Víkurfréttir - 20.08.1987, Blaðsíða 7
\>iKun
ftittfo]
25 árekstrar í
síðustu viku
Mikið varð um smá-
árekstra sem tilkynntir voru
til lögreglunnar í Keflavík,
Njarðvík og Gullbringu-
sýslu í síðustu viku. Þó varð
all harður árekstur á gatna-
mótum Reykjanesbrautar og
Víknavegar í Njarðvík.
Varð áreksturinn það
harður að flytja varð annan
bílinn burt með dráttarbíl.
Með þessum árekstri urðu
tilkynningar um árekstra alls
25 í vikunni, þ.e. fram á miðj-
an sunnudag.
Trillurnar:
Fimmtudagur 20.ágúst 1987 7
STRÁKARNIR „OKKAR“
KOMUST í ÚRSLITIN!
Keflvíkingar - Suðurnesjamenn
Fjölmennum á úrslitakeppni ö.flokks
íslandsmótsins í knattspyrnu sem verð-
ur í Keflavík dagana 20-23.ágúst.
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM
Fallegur skólafatnaður. Apaskinns-
gallar á börn í 5 litum.
QœiliÍDÍ
HÓLMGARÐI 2 - KEFLAVÍK - SÍMI 14799
Opiö 9-18
og laugardaga 10-12.
Keflavík:
Handbók
fyrir
unglinga
væntanleg
Æskulýðsráð Keflavíkur
mun á næstunni standa að
útgáfu handbókar til handa
börnum og unglingum, um
félagsstarf á vegum hinna
ýmsu klúbba og félagasam-
taka í bæjarfélaginu. Þau
samtök sem óska eftir kynn-
ingu í handbók þessari eru
vinsamlega beðin um að
senda upplýsingar til ráðsins
að Hafnargötu 12, Keflavík,
fyrir 7. sept.
Upplýsingar þessar skuli
innihalda stofndag og til-
gang samtakanna eða
klúbbsins og kynningu á
starfseminni. Einnig er æski-
legt að teikning af félags- eða
klúbbmerki fylgi. Er æski-
legt að kynningin takmark-
ist við 100 orð.
Fréttatilkynning
VIÐ STYÐJUM
5.FLOKK ÍBK
Sæmilegt kropp
NÚ ER SKÓLINN AÐ BYRJA
í síðustu viku hófust veið-
ar á trillum að nýju eftir
veiðibann. Að sögn Krisjáns
Péturssonar hjá Höfnum h.f.
var sæmilegt kropp hjá þeim,
sem byrjaðir voru fyrir sið-
ustu helgi, eða um tonn hjá
hverjum bát.
Sagði Kristján að veiði
þessi lofaði góðu um fram-
haldið en uppistaðan hjá
Höfnum h.f. er afli af trillu-
bátunum, en sem fram kem-
ur annars staðar hafa þeir nú
keypt tvo þilfarsbáta og er
annar farinn á dragnótaveið-
ar frá Grindavík.