Víkurfréttir - 18.08.1988, Blaðsíða 3
viKtin
Fimmtudagur 18. ágúst 1988
Lögreglan í eltingaleik:
Okuníðingur stakk af
Er lögreglumenn voru
að störfum á iaugardags-
kvöld á stað þeim á Strand-
aheiði. sem banaslysið varð
um morguninn, veittu þeir
athygli bifreið, sem kom á
150 km hraða á radarskjá
iögrcglubifreiðarinnar.
Var ökumanni þegar sýnt
stöðvunarmerki, sem hann
sinnti í engu.
Fór lögreglubíllinn því á
eftir ökuníðingnum en
heidur dró á milli bíianna
en liitt, á leið inn Reykja-
nesbraut. Er kom að
Vatnsleysustrandarvegin-
um við Kúagerði slökkti
ökumaðurinn ljósin en hélt
áfram hraðakstrinum, ljós-
laus eftir Vatnsleysu-
strandarvegi í átt að Vog-
um.
Hætti lögreglan þá fljót-
iega eftirförinni en sá tii
bílsins til að byrja með en
missti siðan af honuni.
Þrátt fyrir ntikla leit hefur
ökuníðingurinn ekki fund-
ist ennþá.
í þessum árekstri, sem varð nú í vikunni á gatnamótum Vallargötu
og Norðljörðsgötu í Keflavík, urðu sem betur fer ekki slys á fólki.
En orsökin var sú að hægri reglan var brotin. Ljósm.: hbb
Stórfjölgun
umferðarslysa
Samkvæmt úttekt umferðar-
deildar lögreglunnar í Keflavík,
Grindavík, Njarðvík og Gull-
bringusýslu, hefur orðið geig-
vænleg ljölgun umferðarslysa
í umdæminu það sem af er ár-
inu. Frá áramótum til 15. ágúst
s.l. hafa orðið 31 umferðarslys
með meiðslum, en voru 25 allt
árið í fyrra.
A öllu árinu 1987 slösuðust
47 manns í óhöppum þessum
og tveir létust og er það sama
tala og fyrstu sjö og hálfan
mánuð þessa árs. í fyrra urðu 9
óhappanna, þar sem meiðsli
urðu, í þéttbýliog 11 utan þétt-
býlis, en það sem af er þessu ári
hafa orðið 20 slík í þéttbýli og
11 utan þéttbýlis á Suðurnesj-
um.
13 þessara umferðarslysa
meðmeiðslumurðu íKeflavík,
þ.e. 7 áHafnargötu,3 áHring-
braut, 2 á Aðalgötu og eitt við
Holtaskóla. Þrjú slík urðu í
Ytri-Njarðvík en athygli vekur
að ekkert þeirra varð á hættu-
legasta vegakafla landsins,
sem nú er nefndur Víknaveg-
ur. Þá varð eitt umferðarslys
með meiðslum í hverju eftir-
farandi byggðarlaga: Garði,
Grindavík, Vogum og Innri-
Njarðvík. Af slysum þessa árs í
dreifbýli hafa sex orðið á
Reykjanesbraut.
GLOIDIA
• SNYRTIVORUVERSLUN ■
SAMKAUPUM - NJARÐVÍK
HEIÐAR
JÓNSSON
snyrtir
verður með
Litgreiningu
hjá snyrtivöruversluninni
GLORIU á hverju kvöldi
dagana 22.-27. ágúst.
Pantanir og allar frekari
upplýsingar í GLORIU í
síma 14409 frá 10-12og
13-18:30.
ATHUGIÐ
breyttan opnunartíma
frá og með 1. sept.
■ mánudag - fimmtudag
kl. 10-18:30
■ föstudaga kl. 10-20
■ laugardaga kl. 10-14
MIKIÐ
ÚRVAL
SKÓLA-
VARA
MJÖG
GOTT
VERÐ!