Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.02.1989, Page 9

Víkurfréttir - 16.02.1989, Page 9
\)iKun Uuau Fimmtudagur 16. febrúar 1989 AUGLYSING um breytingu á deiliskipu- lagi við Kjarrmóa í Njarðvík Vinnuvélar frá H. Magnússyni við snjóhrcinsun á Hafnargötu í Keflavík í siðustu viku. t.júsm.: hbb. Keflavík: Tvær milljónir í snjómokstur Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarstjóri í Keflavík, upp- lýsti það á fundi bæjarstjórn- ar Keflavíkur í síðustu viku að kostnaður við snjóruðn- ing, hreinsun og mokstur, væri að nálgast 2 milljónir í Keflavík. Væri verk þetta að- allega unnið af bæjarstarfs- mönnum ogeins kæmu verk- takar þar einnig til skjal- anna. Er það aðallega H. Magn- ússon sem hefur unnið við snjóhreinsun þessa, enda mjög vel búinn tækjum til slíks, eins og sést á meðfylgj- andi mynd. Samkvæmt grein 4.4. í skipulagsreglugerð auglýsist breyting á deiliskipulagi við Kjarrmóa. Teikningar liggja frammi á bæj- arskrifstofum Njarðvíkur frá 20. febrúar n.k. til 20. mars. Athugasemdir, ef einhverj- ar eru, skulu vera skriflegar og sendast bæj- arstjórn Njarðvíkur fyrir 31. mars n.k. Njarðvík, 3. janúar 1989. Bæjarstjórinn í Njarðvík. Eiginmenn Unnustar TAKIÐ YKKUR FRÍ Á KONUDAG- INN OG BJÓÐIÐ ELSKUNNI ÚT AÐ BORÐA Á GLÓÐINA. Konudagsmatseðill: II umarsúpa og Glóðarsteikt lambalæri bearnaise m/fersku grænmeti og bökuðum kartöflum kr. 980,- eða T-bonesteik með ristuðum humarhala, bakaðri kartöllu og madeirasósu kr. 1.490 og Jarðarberjarjómarönd Sérstakur barnamatseðill. P.S. Verið vandlát - það erum við. hurrkarinn og þvotturinn kominn út i snjóinn eftir að eldurinn hafði verið slökktur. Ljósm.: hbb. Slökkvilið Brunavarna Suð- urnesja var á föstudagsmorg- un kvatt út, að húsi við Norð- urvelli í Keflavík. Þar hafði komið upp eldur í þvotta- þurrkara. Tók slökkvistarfið skamma stund, en þvotturinn í þurrkaranum, ásamt þurrkar- anum sjálfum, eyðilagðist. Kaupfélagið: Búðarhnupl og rúðubrot Lögreglunni í Keflavík barst í síðustu viku tilkynn- ing um búðarhnupl í kaup- félagsbúðinni að Faxabraut 27 í Keflavík. Var viðkom- andi aðili gómaður á staðn- um, með kartöfluflögur og annað smávægilegt innan klæða. Þá var í síðustu viku brot- in rúða í annarri kaupfélags- búð. Að þessu sinni var það útibúið í Sandgerði sem varð fyrir barðinu á skemmdar- vargi. Innbrot á dagheimili í síðustu viku var brotist inn á dagheimilið Holt í Innri-Njarðvík. Þaðan var stolið tveimur myndavélum og’einhverju af matvælum. Er málið í rannsókn. Konudagurinn er á sunnudaginn Opiðlaugardagkl. 10-18 ogsunnudagkl. 9-18 KÓSÝ HAFNARGOTU 6 - SJMI 14722 Eldur í þurrkara

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.