Víkurfréttir - 26.11.1987, Page 13
\fmun
MiKurt
12 Fimmtudagur 26. nóvember 1987
Fimmtudagur 26. nóvember 1987 13
Pétur Jóhannson, formaður Ferðamálasamtaka Suður-
nesja, flytur skýrslu stjórnar á aðalfundi samtakanna.
Næst honum er Gunnþórunn Gunnarsdóttir ritari, Drífa
Sigfúsdóttir fundarstjóri, og loks Steindór Sigurðsson
meðstjórnandi. A innfelldu myndinni er Oli J. Olason
ferðamálafulltrúi. Ljósm.: pket.
Aðalfundur Ferð^málasamtaka Suðurnesja:
Suðurnesin hafa
upp á marga
möguleika
að bjóða
„Suðurnesin hafa margt upp á að bjóða og marga mögu-
leika í ferðaþjónustu og ég sé miklu fleiri kosti en galla við að
auka ferðamannastraum um Suðurnes", sagði Oli Jón Ola-
son, ferðamálafulltrúi, m.a. er hann kynnti nýja skýrslu sína
um úttekt á ferðamálum á Suðurnesjum, á aðalfundi Ferða-
málasamtaka Suðurnesja á Hótel Kristínu sl. sunnudag.
Skýrsla Óla var mjögfróð-
leg og í henni er greint ítar-
lega frá möguleikum hvernig
standa megi að uppbyggingu
ferðaþjónustu á svæðinu.
Ferðamálasamtökin leituðu
til Óla fyrr á árinu til að
vinna úttektina, sem hann
hefur nýlokið við, sem hafin
og kynnti á fundinum. I
henni kemur fram að Suður-
nesin eru vel í sveit sett til að
taka á móti ferðamönnum,
hvort sem er frá útlöndum
eða innanlands frá. Telur Óli
að svæðið hafi margt upp á
að bjóða, hvort sem er til að sjá
og skoða svo og alla nauð-
synlega þjónustu, hvort sem
er í gistirými, veitingasölu,
verslun og ýmsu fleiru. Loks
að Suðurnesin eru að mörgu
leyti öðruvísi. Helstu ókost-
ina telur Óli vera að Suður-
nesin séu óþekkt svæði í
ferðaþjónustunni, gera þurfi
svæðið aðgengilegra fyrir
ferðamenn og sameina þurfi
menn til átaka í markaðs-
málum svo og að kanna þurfí
betur ýmsar hliðargreinar
ferðaþjónustunnar.
í byrjun fundarins flutti
Pétur Jóhannsson, formaður
samtakanna, skýrslu stjórn-
ar. Kom hann m.a. inn á það
að ferðamálasamtök úti á
landi fengju mun meira fjár-
magn frá viðkomandi sveit-
arfélögum, víðast væri greitt
eftir höfðatölureglunni, 5 kr.
á íbúa. Hér greiddu sveitar-
félögin aðeins 4000 kr. i árs-
gjald, sama og fyrirtæki sem
eiga aðild að samtökunum
gera. Samtökin hefðu því
nánast engar fastar tekjur og
gerði það starfseminni erfitt
fyrir.
Auk Óla J. Ólasonar
kynnti Aslaug Alfreðsdóttir
starfsemi nýstofnaðrar upp-
lýsingamiðstöðvar ferða-
mála á Islandi, sem Ferða-
málasamtök Suðurnesja eiga
aðild að. Stefnt er að því að
þessi upplýsingamiðstöð
verði móðurstöð fyrir aðrar
sem komi út um landsbyggð-
ina^í framtíðinni.
A fundinum urðu all
nokkrar umræður um fram-
tíð ferðamála og þjónustu á
Suðurnesjum. Fjölmenntu
sveitarstjórnarmenn frá flest -
um byggðarlögum Suður-
nesja á fundinn, en lítil sem
engin mæting var frá hags-
munaaðilum sem tengjast
ferðaþjónustu. Eitt af verk-
efnum ferðamálasamtak-
anna á næsta ári verður að
gefa út ferðabæklingum Suð-
urnes á íslensku og ensku.
Einnig að efla kynningu í
fjölmiðlum á þeirri aðstöðu
sem hér er fyrir hendi í ferða-
málum, með þaðfyriraugum
að auka umferð til Suður-
nesja og félagatölu samtak-
anna.
Eitt af þeim málum sem
umræður spunnust um var
léleg eða engin tjaldstæða-
aðstaða á Suðurnesjum.
Kom fram að með góðum
tjaldstæðum myndi án efa
ferðamönnum sem ferðast á
þann veg fjölga sem áhuga
hefðu á að dvelja hérna. As-
laug Alfreðsdóttir hjá Upp-
lýsingamiðstöð ferðamála,
sagði að hún hefði fundið
mikið fyrir áhuga hjá fólki
sem vildi dvelja síðustu 1-2
dagana á Suðurnesjum, en
ýmsir agnúar, m.a. rútuferð-
ir á milli byggðarlaga á Suð-
urnesjum hefðu staðið í vegi
fyrir þessu. Hér væri einung-
is spurning um skipulagn-
ingu. Kom einnig fram að
vinna þyrfti meira í því að fá
ferðamenn til að stoppa við á
Suðurnesjum til og frá flug-
stöð og m.a. með því að auka
kynningu í Leifsstöð fyrir
ferðamennina.
Nýtt árgjald var samþykkt,
kr. 5000 á fyrirtæki og 750
kr. fyrir einstaklinga. Ný
stjórn var kosin, níu manns,
fjórir til 2ja ára og fimm til
eins árs. Hin nýja stjórn er
þannig skipuð: Til 2ja ára:
Elsa Kristjánsdóttir, Gunn-
þórunn Gunnarsdóttir, Jón
Stígsson og Steinþór Jóns-
son. Til eins árs: Halldór
Ingvarsson, Páll Ketilsson,
Guðrún Eyjólfsdóttir, Pétur
Jóhannsson og einn fulltrúi
frá SSS. I varastjórn voru
kosnir: Ragnar Örn Péturs-
son, Aðalbergur Þórarins-
son, Bjarni Ólason, Axel
Jónsson, Steindór Sigurðs-
son og einn frá SSS.
Margt fleira bar á góma á
fundinum, svo sem að ef
vinna ætti marvisst að ferða-
málum á Suðurnesjum væri
nauðsynlegt að ráða starfs-
mann til reynslu.
Pílu-
kastari
sýndi
í Golf-
skálanum
Barry Twomolow, l'yrrum
heimsmeistari í pílukasti, sýndi
listir sínar í Goll'skálanum, Leiru,
ekki alls fyrir löngu. Sýndi liann
hvernig nota á rétt handtök og
lct mönnum í té ýmsan fróðleik
um pilukastið. Suðurnesjamenn
fjölmcnntu í Leiruna þetta kvöld,
en heimsóknin var á vegum Reið-
hjólaverkstæðis M.J.
A myndinni er Barry að munda
píluna, - áhorfendur fylgjast
spcnntir með.
Ljósm.: pket.
6 ára deild í heimsókn
Þeir nemendur sex ára deildar Grunnskóla Keflavíkur, sem einnig eru í dagvistun í skólanum,
komu í heimsókn til Grágásar og Víkurfréttadag einnfyrir skemmstu ásamt kennurumsínum.
Sést hér hluti hópsins hlýða á Sigurjón R. Vikarsson í Grágás er hann sýndi þeim hvernig
blaðið er sett. Ljósm.: epj.
Jóla-
föndur
í Myllu-
bakka-
skóla
Hinn árlegi jólaföndur-
dagur verður laugardaginn
28. nóvember n.k.
6 og 7 ára nemendur mæti
kl.: 10-12.
8, 9, 10 og 11 ára nemend-
ur mæti kl: 13-15.
Þeir sem eiga börn í báð-
um hópum geta valið um
tíma. Ætlast er til að börnin
séu í fylgd með fullorðnum.
Foreldrar, afar og ömm-
ur! Komið með börnum ykk-
ar og eigið skemmtilega dag-
stund saman við jólaföndur
og hlustið á hugljúf jólalög.
Takið jólaskapið með.
Foreldra- og kennarafélag
Myllubakkaskóla
Konur úr stjórn Lionessuklúbbs Keflavikur asamt framkvæmdastjora
og formanni stjórnar Dvalarheimila aldraðra Suðurnesjum. Liósm.: epj.
Lionessuklúbbur Keflavíkur
Gaf Hlé-
vangi
hæginda
stóla
Lionessuklúbbur Kefla-
víkur hefur gefið elliheimil-
inu Hlévangi í Keflavik 12
hægindastóla. Af því tilefni
var stjórn klúbbsins boðuð á
Hlévang á sunnudag þarsem
þeim var veitt viðurkenning
fyrir gjöf þessa.
í máli Lionessa kom fram
að þær hefðu álitið að heimil-
ið Hlévangur væri vanbúið
ýmsum búnaði, en við skoð-
un hefði kornið í ljós að svo
var sannarlega ekki, heldur
væri um að ræða vinarlegt og
hlýlegt dvalarheimiii fyrir
aldraða.
SJÓN
ER
SÖGU
RÍKARI
ATOMIC svig- og gönguskíði
SALOMON bindingar og skór
Skíðahanskar - Skíðapokar - Skótöskur
Stretch-buxur - og auðvitað skíðagallar
í miklu úrvali.
Full búð af splunkunýjum góðum vörum.
SPORTBÚÐ ÓSKARS
Hafnargötu 23 - Keflavík - betri búð á nýjum stað.
NYIR
GALLAR
FRA
DON
CANO