 35:49 36
Hammarby 29 8 9 12 34:37 33
Gefle 29 9 6 14 33:49 33
Sundsvall 29 9 5 15 32:48 32
Kalmar 29 8 6 15 29:40 30
Falkenberg 29 7 4 18 36:52 25
Halmstad 29 3 9 17 19:43 18
Åtvidaberg 29 2 9 18 24:53 15
Danmörk
Randers – OB ............................................1:1
Hallgrímur Jónasson og Ari Freyr
Skúlason léku allan leikinn fyrir OB.
Staðan:
København 13 8 3 2 22:11 27
Midtjylland 13 8 3 2 17:6 27
SønderjyskE 13 7 0 6 22:17 21
Brøndby 13 6 3 4 19:15 21
Randers 13 6 2 5 20:18 20
AaB 13 6 1 6 24:20 19
Nordsjælland 13 6 1 6 15:20 19
OB 13 5 2 6 22:24 17
AGF 13 4 4 5 19:19 16
Viborg 13 4 2 7 10:18 14
Esbjerg 13 2 5 6 16:24 11
Hobro 13 2 2 9 11:25 8
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni karla
32-liða úrslit:
Þróttur – Stjarnan ................................26:45
Mílan – Fjölnir.......................................22:27
Svíþjóð
Drott – Ricoh ........................................22:29
Magnús Óli Magnússon skoraði 2 mörk
fyrir Ricoh en Tandri Már Konráðsson var
ekki í leikmannahópnum.
Hammarby – Redbergslid...................25:25
Örn Ingi Bjarkason skoraði 1 mark fyrir
Hammarby.
Sävehof – Skövde .................................26:23
Atli Ævar Ingólfsson skoraði 5 mörk fyr-
ir Sävehof.
HANDBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Olís-deild kvenna:
Selfoss: Selfoss – Valur.........................19.30
Digranes: HK – Fylkir......................... 19.30
Schenker-höll: Haukar – KA/Þór ....... 19.30
Varmá: Afturelding – ÍR ..................... 19.30
Grafarvogur: Fjölnir – FH .................. 20.00
Fram-hús: Fram – Stjarnan................ 20.00
Í KVÖLD!
SÁ BESTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Hreiðar Levý Guðmundsson mark-
vörður er leikmaður 10. umferðar í Ol-
ísdeildinni í handknattleik eftir að hafa
varið yfir helming skota sem hann fékk
á sig í marki Akureyrar, þegar liðið
valtaði yfir hans gamla félag ÍR í síð-
ustu viku.
Hreiðar kom aftur til Akureyrar í
fyrrasumar, eftir langa veru í atvinnu-
mennsku, en meiðsli settu stórt strik í
reikninginn hjá honum síðasta vetur.
Nú hefur hann náð sér vel á strik og
unnið sér aftur sæti í landsliðinu, en
hann á tæplega 150 landsleiki að baki
og var í liðinu sem vann silfur á ÓL í
Peking 2008, og brons á EM í Aust-
urríki 2010. Hann hóf meistaraflokks-
ferilinn með ÍR en fór svo til KA 2005,
og þaðan í atvinnumennsku 2007. Hann
lék í Svíþjóð, Þýskalandi og Noregi, áð-
ur en hann kom aftur heim í fyrra.
„Hann kom heim meiddur, og því
miður gekk endurhæfingin ekki nægi-
lega vel, því hann fann alltaf fyrir
eymslum í hnénu. Þetta endaði með því
að hann lét „krukka“ aðeins frekar í
hnéð í sumar,“ sagði Sverre Jakobsson,
þjálfari Akureyrar og fyrrverandi liðs-
félagi Hreiðars í landsliðinu.
„Hann setti sér strax skýr markmið
eftir það, og ætlaði að vera tilbúinn í
fyrsta leik, sem hann gerði. Endurhæf-
ingin var lyginni líkust. Hann æfði
hrikalega vel og tók sig allan í gegn;
andlega, líkamlega og hvað mataræði
snertir. Þetta var risapakki, hann var
svakalega einbeittur og það er gaman
að sjá hvernig hann hefur verðlaunað
sjálfan sig í gegnum eigin fórnfýsi.
Þetta er engin tilviljun,“ sagði Sverre.
„Landsliðssætið er stærsta við-
urkenningin, og heldur honum enn
frekar á tánum. Hann er fullur sjálfs-
trausts og það er ekki annað hægt en
að gefa honum gott klapp á bakið fyrir
það hvernig hann hefur tæklað þessi
mál,“ bætti hann við. Sverre segir
Hreiðar eyða miklum tíma í undirbún-
ingsvinnu fyrir leiki, og það skili sér:
Horfir mikið á myndbönd
„Hann er klókur markmaður og
undirbýr sig mjög vel. Hann horfir
mikið á myndbönd af andstæðing-
unum, gerir greiningar og getur auð-
veldlega unnið með vörninni, sér-
staklega með Didda [Ingimundi
Ingimundarsyni] enda sterk taug á
milli þeirra sem náinna vina. Hann er
líka hokinn af reynslu, búinn að spila
lengi með landsliðinu og í atvinnu-
mennsku, og þekkir þetta allt saman.
Hann nýtir reynsluna vel inni á vell-
inum, og miðlar til ungu strákanna sem
hann heldur vel á tánum. Þeir fá ekkert
að slaka á. Hann er virkur, og það er
alltaf kostur, þó að stundum sé hann
bara að tjá sig til þess að skerpa á ein-
beitingunni hjá sjálfum sér. Við varn-
armennirnir hlustum ekkert alltaf,“
sagði Sverre léttur. Hann segir aðra
markverði njóta góðs af Hreiðari:
„Hann gefur mikið af sér og ég held
að Tomas [Olason] og fleiri hér græði
mikið á því að vinna með honum.“
Handbolti: Bestur í 10. umferð
Tók sig allan í
gegn í sumar
Hreiðar frábær eftir að hafa jafnað sig
af meiðslum Kominn aftur í landsliðið
Morgunblaðið/Eva Björk
Endurkoma Hreiðar Levý Guðmundsson glímdi við meiðsli á síðustu leiktíð en
hefur náð sér af meiðslunum og gott betur, því hann er kominn aftur í landsliðið.
SÚ BESTA
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Pálína María Gunnlaugsdóttir átti
aldeilis flottan leik með Haukum
gegn sínum gömlu samherjum í
Keflavík þegar liðin áttust við í 4.
umferð Dominos-deildarinnar í
körfuknattleik á dögunum. Pálína,
sem gekk í raðir Haukanna fyrir
tímabilið, skoraði 37 stig, tók 6 frá-
köst og átti eina stoðsendingu í sigri
Hauka, 88:74, á útivelli. Pálína er
leikmaður 4. umferð deildarinnar.
Morgunblaðið fékk Helenu Sverr-
isdóttur, liðsfélaga Pálínu, til að lýsa
henni;
„Pálína er vítamínsprauta í hvaða
liði sem hún er. Það er ótrúlega mik-
il orka í henni,“ segir Helena, besta
körfuknattleikskona landsins um
árabil, um samherja sinn en Helena
sneri heim í sumar úr atvinnu-
mennsku og samdi við sitt gamla fé-
lag. Þær Pálína og Helena voru bún-
ar að sammælast um það þegar
Helena hélt til Bandaríkjanna á sín-
um tíma að þær ætluðu að spila í
sama liði síðar meir og nú er það
orðið að veruleika.
„Pálína er þekkt fyrir sinn góða
varnarleik en hún sýndi það í leikn-
um á móti Keflavík að hún kann sko
ennþá að spila sóknarleikinn. Pálína
er þannig leikmaður að hún rífur
alla með sér og það er ávallt mikill
hasar og læti í henni. Við höfum náð
mjög vel saman og gaman að end-
urtaka leikinn á ný með því að kasta
boltanum á hana langt fram á völl-
inn,“ segir Helena en Haukar hafa
byrjað tímabilið vel og hafa unnið
alla þrjá leiki sína í deildinni á tíma-
bilinu.
Mikil keppnismanneskja
Pálína hefur skorað 19,3 stig að
meðaltali í leikjunum þremur, tekið
6,3 fráköst og átt 1,3 stoðsendingar.
Spurð um helstu styrkleika Pálínu
sem leikmanns segir Helena;
„Hún er rosalega mikil keppnis-
mannenska og sættir sig ekki við
neitt nema að vinna. Hún er mjög
dugleg að fá alla leikmenn með sér í
baráttu og er sérlega góður varn-
armaður. Pálína kann leikinn mjög
vel enda ansi reynd í bransanum.
Hún er frábær varnarmaður og er
yfirleitt látin pirra besta leikmann-
inn í liði andstæðinganna. Það er
ansi gott að vera með svona leik-
mann í sínu liði,“ sagði Helena
Sverrisdóttir.
Körfubolti: Best í 4. umferð
Orkumikil víta-
mínsprauta
Pálína María Gunnlaugsdóttir, Haukum
Morgunblaðið/Golli
Öflug Pálína María Gunnlaugsdóttir fór mikinn í sigri Hauka gegn Keflavík.
Hér er hún í leik með íslenska landsliðinu á Smáþjóðaleikunum í sumar.