Víkurfréttir - 03.03.1988, Blaðsíða 17
V/KUR
jutUt
Fimmtudagur 3. mars 1988 17
EIGA AFMÆLI A ADEINS
FJÖGURRA ÁRA FRESTI
Fimm Suðurnesjabúar
Hvað skyldi hafa verið merkilegt við síðasta mánudag? Jú, hann var hlaupársdagur, þ.e. 29.
febrúar, og þeir sem eru fæddir þann dag eiga því afmæli aðeins fjórða hvert ár. En skyldu
margir Suðurnesjabúar vera fæddir þann dag?
Við skoðun á íbúaskrám byggðarlaganna sjö á Suðurnesjum fundust fimm manns, þaraf aðeins
einn karlmaður. I Keflavík eru tvær konur sem fæddar eru þennan dag og urðu því á mánudag 76
og 36 ára en höfðu þó ekki átt nema 19 og níu afmælisdaga. I Njarðvíkerein kona sem er 52 ára
og hefur aðeins átt 13 afmælisdaga. Grindavík getur státað af eina karlmanninum í þessum hópi
sem hefur átt 5 afmælisdaga og telst því vera tvítugur og Garðmenn eiga eina 16 ára sem þó
hefur aðeins átt 4 afmælisdaga.
Af þessu tilefni heimsóttum við aldursforsetann í hópnum og þá yngstu og eina karlmanninn í
hópnum. Þau tvö sem ekki voru hcimsótt eru Bryndís Haraldsdóttir í Keflavík, fædd 1952, og
Erla Kristín Jónsdóttir í Njarðvik, fædd 1936.
„Ágætt að
vera fædd
á hlaup-
ársdag"
Aldursforsetinn i hópnum
heitir Þórhildur Ingibjörg
Sölvadóttir og býr að Tjarnar-
götu 6 í Keflavík. Samkvæmt
Árni Björn Björnsson. Ljós-
mynd: hpé.
„Þetta
var töff“
Eini karlmaðurinn í hópn-
um er Arni Björn Björnsson,
Borgarhrauni 20 í Grindavík.
Var hann mjög fámáll um mál-
ið er haft var við hann sam-
band en hann hélt á mánudag
upp á 20 ára afmæli sitt en
hefði alveg eins getað verið 5
ára afmælið, því hann hefur
aðeins átt 5 afmælisdaga um
ævina. Fyrsta spurningin sem
lögð var fyrir hann var þessi:
Hvernig var að eiga afmœli
fjórða hvert ár?
„Það var töff að eiga afmæli
þennan dag.“
Hvaða dag hélstu upp á af-
mæli þitt í tesku?
„Þegar foreldrunum hent-
aði,“ og þar með var hann þot-
inn.
manntali er hún sögð vera 76
ára enda fædd 1912. En sam-
kvæmt okkar tali hefur hún
aðeins átt 19 afmælisdaga og
því var fyrsta spurningin sem
lögð var fyrir hana þessi:
Hvernig finnst þér að vera
aðeins 19 ára?
„Náttúrulega bara alveg
ágætt,“ sagði hún og hló við.
En hvernig fannst þér í œsku
Þórhildur Ingibjörg Sölvadótt-
ir. Ljósm.: epj.
að eiga aðeins afmœli fjórða
hvert ár?
„Eg fann ekki til þess. Ef
það var ekki hlaupár, sagðist
ég eiga afmæli þann 28. febrú-
ar og hélt upp á þann dag.“
Krakkarnir hafa ekkert gert
grín að þér í œsku fyrir að eiga
gervi afmœlisdag?
„Nei, það man ég aldrei eft-
ir. Held ég bara að þeim hafi
þótt þetta ágætt."
Er þá ekkert verra að vera
fœdd á hlaupársdag en einhverj-
um öðrum degi?
„Nei, mér fannst það bara
ágætt,“ sagði sú gamla og
hressa að lokum.
„Skiptir
ekki
máli
núna“
„Það er allt í lagi“ varsvarið
sem blaðamaður Víkurfrétta
fékk, er hann spurði viðmæl-
anda sinn að því hvernig það
væri að eiga afmæli fjórða
hvert ár.
Umræddur viðmælandi býr
í Garðinum og er einn af fimm
Suðurnesjamönnum sem
fæddir eru á hlaupársdeginum
29. febrúar og sá yngsti. Hún
heitir Þóra Kristrún Haf-
steinsdóttir til heimilis að Mel-
braut 23.
Hún hélt á mánudaginn upp
á sinn 4. raunverulega afmæl-
isdag en aðspurð segist hún
halda upp á afmælið þann 28.
Eins og fram kemur í grein-
arllokknum hér á undan eiga
aðeins fimm Suðurnesjabúar
afmæli á hlaupársdag þrátt
fyrir að hér búi um 15 þúsund
rnanns. Samt er þetta gott
hlutfall miðað við landið allt
því aðeins 22 eiga afmæli á
þessum degi.
febrúar þegar 29. er ekki fyrir
hendi.
„Það var leiðinlegt að eiga
afmæli 29. febrúar þegar ég
var yngri og í skólanum skrif-
aði ég að ég ætti afmæli 28.,“
sagði Þóra Kristrún er blaða-
maður spurði hvort henni hafi
verið strítt með afmælisdegin-
um, „en þetta skiptir ekki máli
núna“.
Um framtíðaráform sagði
Þóra Kristrún Hafsteinsdóttir:
„Ég ætla bara að halda áfram í
skóla og koma mér áfram, en
ég hef ekki hugmynd um hvað
ég ætla að verða þegar ég verð
eldri.“
Þrátt fyrir tíðar fæðingar á
fæðingardeildinni í Keflavík
fæddist ekkert barn þar á
hlaupársdag í ár og því eru
ekki miklar líkur til að fjölgun
verði í þeim hópi sem fæddir
eru 29. febrúar og búa á Suð-
urnesjum. Nema þeir flytji
annars staðar frá.
SNYRTING OG FÖRÐUN
Hand- og fótsnyrting. W
■ jj Förðun, litun, plokkun.
Fótavax og andlitsvax.
x. Wm Húðhreinsun. - Andlitsbað.
Þú þarft ekki endilega
að vera stressaður eða
með vöðvabólgu . . .
Nudd er þægilegt og afslappandi.
SNYRTI- OG NUDDSTOFA
Hafnargötu 35 - Keflavik - Simi 14108
íþróttafélög og hópar geta
fengið einkatíma á kvöldin.
Góður hópafsláttur.
Opið mánud., þriðjud. og fimmtud. 9-17,
miðvikud. og föstud. 9-19.
Engin fæðing á
hlaupársdag