Víkurfréttir - 24.08.1989, Page 3
viKun
Fimmtudagur 24. ágúst 1989 3
íutUt
Helguvíkur-
efni í bíla-
stæði og
tengigötu
Þcgar umræðan um lagn-
ingu sjávargötu neðan Hafn-
argötu í Keilavík stóð sem
hæst fékk Keflavíkurbær vil-
yrði fyrir afgangsefni úr
Helguvík, eða öllu heldur
efni sem kom til þegarbergið
var brotið niður. Undan-
farna daga hefur bæjarfélag-
ið notað efni þetta til að
leggja í tengigötu sent verður
milli Heiðarbyggðar og
Garðyegar. Auk þess sem
um leið er ekið el’ni i bíla-
stæði neðan Hafnargötu.
Að sögn HjartarZakarías-
sonar, bæjarritara í Keíla-
vík. sem gegnir stöðu bæjar-
stjóra um þessar mundir, er
enn óráðið hvenær ráðist
verður í lagningu sjávargöt-
unnar, sem verður utar en
bílastæði þau sem nú erverið
að leggja upp að húsunum til
að nýta umrætt efni. Utan
við vegarstæðið ntun síðan
koma sérstök grjótvörn til að
verja veginn ágangi sjávar.
Um tengigötuna er það að
segja að með he(tni mun létta
mikið á umferð um Heiðar-
braut, þar sem umferð inn og
út úr Heiðarhverfi mun geta
farið þar um. Er því hér fyrst
og fremst um öryggisatriði
að ræða.
Grindavík:
Dýrum
misþyrmt
Mikil sorg hvíldi yfir hjört-
um tveggja drengja er eiga
heima við Suðurvör í Grinda-
vík. Astæðan er sú að ráðist
var á tvær kanínur í eigu þeirra
og þeim misþyrmt á hroðaleg-
an hátt.
Er komið var að dýrunum
kvöld eitt í síðustu viku fund-
ust þær í plastpoka sem búið
var að binda fyrir með vír. Var
greinilegt að þannig höfðu þær
verið dregnar eftir hrauninu.
Önnur kanínan var hryggbrot-
in og þurfti strax, í samráði við
lækni af Dýraspítalanum, að
aflífa hana. Hin kanínan var í
svo miklu losti að hún dó um
nóttina.
Köttur, sem var heimilisdýr
í húsinu á móti, fékk lítið betri
meðferð kvöldið eftir. Var þá
spreyjað einhverju efni yfir
feld kattarins. Vegna þess tætti
kisa sig víða, sennilega sökum
sviða, alveg inn að skinni.
Hlaut hún af þessu mikinn
hita, bólgnaði öll upp og varð
mjög skökk. Hún er þó nú öll
að koma til.
„Það er ægilegt að hugsa til
þess að nokkur skuli geta gert
slíka hluti, svona ógeðfellda
og samviskulausa hluti við
saklaus dýrin,“ sagði móðir
drengjanna tveggja, sem áttu
kanínurnar, í samtali við blað-
ið. „Hér hafa óvitar ekki verið
á ferð, heldur krakkar sem
vissu vel hvað þeir voru að
gera,“ bætti hún við.
Gangbrautarljósin sem tekin verða í notkun á morgun kl. 13.
Ljósm.: hbb
Hafnargatan í
Keflavík:
Kveikt á
gangbraut-
arljósum
á morgun
Á morgun, föstudag, kl.
13, verða nýju gangbrautar-
ljósin á gatnamótum Hafn-
argötu og Skólavegar tekin í
notkun. Um er að ræða nýja
gerð ljósa, a.m.k. hvað
Keflavík varðar.
Ljós þessi munu eflaust
koma að góðum notum,
bæði varðandi skólasundið í
vetur og eins vegna þeirrar
miklu umferðar sem orðin er
um Hafnargötuna og þá sér-
staklega á föstudögum.
Heimilistæki fyrir 100 þúsund (eðameira)
Þú greiðir 5000 kr. mánaðariega
Við lánum þér í 24 mánuði - Engin útborgun
Þú færð hvergi betri kjör!
Komdu og verslaðu allan
„pakkann“ í húsið
á greiðslukjörum
sem eiga sér
——~-^vart hlið-
_______———stæðu.
.. r c.CjC C C
ÚTSÖLU Á ÚTILEGU- OG FERÐAVÖRUM ER AÐ LJÚKA
Skólafatnaður á börnin
Úlpur kr. 3.990
kr. 4.490 og 4.690
Buxur kr. 1.890
Bolir kr. 1.590
TILBOÐ:
Bauchnect eldavél og
vifta
49.900 kr.
mMKm