Morgunblaðið - 03.02.2016, Page 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016
Landsliðs-maðurinn
Emil Hall-
freðsson verður
í leikmannahópi
ítalska knatt-
spyrnuliðsins
Udinese í fyrsta
sinn í kvöld þeg-
ar liðið sækir
Empoli heim í ítölsku A-deildinni.
Emil skrifaði undir samning við Ud-
inese á laugardaginn en var í leik-
mannahópi liðsins í markalausu jafn-
tefli gegn Lazio. Emil mun spila í
treyju með númerinu 55.
Þýski handknattleiksmaðurinnPascal Hens er genginn í raðir
danska liðsins Midtjylland og verður
þar samherji Vignis Svavarssonar
til vors en Vignir mun síðan ganga í
raðir Tvis Holstebro. Hens er 35 ára
gamall og var án félags eftir að
þýska liðið Hamburg var tekið til
gjaldþrotaskipta í síðasta mánuði en
hann lék með liðinu frá 2003. Hens
lék 199 leiki með þýska landsliðinu
en hann hætti að spila með því fyrir
fjórum árum.
Rússneski knattspyrnumaðurinnAndrei Arshavin sem gerði
garðinn frægan með liði Arsenal
íhugar nú að leggja knattspyrnu-
skóna á hilluna eftir að félag hans í
Rússlandi, Kuban Krasnodar, rifti
samningi sínum við hann en hann
gekk í raðir þess í júlí á síðasta ári.
Arshavin, sem er 35 ára gamall, lék
engan mótsleik með liðinu. Hann lék
í fimm ár með Arsenal frá 2009 til
2013 og skoraði 23 mörk í 105 deild-
arleikjum með Lundúnaliðinu.
Talant Dujs-hebaev hef-
ur verið rekinn úr
starfi landsliðs-
þjálfara Ung-
verjalands í
handknattleik
karla eftir stuttan
tíma í starfi. Ung-
verska landsliðið
náði sér ekki á strik á Evrópumeist-
aramótinu í Póllandi og var langt í
sæti í forkeppni ÓL.
Íslenska karlalandsliðið í bandýmætir í dag Rússlandi í fyrsta
leik sínum í undankeppni heims-
meistaramótsins í Nitra í Slóvakíu.
Þetta er fyrsta stórmót liðsins frá
upphafi. Þjálfari er Elmar Guð-
brandsson en Andreas Stefansson,
leikmaður Järfälla í Svíþjóð og mik-
ill markaskorari í næstefstu deild
þar í landi, er lykilmaður liðsins.
Einnig er leikið við Slóvakíu, heims-
meistaralið Svíþjóðar, Frakkland og
Belgíu en tvö efstu liðin komast í
lokakeppni HM.
Málfríður Erna Sigurðardóttirúr Breiðabliki hefur verið val-
in í 27 manna æfingahóp A-landsliðs
kvenna í knattspyrnu fyrir vináttu-
leik í Póllandi 14. febrúar. Tæp fimm
ár eru síðan Málfríður lék síðast með
landsliðinu en hún á 22 landsleiki að
baki. Fjórtán nýliðar eru í hópnum
sem sjá má í heild á mbl.is/sport/
fotbolti.
Fólk folk@mbl.is
SUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Á Ólympíuleikunum í London árið
2012 tefldi Ísland fram sveit í boð-
sundi í fyrsta skipti á Ólympíuleikum.
Þá syntu þær Eygló Ósk Gústafs-
dóttir, Eva Hannesdóttir, Hrafnhild-
ur Lúthersdóttir og Sarah Blake
Bateman 4x100 metra fjórsund. Ís-
lenska sveitin vann sér keppnisrétt á
leikunum með góðum árangri á EM
sumarið 2012.
Ísland kemur einnig til með að
reyna að koma sveit á leikana í Ríó í
sumar. Sextán sveitir komast í boð-
sundskeppni leikanna og tólf eru þeg-
ar öruggar um sæti. Fyrirkomulagið
er í raun þannig að sextán bestu sveit-
um heims er boðið á leikana en ein-
ungis einni frá hverju landi. Ísland
kemur til með að reyna að koma sér í
hóp sextán bestu með þátttöku í
greininni á EM í 50 metra laug í maí.
Eva og Sarah hættar
Íslendingar munu ekki tefla fram
sömu sveit og fyrir fjórum árum því
nú verða þær Eva og Sarah ekki með
þar sem þær eru hættar keppni. Eva
synti skriðsundið og Sarah flug-
sundið. Báðar þóttu þær synda vel í
London. Eva synti hraðar en hún
hafði gert á EM og Sarah var í góðu
formi á leikunum en hún komst næst
því að komast í undanúrslit af íslenska
sundfólkinu.
Eygló og Hrafnhildur hafa báðar
bætt sig mjög frá því í London. Sést
það til dæmis á því að þær komust
ekki í undanúrslit á Ólympíuleikunum
en fóru alla leið í úrslitasund á HM í
fyrra. Á þessu er gríðarlega mikill
munur. Í boðsundinu fá þær vænt-
anlega að synda sínar uppáhalds-
greinar, Eygló í baksundi og Hrafn-
hildur í bringusundi. Íslenska sveitin
er að þessu leytinu til sterkari því þær
synda nú mun hraðar en árið 2012.
Hverjar skipa sveitina?
Spurningin er hvaða sundkonur
gætu verið með þeim í sveitinni. Fjög-
ur nöfn koma fyrst upp í hugann:
Bryndís Rún Hansen, Inga Elín
Cryer, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
og Jóhanna Gerða Gústafsdóttir.
Bryndís og Ingibjörg synda báðir
skriðsund en Jóhanna og Inga synda
báðar flugsund. Ef til vill stendur bar-
áttan á milli þeirra í þessum tveimur
greinum. Á HM í Rússlandi í fyrra
voru þær Bryndís og Jóhanna með
þeim Eygló og Hrafnhildi í boðsund-
inu.
Auk þess er sá möguleiki fyrir
hendi að Eygló og Hrafnhildur verði
færðar til og látnar synda annað en
sínar uppáhaldsgreinar. Það væri þá
gert ef menn telja að það skili sveit-
inni hraðari tíma. Slíkar vangaveltur
eru í raun bara reikningsdæmi eins og
einn viðmælandi Morgunblaðsins
komst að orði.
Betri tími á HM en á ÓL
Morgunblaðið ræddi lítillega við
landsliðsþjálfara Íslands, Jacky Pell-
erin, um boðsundið á dögunum. „Á
HM í Rússlandi bætti sveitin Íslands-
metið og tíminn var nærri tveimur
sekúndum betri en á ÓL í London.
Sem er býsna góður tími en aðrir eru
einnig að bæta sig í sundheiminum.
Við eigum möguleika og munum
reyna að koma sveit á leikana í Ríó.
Hrafnhildur er auðvitað miklu hraðari
en fyrir fjórum árum og Eygló einnig.
Eykur það möguleika okkar. Flug-
sundsspretturinn þarf líklega að vera
undir mínútu og skriðsundssprett-
urinn í kringum 54 eða 55 sekúndur,“
útskýrði Pellerin og benti á að eftir
EM í maí gæfust fá tækifæri til þess
að ná góðum tíma í boðsundi á við-
urkenndu móti.
Sá á kvölina sem á völina
Pellerin mun væntanlega standa
frammi fyrir því að velja sveitina, með
hliðsjón af árangri þessara kvenna
sem hér hefur verið minnst á, næstu
vikur og mánuði. Til dæmis mun Ís-
landsmótið í 50 metra laug í apríl
væntanlega hafa töluvert að segja.
„Jú jú, þetta er skylda mín sem
landsliðsþjálfara. Við óskum eftir
upplýsingum um frammistöðu okkar
fólks í Bandaríkjunum en gerð er
krafa um að þau mæti á Íslandsmótið.
Þar sjáum við betur hversu raunhæf-
ur möguleiki það er að komast aftur á
Ólympíuleika með boðsundssveit,“
sagði Pellerin við Morgunblaðið en á
leikum þar sem karlalandsliðið í hand-
bolta er ekki með, eins og í Ríó, þá
munar um hvern einstakling í hópnum
sem fer frá Íslandi á leikana.
Boðsundssveitin mun
reyna við Ríó í sumar
Morgunblaðið/Golli
ÓL í London Boðsundssveitin sem keppti á Ólympíuleikunum árið 2012. Eva Hannesdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir,
Sarah Blake Bateman og Eygló Ósk Gústafsdóttir í Aquatics Centre-sundhöllinni.
Talsverð samkeppni um tvær stöður í sveitinni Synda 4x100 metra fjórsund
Boðsund
» Ísland átti sveit í boðsundi í
fyrsta skipti á Ólympíuleikum
þegar þeir fóru fram í London
fyrir fjórum árum.
» Íslenska sveitin synti 4x100
metra fjórsund á 4:07,09 mín-
útum í London.
» Stendur nú til að reyna að
komast aftur inn á leikana í Ríó
í sumar í sömu grein.
» Íslenska sveitin setti Ís-
landsmet í greininni á HM í
Rússlandi í fyrra á tímanum
4:04,43 mínútur.
Ísland vann Skotland, 3:0, í fyrri vin-
áttulandsleik landsliða í knattspyrnu,
skipaðra stúlkum 17 ára og yngri, í
Egilshöll í gærkvöldi.
Ásdís Karen Halldórsdóttir skor-
aði eina mark fyrri hálfleiks á sjöttu
mínútu. Hlín Eiríksdóttir skoraði
annað mark íslenska liðsins á 52.
mínútu áður en Sólveig Jóhann-
esdóttir Larsen innsiglaði sigurinn,
3:0, á 75. mínútu.
Eins og tölurnar gefa til kynna þá
hafði íslenska liðið tögl og hagldir í
leiknum frá upphafi til enda.
Liðin mætast aftur í Egilshöllinni
á morgun, fimmtudag, og þá verður
flautað til leiks klukkan 13.
Leikirnir eru liðir í undirbúningi
beggja liða fyrir milliriðlakeppni EM
sem fram fer í Serbíu í lok mars. Þar
leikur Ísland við Belgíu, England og
Serbíu um eitt sæti í lokakeppninni.
Þjálfari íslenska landsliðsins er
Freyr Alexandersson, sem jafnframt
er þjálfari A-landsliðs kvenna.
sport@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skoraði Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði fyrsta mark íslenska landsliðsins í leiknum við Skota.
Þriggja marka
sigur á þeim
skosku
Austur-Evrópudeildin
Veszprém – Nexe................................. 39:21
Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Veszprém.
Veszprém frá Ungverjalandi er með 34
stig eftir 12 leiki, Vardar Skopje frá Make-
dóníu er með 34 stig eftir 14 leiki og Zagreb
frá Króatíu er með 30 stig eftir 13 leiki í
toppsætum deildarinnar. Gefin eru þrjú
stig fyrir sigur í deildinni.
Svíþjóð
Malmö – Aranäs................................... 33:11
Leó Snær Pétursson skoraði ekki mark
fyrir Malmö.
HANDBOLTI