Morgunblaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015 6 BÍLAR Þ að mun reyna á þolrif Norðmanna sem eru að spá í kaup á nýja Merce- des GLC jeppanum. Séu þeir að tvístíga um þessar mund- ir þurfa þeir að bíða fram í mars 2017 að minnsta kosti eftir ein- taki af slíkum bíl. Öðru hverju kemur upp sú staða að áætlanir bílaumboða um pantanir í nýja bíla eru ekki í samræmi við væntingar mark- aðarins til sömu bíla. Getur af því skapast viss ringulreið er sólgnir kaupendur eru á ferðinni. Óhætt er að segja að þetta eigi á við um Mercedes-umboðið í Noregi hvað GLC-jeppann varðar. Sá kvóti sem það hefur fengið af bílunum, að eigin óskum, dugar hvergi. Norðmenn bíða í röðum eftir nýja bílnum og munu reyndar ekki vera þeir einu. Kvóti norska umboðsins 2016 hljóðar upp á 1.100 bíla sem mun vera langtum minna en markaður er fyrir. Býst umboðið meira að segja við að hafa selt alla þessa jeppa áður en næsta ár rennur upp! Er svo komið að þeir sem panta eintak í dag verða að bíða fram í vetr- arlok 2017 eftir sínum bíl. Vegna hinnar miklu eftir- spurnar í Noregi og víðar hefur Mercedes-Benz hert á fram- leiðslu GLC-jeppans, sem komið hefur eins og stormsveipur inn á bílamarkaðinn. Er hann nú smíð- aður í samsetningarsmiðju í Þýskalandi á þremur vöktum, all- an sólarhringinn. Segja má að hér sé um „lúxusvandamál“ að ræða fyrir Mercedes-fyrirtækið en neikvæða hliðin á því er sú að verulegar líkur eru á að kaup- endur snúi annað vegna hins langa afgreiðslufrests. Um helmingur af pöntunum í GLC-jeppann í Noregi er í tvinn- bílinn GLC 350e. Fyrstu eintökin af honum eru væntanleg þangað á öðrum ársfjórðungi 2016. Slíkur bíll kostar í Noregi tæpar 600.000 krónur, jafnvirði tæpra níu milljóna íslenskra króna. Um er að ræða 320 hestafla jeppa sem uppgefið brúkar aðeins 2,6 lítra á hundraðið með samspili vélar og rafmótors við bestu að- stæður. Á rafmótornum einum dregur hann um 40 kílómetra. agas@mbl.is Pantaðu bílinn í dag og fáð’ann í mars 2017 GLC-jeppinn frá Mercedes-Benz hefur komið sem stormsveipur inn á bílamarkaðinn. B ílsmiðurinn NEVS, móð- urfélag Saab-verksmiðj- anna sænsku, hefur fengið pöntun í smíði 150.000 rafbíla af gerðinni Saab 9-3. Það er kín- verska fyrir- tækið Panda New Energy sem samið hef- ur við NEVS um smíðina miklu. Um er að ræða samning að verðmæti um 8,5 milljarða enskra sterl- ingspunda. Saab hefur ekki átt sjö dag- ana sæla og eft- ir að kínverskir aðilar tóku það yfir hefur staðið á fjármögnun starf- seminnar til að koma fjöldafram- leiðslu að nýju í gang. Með samningnum við Panda New Energy eru horfurnar í rekstrinum mun betri. Auk Saab 9-3 bílanna hefur fyrirtækið pant- að 100.000 aðra rafbíla hjá NEVS en þeir og fyrrnefndir 150.000 bílar eiga koma til afhendingar á næstu fimm árum, fyrir árslok 2020. Panda New Energy er nýtt fyr- irtæki er leigir út rafbíla í sam- starfi við félög bílstjóra. Tilgang- urinn er að bjóða upp á mengunarfríar samgöngur um gjörvalla Kína, en gríðarlegur markaður er talin fyrir hendi þar í landi vegna gríðarlegrar loftmeng- unar. agas@mbl.is Panta 150.000 Saab-rafbíla Kínverjar vilja sporna við gríðarlegri loftmengun þar í landi og 150.000 Saab-rafbílar eiga að hjálpa þar til. Á Saab sér loksins viðreisnar von? AFP N issan Leaf fagnar fimm ára afmæli um þessar mundir. Heldur Nissan því fram að á þessum tíma hafi eigendur Leaf lagt að baki meira en tvo milljarða kíló- metra. Samsvarar þessi mengunar- lausi akstur 2.600 ferðum til tunglsins og til baka. Leaf er hreinn rafbíll og sá mest seldi í veröldinni. Að sögn Nissan hefur Leaf á þessu tímabili sparað jarðarbúum 328.482 tonn af gróðurhúsalofti, koltvíildi, miðað við bíl sömu stærðar með vél er gengur fyrir jarðefnaeldsneyti. Í janúar næstkomandi mun Nissan svo fagna öðrum áfanga, en þá verður 200.000 Leaf-bíllinn afhentur. Bílnum hefur verið vel tekið en að sögn Nissan er hann í stöðugri þróun og endurnýjun. Nýleg uppfærsla hefur aukið drægi Leaf í 250 kílómetra. Forstjóri Nissan, Carlos Ghosn, segir að frekari betrumbætur eigi eftir að eiga sér stað á Nissan Leaf. „Rafbílatækni verður áfram lykilþáttur í þróunarstarfi okkar. Með tækni sem við erum að skapa verða ferðalög öruggari, hreinni og meira spennandi, slíkur er kraftur nýjunganna. Og það er það sem menn eiga að vænta frá Niss- an,“ segir Ghosn. agas@mbl.is Nissan Leaf fagnar fimm ára afmæli Nissan Leaf hefur sparað andrúmsloftinu mikið gróðurhúsaloft, samtals um 330.000 tonn af koltvíildi. M inna er meira“ sagði þýski arkitektinn og húsgagnahönnuðurinn Ludwig Mies van der Rohe. Honum myndi því eflaust þykja þetta hjól frá Bandit9 heill hell- ingur þar sem það er ekki neitt neitt! Bandit9 eru vanir að smíða mótorhjól sem tekið er eftir og nægir í því sambandi að nefna módel á borð við Nero MKII, The Bishop og núna þetta silf- urlitaða listaverk sem nefnist Ava. Hún sver sig í ættina því hjólin frá fyrirtækinu eru iðulega list sem má hjóla á. Aðeins níu stykki smíðuð Eflaust munu færri komast að en vilja þegar hjól- in verða sett á sölu því aðeins níu eintök voru smíðuð í það heila. Grunnurinn er 125cc Honda Supersport en boddíið er handsmíðað úr hápóleruðu stáli, eins og sjá má, enda geta sællegir og stálheppnir eigendur speglað sig um leið og þeir dást að nýja hjólinu sínu. jonagnar@mbl.is Það verður ekki minna – eða eigum við að segja meira – af öllu þegar mótorhjól eru annars vegar. Minna er svo miklu meira Bandit9 smíða hjól í knöppum stíl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.