Víkurfréttir - 08.09.1988, Page 8
\>iKun
8 Fimmtudagur 8. september 1988
| (titu*
molar
Brúðkaupsmót
í Leirunni
Þess er vænst að um helg-
ina takist Ásdísi Pálmadótt-
ur, hárgreiðslumær, loks að
draga Pál Ketilsson, annan
ritstjóra Víkurfrétta, í
hnapphelduna, eftir fimm
ára undirbúning. Af þessu
tilefni verður haldin mikil
veisla á unaðsreit golfaranna
í Leirunni; hvort hún verður
við holu 18 er þó ekki vitað.
Aður fer fram smá athöfn í
Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Pressan
á villigötum
Nýjasta vikublaðið, Press-
an, greindi frá því um
an, greindi fráþví um síðustu
helgi að íslenskir aðalverk-
takar hefðu byggt Flughótel-
ið í Ketlavik. Hætt er við að
þessi fuliyrðing í 1. tölublaði
Aðalfundur Þingey-
ingafélags Suðurnesja
verður haldinn í Karlakórshúsinu,
uppi, sunnudaginn 11. september kl.
14.00. Venjuleg aðalí'undarstörf, vetr-
arstarfið rætt. Sýnd verða video frá
síðustu þorrablótum, kaffi. Mætum
vel og stundvíslega.
Stjórnin
Geymsluhús-
næði óskast
Bæjarbókasafn Keflavíkur óskar eft-
ir geymsluhúsnæði til leigu. Heppi-
legast sem næst bókasafninu. Uppl.
gefur bæjarbókavörður í síma 15155.
Gæsluvellir
í Njarðvík
Foreldrar athugið að frá og með 15.
september næstkomandi verður
gæsluvöllurinn við Brekkustíg í Ytri
Njarðvík opinn frá 13 til 16. Frá sama
tíma lokar völlurinn við Stapagötu í
Innri Njarðvík. Foreldrum í Innri
Njarðvík er bent á að nota völlinn við
Brekkustíg í vetur.
Félagsmálastjóri
Pressunnar fái ekki góðan
hljómgrunn á Suðurnesjum,
því samkvæmt okkar vitn-
eskju komu aðalverktakar
þar hvergi nærri. Hús þetta
er hins vegar í eigu Bygg-
ingaverktaka Keflavíkur h.f.
og það er álíka fáránlegt að
blanda þessum tveim fyrir-
tækjum saman og að stað-
hæfa að Þjóðviljinn og
Mogginn séu eitt og sama
blaðið.
Tók pokann sinn
Erfiðleikar Skipasmiðj-
unnar Harðar hafa ekki ver-
ið í sviðsljósinu nú siðustu
vikurnar en í vetur var nokk-
ur uniræða um ntáiið. Þó hef-
ur að undanförnu borið á því
að erfiðiega gangi að greiða
laun starfsmanna. Það hefur
síðan haft það i för með sér
að menn eru farnir að leita
annað eftir atvinnu. Nú síð-
ustu daga hefur Þórarinn
Reynisson, skrifstofustjóri,
tekið pokann sinn og horfið
á braut.
Er lónið hættulegt?
Fyrir þá, er hlustuðu á
fréttaflutning Stjörnunnar í
síðustu viku af slysi í Bláa
lóninu, væri hægt að álykta
að lónið væri stórhættulegt;
þrír hefðu látist þar, auk þess
sem stúlka væri nú meðvit-
undarlaus eftir slys í lóninu.
Hið rétta er að í engu þessara
fjögurra tiivika má kenna
lóninu um. Tvö dauðsfall-
anna stöfuðu af ölvun og
í því þriðja var um aldraðan
mann að ræða, sem gekk
ekki heill til skógar. I síðasta
slysinu féll 25 ára gömjul
frönsk stúlka niður, skamrnt
frá bakkanum, þar sem dýpi
var aðeins upp undir hné.
■ Er gagnrýni á
SBK ástæðulaus?
Eftirfarandi bókun var
gerð á fundi stjórnar SBK
lyrr í sumar:
, ,A ð gefnu tilefni vill stjórn-
in taka fram að hún harmar
þá neikvœðu umfjöllun um
fyrirtœkið sem átt hefur sér
stað að undanförnu, og er
henni ekki Ijóst hvaðan tilefni
þessarar ástœðulausu umræðu
er komið, stjórnin gerir ekki
lítið úr þeim erfiðleikum I
rekstrinum sem við er að etja,
en telur hinsvegar að viðþeim
hafi verið brugðist á eðlilegan
hátt, enda virðist árangur
þeirra aðgerða vera að koma í
Ijós."
Undir þessa bókun skrifa
Ásgeir Einarsson, Vilhjálm-
ur Ketilsson, Jón Stígsson,
Sigurður Albertsson, Sveinn
Guðnason og Guðjón Stef-
ánsson. Molunt er ekki
kunnugt um neina neikvæða
umfjöllun að undanförnu.
Hins vegar hefur mikil gagn-
rýni birst uni fyrirtækiðogef
það er það sem stjórnin kall-
ar neikvætt, þá er eitthvað
rnikið að í stjórnarherbúðun-
um.
Eiga Keflvíkingar að
greiða fyrir aðra?
Mikil barátta hefur að
undanförnu verið um akstur
hópferðabifreiða svo og
skólaakstur hér á Suðurnesj-
um. Hefur þessi barátta m.a.
orðið til þess að aðilar undir-
bjóða hvern annan og jafnvel
út fyrir skynsemismörk að
ætla mætti. Dæmi um slíkt
ráðslag átti sér stað nú nýver-
ið er SBK tók að sér skóla-
akstur með 9. bekk Holta-
skóla til Garðs og Sandgerð-
is fyrir tæpar 5.000 kr. á dag,
en Steindór Sigurðsson hafði
þessar ferðir áður fyrir 8.400
kr. á dag. Samkvæmt upp-
lýsingum Mola eru farnar 3
ferðir á dag og því fást aðeins
greiddar kr. 1.660 fyrir
hverja ferð, sem varla er mik-
ið umfram mannakaup, ef
kalla þarf mann út á auka-
vakt. Er því spurning hvort
rétt sé að Keflvíkingar, sem
eiga og reka SBK, eigi að
taka á sig niðurgreiðslur.fyrir
önnur sveitarfélög og ríkið á
þennan hátt?
Umsjón: Emil Páll
Kjartan Már gerir
það gott
Kjartan Már Kjartansson,
skólastjóri Tónlistarskólans
i Keflavík, lætur ckki duga
starf sitt við þann skóla.
Hann hefur nú einnig tekið
við formennsku í samtökum
tónlistarskólastjóra á Is-
landi og það seni meira er, þá
er hann orðinn formaður
norrænna samtaka tónlistar-
skólastjóra. Það er alltaf
gantan að vita um unga dug-
mikla menn, - betra að við
ættum fleiri slíka.
Ógeðfelldar '
auglýsingar
Þó auglýsing sú, sem
Skriðjöklar hengdu upp víða
um svæðið fyrir síðustu helgi,
veki eftirtekt, og skili þar
með vissum árangri, er ekki
hægt að gefa henni góða
einkun. Enda er hér unr rnjög
klúra auglýsingu að ræða.
Eins og sést á meðfylgjandi *
mynd. Notuð er mynd af
naktri konu, mjög feitri, sem
grunnur bak við auglýsinga-
textann. Með þessu móti var
unglingadansleikur auglýst-
ur í Stapa síðasta föstudag.
Stórstreymi
Höfuðdagur var næst síðasta mánudag, en þá er stærsti straumur ársins, þ.e. mesti ntunurá sjávarföll-
um. Meðfylgjandi mynd var tekin í höfninni í Keflavík tveimur dögum fyrir höfuðdag, þ.e. á laugardegi.
Þegar myndin var tekin voru liðnir tveir tímar frá flóði, en litla bryggjan með krönunum er enn í kafi.
Ljósm.: epj.