Víkurfréttir - 08.09.1988, Side 13
mur<
j%UU%
Fimmtudagur 8. september 1988 13
Tíð rúðubrot
í miðbænum
Mikil umferð unglinga í
miðbæ Keflavíkur hefur haft í
för með sér slæman fylgifisk,
sem er rúðubrot. Nú líður vart
sú helgi að ekki eru bortnar
rúður í verslunum við Hafnar-
götuna.
Ein þeirra verslana sem
hvað mest hefur orðið fyrir
barðinu á skemmdarfýsn ungl-
inganna er Stapafell. Þar eru
brotnar rúður svo til um
hverja helgi, en einnig verða
önnur fyrirtæki fyrir barðinu á
skemmdarvörgunum og oft
hafa verið brotnar rúður í yfir
tveim fyrirtækjum eða versl-
unum yfir helgi.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Breytingar á busavígslu
Rúða í varahlutaverslun Stapafells var tvívegis brotin um síðustu helgi. Vtra glerið var brotið á föstu-
dagskvöldinu, en innri rúðan á laugardagskvöldinu og þar með gatið komið í gegn. Ljósm.: hbb.
Strákslegt orðbragð Rann-
sóknarnefndar sjóslysa
Hr. ritstjóri!
Vegna fréttar blaðsins um
skýrslu Rannsóknarnefndar
sjóslysa vil ég koma eftirfar-
andi athugasemdum á fram-
færi.
Rannsóknarnefnd sjóslysa
ætti að vera kunnugt um að
niðurstaða sjóprófs, vegna
áreksturs Hafsteins og Fagra-
ness, hefur verið véfengd og
óskað hefur verið eftir frekari
rannsókn, sem nú stenduryfir
hjá Sakadómi Gullbringu-
sýslu. Það er ekki til mikils
mælst að hún sýni dómstólum
landsins þá kurteisi að bíða
með að birta fljótfærnislegar
ályktanir sínar þar til dóms-
rannsókn lýkur.
Mér er þvert um geð að reifa
þetta mál í fjölmiðlum, en sé
mig knúinn til að benda á að
atburðalýsing nefndarinnar er
ekki sannleikanum samkvæm
og varðar þar mestu að sleppt
er þeim atriðum, sem benda til
annarrar niðurstöðu en fram
kemur í áliti nefndarinnar.
Einnig er framburður vitnis
oftúlkaður. Ummæli höfðeftir
mér eru slitin úr samhengi í
þeim tilgangi að sýna fram á
„vanþekkingu mína á sigl-
ingareglum". Til dæmis er
reynt að láta svo að ég telji af-
stöðu bátanna, þegar árekst-
urinn varð, upphefja ákvæði
13. reglu, en mínar forsendur
eru allt aðrar.
Dagbók mín er sú eina sem
fram kemur í sjóprófinu og
ætla ég ekki að bera á móti
því, að ámælisvert sé að hún
skuli ekki vera skrifuð á réttan
pappír, en það verður að telj-
ast einkennilegt, miðað við þá
áherslu sem nefndin leggur á
færslu dagbóka, að hún skuli
ekki lesa það sem í þeim stend-
ur. Nefndin virðist álíta að það
að fylgja ákvæði 17. reglu a) 1.
sé að hliðra til og beita sérstök-
um stjórntökum, en það mun
dómari skera úr um.
Öll rannsókn málsins mið-
aði að því að komast að fyrir-
fram ákveðinni niðurstöðu.
Framburður minn er fram
kominn undir miklu álagi af
spurningahríð frá mjög fjand-
samlegum rannsóknarmanni
og þess vegna ekki nógu mark-
viss, en það hefði ekki átt að
koma að sök ef ályktunar-
hæfni rannsóknarmanna væri
i réttu hlutfalli við hvatvísina.
Sem dæmi um offorsið má
nefna að fyrrnefndur rann-
sóknarmaður, sem á óbeina
aðild að málinu, gekk svo
langt í því að laða fram nei-
kvæð viðbrögð gagnvart mér,
að hann gaf í skyn við eitt vitn-
ið að ég hafi logið því til að ég
hafi gefið hljóðmerki, sem allir
vissu að ég gerði ekki.
Eg hef tæpt hér á örfáum at-
riðum en fleiri hliðar eru á
þessu máli, sem ég ætla ekki að
upplýsa hér, af velsæmisástæð-
um, enda er tilgangur minn
með þessu skrifi ekki sá að
skemmta lesendum Víkur-
frétta heldur að andmæla
ómaklegum og ósönnuðum
áburði á mig sem hér hefur
birst. Fákunnandi, kærulaus
og tillitslaus trassi og þar á
ofan lélegur sjómaður er sú
einkunn sem nefndin gefur
mér. Þeir, sem þekkja mig á
lýsingunni, eru hér með vin-
samlegast beðnir að hringja
eða skrifa.
Rannsóknarncfnd sjóslysa er
ætlað ábyrgðarmikið hlutverk
og er það ntiður að ályktanir
liennar cinkennast oftar en ekki
af hroka, belgingi, sleggjudóm-
um og strákslegu orðbragði.
Garðhúsum, 4. september 1988.
Sigurður Trausti Þórðarson.
Hi.n árlega busavígsla
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
fer fram á morgun, föstudag.
Að sögn skólameistara hafa
verið gerðar róttækar breyt-
ingar á busavígslunni. „Við
ætlum að hafa hana
skemmtilegri og þægilegri,"
sagði skólameistaq, Hjálm-
ar Arnason. Hvað gert yrði
vildi Hjálmar ekki gefa upp
en þaðskýrist allt á morgun.
Frá Stóru-
Vogaskóla
Skólinn verður settur í Kálfatjarnar-
kirkju sunnudaginn 11. september kl.
14.00.
Tónlistarskóli Njarðvíkur
Innritun
Innritun fer fram í skólanum að Þóru-
stíg 7, frá kl. 12-19, fimmtudaginn 8.
og föstudaginn 9. september. Innritað
verður í allar deildir skólans og þeir
sem eiga inni umsóknir frá því s.l.
vor, þurfa að staðfesta þær.
Framhaldsskólanemendur þurfa að
koma með stundaskrár.
Ekki er innritað í gegnum síma, þar
sem ganga þarf frá greiðslu skóla-
gjalda við innritun.
Greiðsla skólagjalda: Staðgreiðsla
við innritun með 10% afslætti eða Vz
hluti greiddur við innritun og eftir-
stöðvar með 2-3 jöfnum greiðslum.
Að venju verður svo fjölskylduaf-
slátturinn og afslátturinn vegna
lúðrasveitanna í fullu gildi, óháð
greiðslumáta.
Kennsla hefst svo samkvæmt stunda-
skrá mánudaginn 19. september.
P.S. Áhugasamir nemendur á TÚBU
og ALTO-SAXOFÓN fá 50% afslátt á
skólagjöldum. Aðeins 2-3nemendurá
þessi hljóðfæri munu komast að.
Skólastjóri