Víkurfréttir - 16.11.1989, Page 1
Grindavik:
Lyfjastuldur
og bílvelta
Lyfjum var stolið úr Sig-
rúnu GK 380, þar sem hún lá í
Grindavíkurhöfn á dögunum.
Þurfti lyfjaþjófurinn að brjót-
ast að lyfjakassanom og hafði
síðan á brott með sér nokkurt
magn af lyfjum. Hefur Sigrún
GK legið í höfninni um nokk-
urn tíma og því ekki vitað h ve-
nær þjófnaðurinn átti sér stað.
Jeppabifreið valt á Nesvegi
við Grindavík á sunnudags-
morgun. Engin slys urðu á
fólki en bíllinn er skemmdur.
Nokkrar annir voru hjá
Grindavíkurlögregíunni um
helgina vegna ölvunar.
Keflavík:
Hafnargatan
verði
einstefnugata?
Hafnargatan í Keflavík
verður einstefnugata í þrjá
mánuði í tilraunaskyni frá I.
desember n.k. Var þetta tillaga
umferðamefndar Keflavíkur á
mánudagsmorgun. Verður
einstefnan til suðurs.
Jafnframt var samþykkt í
nefndinni að einstefna skildi
sett á Suðurgötu milli Faxa-
brautar og Vatnsnesvegar til
norðurs. Þá var ennfremur
ítrekuð ósk á fundinunt um að
settarverði einstefnuráGreni-
og Birkiteig.
Sandgerði - Njarðvík
Tvö lítil
brunaútköll
Tvö smá brunaútköll urðu á
Suðurnesjum í síðustu viku. Hið
fyrra varð í bát í Sandgerðis-
liöfn en hið siðara í bilskrjóð í
Njarðvík.
Slökkvilið Miðneshrepps
var kvatt út að m.b. Bolla KE
46, þar sem báturinn lá í Sand-
gerðishöfn. Ekki reyndist hér
um alvarlegan bruna að ræða.
Þá var slökkvilið Brunavarna
Suðumesja kallað út vegna
elds í bílflaki, sem búið var að
setja á vagn til að fara með á
haugana. Var eldurinn fljótt
slökktur.
rgangur
Fimmtudagur 16. nóvember 1989
Hreppsnefnd Hafnahrepps
tók fyrir á síðasta fundi sínum,
sem haldinn var 7. nóvember,
álit sérstakrar nefndar sem
starfaði á vegum sveitarfélags-
ins að sameiningu við Njarð-
vík. Samþykkti hreppsnefndin
álit nefnarinnar sem var svo-
hljóðandi:
„Með tilliti til þess að bæjar-
stjórn Keflavíkur hefur nýver-
ið samþykkt að hefja athugun
á sameiningu sveitarfélaga á
Suðurnesjum og kosið nefnd
til að vinna að verkefninu,
jafnframt var þeim tilmælum
beint til annarra sveitarfélaga
á Suðurnesjum að gera slíkt
hið sama.
Því ályktar nefnd sem hefur
starfað á vegum hreppsnefnd-
ar Hafnahrepps að könnun á
sameiningu Hafnahrepps og
Njarðvíkur að leggja til við
hreppsnefndina að fresta um
sinn viðræðum við fulltrúa
Njarðvíkurbæjar um samein-
ingu tveggja sveitarfélaga."
Á fundinum var jafnframt
samþykkt að skipa þriggja
manna nefnd til að vinna að
könnun meðal íbúa sveitarfél-
agsins um kosti og galla á sam-
einingu sveitarfélagsins við
annað eða önnur sveitarfélög.
Ennfremur var nefndinni falið
að kanna hvort rétt væri að
láta fara fram skoðanakönnun
um málið um leið og kosið
verður til sveitarstjórnar að
vori.
VOGAR:
Atvinnu-
ástand
með besta
móti
„Atvinnuástand hér er með
besta móti og fólk vantar til
fiskvinnslustarfa. Að vísu er
einn á atvinnuleysisskrá,“
sagði Vilhjálmur Grímsson,
sveitarstjóri Vatnsleysu-
strandarhrepps, í samtali við
blaðið.
I dag eru fjögurfiskvinnslu-
hús í gangi í Vogum, þ.e. Vog-
ar h.f., Valdimar h.f., Hafgull
og einnig er hafin fiskvinnsla í
húsi því sem Flugfiskur hafði
áður starfsemi sína í. Þó virð-
ast vera einhverjar blendnar
horfur varðandi það fólk sem
nú starfar við fiskeldisstöðvar í
sveitarfélaginu.
Erfiðleikar fiskeldisfyrirtækja:
Mestir hjá
Suðurnesjastöðvum
Talið er að heildarskuldir
fiskeldisfyrirtækja hér á landi
séu um sex milljarðar. Þar af
skulda fimm til sex fyrirtæki um
þrjá milljarða að sögn DV, sem
er um helmingur skuldanna.
Þau fyrirtæki sem skulda mest
eru Suðurnesjafyrirtækin Is-
landslax og Lindarlax.
Mest virðist bera á erfiðleik-
um fiskeldisfyrirtækja á Suð-
urnesjum. Auk Islandslax,
sem er til gjaldþrotaskipta, og
Lindarlax, sem er með greiðsl-
ustöðvun, er Atlantslax einnig
með greiðslustöðvun. Er talið
að skuldir Lindarlax séu um
einn milljarður króna og hjá
íslandslaxi er talan um 1100
milljónir króna.
Þær stöðvar sem taldar eru
þær stærstu á landinu eru m.a.
Lindarlax á Vatnsleysuströnd
og íslandslax við Grindavík.
Grindavík:
Drengur
skarst illa
Ungur grindvískur drengur
skarst illa seinnipart sunnu-
dags. Hafði drengurinn, sem
er 12 ára, verið að brýna vasa-
hníf er hann hafði í fórum sín-
um. Missti drengurinn hnífinn
þegar brýningin stóð sem hæst
og féll vasahnífurinn í læri
drengsins með þeim afleiðing-
um að stór skurður kom.
Mikið blæddi úr sárinu og
var drengurinn fluttur á
sjúkrahúsið í Keflavík til að-
gerðar. Þurfti að sauraa ellefu
spor.
Lögreglan 1 Grindavík vill
koma þeirri beiðni til foreldra
barna, að ef þeir taka eftir
hnífum eða öðrum vopnum í
fórum barna sinna, þá vin-
samlega að gera viðkomandi
hluti upptæka.
I rá \innu \ið flísalögnina nú í \ikunni.
I.jósin.: hhh
Nýja sundmiðstöðin vígð eftir mánuð
Nú um holginu xorður lokið
við að flísaloggja í nýju sund-
iniðstöð Koflvíkinga, að sögn
llafstoins (luðmundssonar. I'.r
\orkið um mánuði áoftiráætlun
\ogna þoss að flísarnar komu
soinna að utan on \on var á.
Lru l'ramkvæmdir langt
komniir á öðrum þáttum og
því reikmið með iið hægt verði
að tak;i manmirkið i notkun
um miðjan næsta mánuð. Að-
eins stendur nú á tengingu
hreinsilækjii og uppsetningu
innréttinga.
Verður útilaugin 25X12.5
metrar með 5 keppnisbraut-
um. Þá verða þarna barnalaug
og fjórir heitir pottar. I n nán-
ar um það siðiir.
Sameining sveitarfélaga:
HAFNAMENN TAKA AF SKARID