Víkurfréttir - 16.11.1989, Blaðsíða 19
ÍÞRÓTTIR
_________19
Víkurfréttir
16. nóv. 1989
Pílutitillinn áfram á Suðurnesjum
Nk. laugardag verður leikið til
úrslita á íslandsmótinu í pílukasti
og við Suðurnesjamenn munum
eignast Islandsmeistara í karla-
flokknum en þar eru 4héðan eftir í
undanúrslitum, og jafnvel einnig í
kvennaflokknum en Kolbrún
Tóbíasdóttir, Grindavík, leikur
þar til úrslita við Önnu Kristínu
Bjarnadóttur, Reykjavík.
I undanúrslitunum hjá körlun-
um munu Grindvíkingarnir Guð-
jón Hauksson og Ægir Agústsson
(eiginmaður Kolbrúnar) leiða
saman hesta sína í öðrum leiknum
en Óskar Þórmundsson, Keflavík,
og Kristinn Þór Kristinsson,
Sandgerði, i hinum, en síðan verð-
ur úrslitaleikurinn sýndur beint í
íþróttaþættinum í ríkissjónvarp-
inu á laugardag úr Sportklúbbn-
um nýja í Reykjavík.
Við skorum hér með á alla Suð-
urnesjamenn að fylgjast meðokk-
ar fólki og sjá hvort okkur takist
ekki að vinna tvöfalt i einmenn-
ingnum 1989.
Júlíus Ólafsson
Opið hús í Leiru
Golfáhugamenn ætla að hittast í
golfskálanum í Leiru um helgina.
Golfklúbbur Suðurnesja er nýbú-
inn að festa kaup á gervihnatta-
móttakara og ætla félagar m.a. að
fylgjast með beinum útsendingum
frá hcimsmeistarakeppninni í gotfi
sem fram fer á spænska vellinum
Las Brisas um helgina. Útsending-
ar verða frá kl. 20 á föstudags-
kvöld ogfrákl. 12áhádegilaugar-
dag og siwtnudag. Kylfingar geta
einnig tekið pútterinn með til að
halda púttunum við i vetur. Veit-
ingar verða á boðstólum.
Ársþing og aðalfundir
Ársþing ÍBK verður haldið
á Glóðinni laugardaginn 25.
nóvember nk. og hefst kl. 10.
Aðalfundur knattspyrnudeild-
ar UMFG verður í félagsheim-
ilinu Austurvegi 3 sunnudag-
inn 19. nóv. oghefst kl. 16. Þá
verður Knattspyrnufélag Kefl-
avíkur, KFK, með aðalfund
sinníkvöld. 16. nóv.,ííþrótta-
vallarhúsinu.
Gunnar Vilbergsson hefur
jafnað met Júlíusar Baldvins-
sonar, Getraunaspekings Vík-
urfrétta 1989, og tippar nú í
áttunda skiptið í röð. And-
stæðingur hans, Olafur Jóns-
son, er nú með í þriðja skipti,
eftir tvö jafntefli við Gunnar.
„Nú er mér óhætt að tapa, er
það ekki?“ sagði Gunni. „Þó
hef ég aldrei getað hugsað
svona, þannig að ég held auð-
vitað ótrauður áfram og stefni
á níunda skiptið." „Ur því
Gunni er búinn með þessi átta
skipti þá er best að afgreiða
hann. Þetta er orðið ágætt hjá
honum,“ sagði Olafur.
Annað skiptið í röð eru að-
eins fjórir leikir ekki eins hjá
þeim félögum. Þeir voru báðirl
með 4 rétta i síðustu leikviku'
og reyna nú með sér í þriðja
skipti...
G. Ó.
M’Gladbach-B.Uerding. X 1
Arsenal-Q.P.R. 1 1
Aston Villa-Coventry 1 1
Chelsea-Southampton 1 1
C.Palace-Tottenham 2 2
Derby-Sheff.Wed. 1 1
Everton-Wimbledon 1 1
Luton-Man.Utd. 1 2
Man.City-Nott.For. 2 2
Norwich-Charlton 1 1
Portsmouth-W.B.A. X 1
Wolves-Blackburn 1 X
Jónas Sævarsson, Jótlands-
meistari í knattspyrnu.
Sandy sveif yfir 4 stóla
Það var mikið húllumhæ í íþróttahúsi Njarðvíkur sl. þriðjudags-
kvöld. Þá fór fram körfuknattleiksviðureign milli tveggja úrvalsliða,
skipuðum erlendu leikmönnunum og nokkrum leikmönnum i ÍBK og
UMFN. Troðslukeppni var í hálfleik og sýndi þá Sandy Anderson,
kcflvíski leikmaðurinn, tilþrif sem ekki hafa sést hér á landi áður.
Hann stökk yfir 4 stóla og tróð cins og ekkert værj og varð Troð-
kóngur kvöldsins. Falur Harðarson stóð, sig best íslendinganna í
troðslunni og sýndi skemmtilega takta. Á myndunum hér að ofan
sjáum við tilþrifin hjá Sandy. Ljósm.: pket.
Ólafur
Ungur Keflvíkingur, Jónas
Sævarsson, sem er aðeins 6 ára
varð sl. sumar Jótlandsmeist-
ari í knattspyrnu með liði sínu
FC Horsens. Jónas hefur æft
knattspyrnu með þessu liði og
hefur faðir hans, Sævar Pét-
ursson, sem stundar nám í
byggingaverkfræði í Dan-
mörku, farið með honum áæf-
ingar hjá danska liðinu. Kefl-
víkingurinn ungi var í byrjun í
b-liðinu en var svo daginn fyr-
ir mótið tekinn í a-liðið sem
síðan sigraði í mótinu.
FC Horsens, Jótlandsmeistarar i 6
ára flokki. Jónas er lengst t.h. í
neðri söð.
vi krnrnr
Gunnar
Verða ÍBK og ÍS
sameinuð?
Á aðalfundi íþróttabandalags
Suðurnesja í golfskálanum i Leiru
sl. laugardag bentu fundarmenn á
að timabært væri að liuga að sam-
einingu 1S og Iþróttabandalags
Keflavíkur. Ekki væri um að ræða
sameiningu félaganna innanbanda-
laganna 'heldur fyrst og fremst
bandalaganna sjálfra. Þó myndi
þessi sameining ýta undir aðrar hjá
ýmsum deildum. Má nefna að þegar
hafa sunddeildir ÍBK og UMFN
vcrið sameinaðar undir nafninu
Suðurnes og þá hafa tveir flokkar í
hundknattleiksdcildum ÍBK og
UMFN verið sameinaðir. Á næsta
ári stefna forráðamenn handbolt-
ans í Keflavík og Njarðvík að því að
sameina alla flokka undir einu
nufni. v
Ungur Keflvíkingur
Jótlandsmeistari