Víkurfréttir - 24.08.1989, Qupperneq 12
\>iKun
12 Fimmtudagur 24. ágúst 1989
BÍLEIGENDUR ATHUGIÐ!
Er bíllinn skítugur eða lakkið orðið
matt? Viðþrífumbílinn,jafntað utan
sem innan, ásamt mössun á lakki.
Fljót og góð þjónusta.
BÓNHÚSIÐ Fitjabakka 1-D Sími 16071 (Við hliðina á Víkurtrc)
ATVINNA
Starfskraftur óskast í laxeldisstöð sem stað-
sett er rétt utan við Hafnir. Þarf að hafa bíl
til umráða. Upplýsingar í vinnusíma 16922
milli kl. 8 og 18.
GJALDHEIMTA
SUÐURNESJA
LÖGTAKSÚRSKURÐUR
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtu Suðurnesja og samkvæmt fógetaúr-
skurði, uppkveðnum 21. þ.m., verðalögtök
látin fara fram fyrir vangoldnum opinber-
um gjöldum utan staðgreiðslu álögðum
1989 í Keílavík, Njarðvík, Grindavík, Mið-
neshreppi, Gerðahreppi, Vatnsleysu-
strandarhreppi og Hafnahreppi, skv. 98.
gr., sbr. 109.' gr. og 110. gr. laga nr.
75/1981, sbr. einnig 8. kafla laga nr.
45/1987.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, verðbætur
á ógreiddan tekjuskatt, eignarskattur, líf-
eyristryggingagjald á atvr. skv. 20. gr.,
slysatryggingagjald atvr. skv. 36. gr.,
kirkjugarðsgjald, vinnueftirlitsgjald, út-
svar, verðbætur á ógreitt útsvar, iðnlána-
sjóðsgjald og iðnaðarmálagj., sérst. skattur
á skrifst. og verslunarhúsn., slysatrygg-
ingagjald v/heimilisstarfa og sérstakur
eignarskattur.
Ennfremur nær úrskurðurinn til hverskon-
ar gjaldhækkana.
Lögtök fyrir framangreindum sköttum og
gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostn-
aði, verða látin fram fara að 8 dögum liðn-
um frá birtingu þessarar auglýsingar, verði
þau eigi að fullu greidd innan þess tíma.
Keflavík, 21. ágúst 1989.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Njarðvík og Grindavík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Jón Eysteinsson (sign.)
Veitingahusið Glóðin:
4uMt
Breyttur bar og
betri efri salur
Fyrir nokkru var lokið við
miklar breytingar á efri sal
veitingahússins Glóðarinnar.
Hefur salurinn verið minnkað-
ur en þrátt fyrir það er hægt að
taka allt að 120 manns í sæti.
„Við höfum lagt nokkra
áherslu á fundi en hjá okkur
eru fundir alla daga og öll virk
kvöld,“ sagði Kristinn
Jakobsson, veitingamaður á
Glóðinni, í samtali við blaðið.
Sagði Kristinn að vinsælt væri
að vera með hádegisverðar-
fundi. Býður Glóðin upp á
hentugan 10-15 manna sal
fyrir þá fundi og er hann not-
aður vel.
-Það hafa orðið breytingar á
barnum.
„Já, jafnframt því að láta
breyta fyrir okkur efri salnum
létum við gera breytingar á
barnum og er hann nú orðinn
meiri pöbb. Það hefur orðið
töluverð aukning á sölu áfeng-
is frá því að bjórinn kom. Hér
koma menn saman og ræða
málin,“ sagði Kristinn.
-Fer fólk mikið út fyrir
svæðið til að koma saman á
veitingahúsi og borða?
„Það er þó nokkuð um að
fólk fari út fyrir svæðið til að
skemmta sér og borða á
góðum veitingahúsum. Oft er
það að fólk kaupir svonefndar
pakkaferðir, sem eru gisting á
hóteli, leikhúsferð og slíkt.
Hér á Suðurnesjum vantar
fjölbreyttara mannlíf. Hug-
myndin hjá okkur á Glóðinni
er að vera með fjölbreyttar
uppákomur nú fyrripart vetr-
ar, því okkar markmið er að
fólk skemmti sér á Suðurnesj-
um.
um.“
Um hálfs árs skeið hefur
Guðmundur A. Jóhannsson
verið yfirveitingastjóri á Glóð-
inni og hefur hann umsjón
með fjjónustuhliðinni. Sagði
hann Suðurnesjamenn vera
fólk sem gerir kröfur um góða
þjónustu. Sagði hann að skipt
væri um matseðla á þriggja
mánaða fresti. Jafnframt sagði
Guðmundur að vínseðillinn
hefði fengið gott orð og sú ný-
breytni sem þar hefur verið
tekin upp. „A seðlinum eru
gefnar helstu lýsingar á öllum
vínum og kann fólk að meta
það og einnig er auðveldara
fyrir fólk að leita að víni fyrir
sinn smekk,“ sögðu Guð-
mundur A. Jóhannsson, yfir-
veitingastjóri, og Kristinn
Jakobsson, veitingamaður, að
endingu.
Kristinn Jakobsson (t.v.) og Guðmundur A. Jóhannsson í efri sal
Glóðarinnar, sem fengið hefur mikla andlitslyftingu. Ljósm.: hbb.
Nýi íþróttas Hin nýja viðbygging iþróttahússins við Sunnu- braut í Keflavík verður form- lega tekin i notkun nk. laugar- dag, 26. ágúst. Bygginga- nefnd hússins hefur í tilefni þess undirbúið íþróttadagskrá sem hefst kl. 16 og stendur til ;alurinn teki kl. 17.30. Að henni iokinni mun unglingakór frá mun unglingakór frá Svens- trup í Danmörku halda tón- leika í „stóra“ salnum. Viðbygging íþróttahúss- ins hefur aðeins verið rúmt ár í byggingu. íþróttabandalag Keflavíkur og bæjaryfirvöld nn í notkun stóðu saman að byggingunni og er það í fyrsta skipti sem slíkt gerist. Með opnun hins nýja salar breytist aðstaða íþróttafólks í Keflavík enn til hins betra en íþróttahúsið annaði engan veginn þeirri eftirspurn og þörf sem orðin var.
Danskur< Níutíu barna söngkór frá Svenstrup í Danmörku kemur til Keflavíkur á morgun og mun halda þrenna tónleika á fimm dögum. Kórinn er í boði æsku- lýðsnefndar Rótarýklúbbs Keflavíkur, sem hefur skipulagt heimsóknina ásamt Tónlistar- skóla Keflavíkur. Kórinn held- ur sína fyrstu tónleika á laugar- stórkör í h dag þegar nýi íþróttasalurinn í Keflavík verður formlega tek- inn i notkun. Síðan heldur kór- inn tónleika í Skálholti á sunnu- dag og síðast kemur hann fram í Langholtskirkju á þriðjudag. Með kórnum syngja Olöf Einarsdóttir (Júlíussonar) úr Keflavík og Jón Már Guð- mundsson úr Garðabæ, en þau eimsókn hafa undanfarnar 3 vikur dvalið í Danmörku og æft með kórn- um. Krakkarnir níutíu munu gista í Holtaskóla en með þeim koma 16 fullorðnir. Verður farið með hópinn um svæðið í skoðunar- ferðir, um Suðurnes, til Reykja- víkur og austur fyrir fjall að Gullfossi og Geysi.
Afmæli Sigurjón Ólafsson, Austur- götu 19, Keflavík, fyrrver- andi vitavörður á Rey kjanes- vita, verður áttræður þann 29. ágúst nk. Hann tekur á móti gestum í húsi Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur þann dag eftir kl. 20. u( lÆÍL V y/ £í 1 jHr'’ Bifhjólaslys Umferðarslys varð á Reykjanesi sl. laugardag. Ökumaður bifhjóls lenti í lausamöl rétt austan Reykja- nesvita með þeim afleiðing- um að hann lenti útaf vegiri- um og slasaðist. Var lögregl- an í Grindavík og sjúkra- flutningsbifreið kölluð til og var farið með hinn slasaða á Borgarspítalann en meiðsli reyndust minniháttar.