Morgunblaðið - 22.12.2015, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
BÍLAR 7
Þ
riðja árið í röð eru
Mazda-bílar þeir skil-
virkustu í notkun elds-
neytis af öllum bílum
sem prýða bandaríska vegi, að
sögn Umhverfisstofnunar
Bandaríkjanna (EPA).
Um er að ræða bíla af árgerð-
inni 2014 en að sögn EPA er
Mazda ennfremur í fylking-
arbrjósti bíla af ágerðinni 2015,
samkvæmt bráðabirgðanið-
urstöðum stofnunarinnar fyrir
árið í ár.
Reyndust bílar Mazda af ár-
gerðunum 2012 og 2013 einnig
þeir skilvirkustu á vegum
Bandaríkjanna, samkvæmt mæl-
ingum og útreikningum EPA.
Þetta er að þakka einstakri
nálgun Mazda í að auka spar-
neytni bíla sinna og eldsneyt-
isnýtni, með svokallaðri Skyac-
tiv-tækni.
Fyrir öll bílamódel Mazda af
árgerðinni 2014 sem seld eru í
Bandaríkjunum reyndist með-
aleyðslan vera 8,0 lítrar elds-
neytis á hundrað kílómetra. Er
það 5% bæting frá módelárinu
2013. Losun koltvíildis nam 188
g/km sem er 9% lækkun milli
ára.
Til samanburðar var meðal
eldsneytisnotkun allra bíla á
bandarískum vegum 9,7 lítrar á
hundraðið og losun koltvíildis
227 g/km.
Það fylgir fréttum, að tölur
EPA um eldsneytisnotkun bíla
endurspegli betur raunveruleik-
ann en NEDC-tölur sem brúk-
aðar eru í Evrópu.
agas@mbl.is
Mazda-bílar
þeir skilvirkustu
Mazda 3 af árgerðinni 2014 nýtir dropann vel.
B
estu bílkaupin árið 2016
eru í nýliðanum Fiat
Tipo, samkvæmt nið-
urstöðum dómnefndar
Autobest-verðlaunanna.
Tipo hafði betur í harðri keppni
við Opel Astra hinn nýja en aðeins
munaði sjö stigum á bílum þess-
um þegar upp var staðið. Tipo
fékk samtals 1.492 stig hjá 26
manna dómnefndinni og Astra
1.485 stig.
Í þriðja sæti varð svo Hyundai
Tucson með 1.145 stig, næst á
undan Honda HR-V (1.067) og
Mazda CX-3 (1.051).
Sigurinn er sá þriðji sem Fiat
hampar í sögu verðlaunanna ár-
legu sem fyrst voru veitt 2002.
Samtökin Autobest voru stofnuð
árið 2001 í þeim tilgangi að út-
nefna árlega bíl sem að mati dóm-
nefndar felur í sér bestu bílkaupin
í Evrópu. Í dómnefndinni að þessu
sinni sátu 26 bílablaðamenn frá
jafnmörgum Evrópulöndum, sem í
býr 91% íbúa álfunnar.
agas@mbl.is
Bestu kaupin
í Fiat Tipo
Bestu bílkaupin eru í Fiat Tipo, að mati Autobest.
stig og varð til að mynda ofar
Mercedes B250e (154 stig) og
Belgísku bíleigendasamtökin
VAB hafa valið Renault Zoe
R240 sem fjölskyldubíl ársins
2016 í flokki rafbíla.
Þetta er 29. árið í röð sem
viðurkenningin er veitt en í
dómnefnd sitja 25 blaðamenn
og 78 venjulegar fjölskyldur.
Í umsögn VAB segir að lág-
marksdrægi Zoe hafi aukist um
30 kílómetra. Fyrir utan sigur í
flokki hreinna rafbíla var bíln-
um einnig teflt fram gegn
tvinnbílum og bílum með dræg-
isauka. Þar hlaut Zoe R240 159
Kia Soul (147 stig).
Í niðurstöðum blaðamann-
anna var „rúmgott innanrými,
djörf hönnun og óskákanlegt
verð“ bílsins tiltekið sér-
staklega. Fjölskyldudómurinn
sagði Zoe á afar viðráðanlegu
verði og hann væri praktísk
lausn sem fjölskyldubíll númer
tvö. Sérstök dómnefnd barna
hrósaði bílnum fyrir netta yf-
irbyggingu, aksturseiginleika,
þægindi aftursæta og „falleg
ljós“.
agas@mbl.is
Þessi Zoe rafbíll er eins og sprott-
inn út úr stjörnustríðsmynd.
Zoe fjölskyldubíll ársins meðal rafbíla
S
koda er um þessar
mundir að þróa nýjan
sjö manna jeppa sem
verður stærðinni fyrir
ofan jepplinginn Yeti. Áætlað er
að frumsýna nýja jeppann í Par-
ís næsta haust.
Komnar eru á kreik sögur af
því hvað bíll þessi muni heita og
hefur því meðal annars verið
fleygt að nafnið verði annað
hvort Skoda Snowman eða
Skoda Polar.
Hvort tveggja væri sennilega
við hæfi, en samkvæmt heim-
ildum þýska bílaritsins Autobild
hefur Skoda nú nýverið ákveðið
nafnið. Muni hinn nýi jeppi heita
Skoda Kodiak.
Hann er byggður upp af MQB-
undirvagninum frá Volkswagen.
Hann verður með drifi á fram-
hjólum sem staðalbúnað en bíll
með drifi á öllum fjórum mun
einnig verða í boði.
Lítið hefur verið látið uppi um
tæknilega hlið jeppans. Búist er
við að Skoda brúki í honum
sama vélaval og á við um Oc-
tavia og Superb-bílana. Þar á
meðal eru 2ja lítra dísilvél og 1,8
lítra bensínvél sem tengjast
annað hvort sex hraða hand-
skiptingu eða sjö hraða DSG-
skiptingu.
Kodiak mun byrja að renna af
færiböndum bílsmiðjunnar í
Kvasyni í Tékklandi undir árslok
og koma þá á markað í Evrópu.
Hann kemur til með að keppa
um hylli kaupenda við annan bíl
úr stalli Volkswagensamsteyp-
unnar, Tiguan.
agas@mbl.is
Kodiak heitir
nýr jeppi Skoda
Skoda Kodiak verður stærðinni yfir Yeti.
Hinn splunkunýi Honda Civic,
árgerð 2016, bætti á sig tveim-
ur blómum er hann var valinn
bíll ársins í tvígang í síðustu
viku.
Fyrst var bíllinn útnefndur
„AutoGuide.com bíll ársins“ sl.
miðvikudag. Það var ekki nóg
því daginn eftir hreppti Civic
viðurkenninguna „besti smá-
stallbakur ársins“ af hálfu sam-
taka spænskumælandi bílafjöl-
miðla í Bandaríkjunum.
Um er að ræða fyrsta liðs-
mann tíundu kynslóðar Honda
Civic. Hermt er að í hönnun
hans og þróun hafi verið lagt
miklu meira púður en í nokkurn
annan ættlið Civic og reyndar
meiri kraftur en settur hefur
verið í nokkurn annan Honda-
bíl.
Hönnun og þróun nýjasta
Honda Civic átti sér stað í
starfsstöðvum Honda í Banda-
ríkjunum, en það mun vera í
fyrsta sinn í sögu bílsins að
hann er hannaður utan Banda-
ríkjanna.
agas@mbl.is
Honda Civic landar
tvennum verðlaunum
Honda Civic hefur löngum verið hátt skrifaður.
Ýmislegt
Smáauglýsingar
Bílar
L200 til sölu
Mjög góður pallbíll með krómgrind á palli
og pallhús fylgir með. Rafmagns loftdæla,
35 tommu dekk. Óryðgaður að norðan.
Sími 8933185.
Volvo S80 2.0 turbo árgerð 2000 til sölu
Ekinn 208 þ. km, 2 eigendur frá upphafi.
Góð þjónustubók fylgir með. Skoðaður
2016. Vetrar- og sumardekk fylgja. Gott
eintak. Verð 750 þ. kr.- Uppls. 663-4584
YRSA - veglegt og mjög vandað
armbandsúr
YRSA Reykjavík er sjálfvinda með 2ja ára
ábyrgð á frábæru verði, 48.700 kr. Jólagjöf
karlsins! Póstsendum,
ERNA, Skipholti 3, s. 552 0775,
nánar á: www.erna.is