Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016
Þá er Alfreð Finnbogason
kominn í þýsku 1. deildina og
þarnæsta sunnudag gæti hann
fengið það verkefni að reyna að
koma boltanum framhjá Manuel
Neuer í marki Bayern München.
Það er ekki beinlínis auðvelt verk
en eins ótrúlegt og það nú er þá
hefur aðeins níu leikmönnum (!)
tekist að skora hjá Neuer í 19
umferðum þýsku deildarinnar í
vetur, og engum oftar en einu
sinni.
Alfreð flytur nú til sjötta
landsins síðan hann yfirgaf her-
búðir Breiðabliks fyrir sex árum.
Svona er líklega heimur atvinnu-
manns í knattspyrnu í dag. Menn
eru minna í því að festa rætur en
áður. Alfreð hefur hins vegar allt-
af sýnt nýjum vinnuveitendum
og stuðningsmönnum virðingu
og var til að mynda farinn að tjá
sig á basknesku við fréttamenn
eftir örfáar vikur hjá Real Socie-
dad!
Auðvitað fannst manni að
hann hefði átt að fá betra tæki-
færi til að sanna sig á Spáni, og
svo sannarlega á Grikklandi
einnig. Alfreð var hins vegar svo
óheppinn að meiðast við upphaf
dvalar sinnar á Spáni og það
setti stórt strik í reikninginn. Á
nýjum slóðum þarf maður að fá
tækifæri og tíma til að sanna sig,
en sá tími er ekki alltaf í boði.
Alfreð bauðst einnig að flytj-
ast til Kanada og spila í MLS-
deildinni en hafnaði því. Það
hefði mér líka þótt rangt val á
þessum tímapunkti. Hann á frek-
ar heima í einni af bestu deildum
heims og vonandi fær hann að
festa sig þar í sessi. Nái hann sér
vel á strik í Þýskalandi aukast
líkurnar á að hann taki sér stöðu
við hlið Kolbeins Sigþórssonar í
framlínu Íslands gegn Portúgal í
fyrsta leik á EM, en í dag virðist
sú staða einna „opnust“ í byrj-
unarliði Íslands.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
17. UMFERÐ
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Þrátt fyrir að úrslit leikja í Olís-deild
kvenna hafi ansi mörg verið ófyrir-
sjáanleg þennan veturinn og keppni
hörð, voru líklega engin úrslit eins
óvænt og þegar liðið í næstneðsta
sæti, FH, lagði eitt af toppliðunum,
Val, að velli í Kaplakrika síðastliðið
föstudagskvöld, 26:24. Heiðdís Rún
Guðmundsdóttir átti stóran þátt í
því en þessi 23 ára gamla, rétthenta
skytta skoraði sjö mörk gegn sínu
gamla liði.
„Hún átti toppleik og stóð sig
rosalega vel. Þetta var með betri
leikjum í vetur hjá henni. Þetta er
búinn að vera frekar erfiður vetur
hjá okkur en það hefur verið smá-
stígandi í þessu og sérstaklega hjá
henni. Hún er búin að eiga nokkra
góða leiki í röð núna eftir áramótin,“
sagði Ingibjörg Pálmadóttir, liðs-
félagi Heiðdísar, sem Morgunblaðið
leitaði álits hjá varðandi Heiðdísi.
Martraðarárið 2012
Heiðdís steig fram á sjónarsviðið í
efstu deild með FH, sem er hennar
uppeldisfélag. Hún er dóttir Bjargar
Gilsdóttur, fyrrverandi landsliðs-
konu í handbolta, og Guðmundar
Karlssonar, fyrrverandi hand-
boltaþjálfara og sleggjukastara.
Heiðdís gekk til liðs við Val árið 2011
og elti þangað eldri systur sína,
Ragnhildi Rósu. Dvölin hjá Val, sem
þá var besta lið landsins og vann
flesta titla sem í boði voru, snerist
hins vegar upp í hálfgerða martröð.
Heiðdís sleit krossband í hné í mars
2012 og á fyrstu æfingu eftir að hún
hafði jafnað sig sleit hún hásin.
Heiðdís vann sig upp úr þessum
meiðslum, skipti aftur yfir til FH og
hefur leikið stórt og sístækkandi
hlutverk þar síðustu þrjú ár. Hún er
markahæst hjá FH í vetur með 71
mark í 17 leikjum, skoraði 73 mörk í
22 leikjum á síðustu leiktíð og 47
mörk í 21 leik þar áður.
„Hún er mjög flott í vörn og svo er
afar erfitt að stoppa hana þegar hún
leggur af stað í sókninni. Hún fer
þetta á hörkunni en spilar líka vel
með öðrum,“ sagði Ingibjörg um
samherja sinn.
Spilaði hún nefbrotin?
„Utan vallar er hún voðalega blíð
en það á kannski ekki alveg við inn-
an vallar. Hún er ákveðin og hörð
þegar það á við. Hún er mjög mikil-
vægur partur af liðinu og getur svo-
lítið stýrt liðsorkunni. Það er mikil-
vægt að hún sé í góðu standi,“ sagði
Ingibjörg, og bætti við að vonandi
yrði Heiðdís leikfær þegar FH færi
til Vestmannaeyja um helgina og
mætti þar ÍBV á laugardag. Heiðdís
fékk nefnilega vænt högg á andlitið
frá Kristínu Guðmundsdóttur í
leiknum á föstudaginn, og var óttast
að hún hefði jafnvel nefbrotnað. At-
vikið átti sér stað tiltölulega
snemma í seinni hálfleik en Heiðdís
sneri aftur inn á völlinn og kláraði
leikinn engu að síður.
„Vonandi er hún ekki nefbrotin,
en hún fékk ansi vel á kjammann.
Það átti að koma í ljós í vikunni
hvort hún væri brotin,“ sagði Ingi-
björg, en ekki náðist í Heiðdísi í gær.
Getur stýrt liðsorkunni
Heiðdís Rún fór á kostum í afar óvæntum sigri FH á Val Sleit hásin á fyrstu
æfingu eftir krossbandsslit Góð „handboltagen“ frá báðum foreldrum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óvænt Heiðdís Rún Guðmundsdóttir lék mjög vel þegar FH vann óvæntan
sigur á Val. Hún er markahæst í Hafnarfjarðarliðinu í deildinni í vetur.
Handbolti kvenna: Leikmaður umferðarinnar
Körfubolti kvenna: Leikmaður umferðarinnar
19. UMFERÐ
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Bryndís Guðmundsdóttir er leik-
maður 19. umferðar í Dominos-deild
kvenna í körfubolta eftir frammi-
stöðu sína í sigri Íslandsmeistara
Snæfells á Keflavík, 61:52, þar sem
hún meðal annars skoraði 17 stig og
tók 10 fráköst.
Segja má að Bryndís hafi verið á
heimavelli í leiknum í Keflavík því
hún er uppalin í bænum og lék með
Keflavík þar til í upphafi þessarar
leiktíðar (utan eins veturs í KR
2011-2012), þegar hún fór óvænt
fram á riftun samnings síns við
Keflavík vegna ósættis við þjálf-
arann Margréti Sturlaugsdóttur.
Ekki nóg með það heldur býr
Bryndís enn í Keflavík og ferðast
þaðan í leiki með Snæfelli og á stöku
æfingar í Stykkishólmi, en æfir þess
utan hjá Breiðabliki ásamt öðrum
leikmönnum Snæfells sem búsettir
eru á höfuðborgarsvæðinu eða
nærri því.
Bryndís er 27 ára gömul og hefur
um árabil verið meðal fremstu leik-
manna landsins, en hún á að baki 36
A-landsleiki. Hún hefur verið sig-
ursæl á ferlinum og meðal annars
orðið Íslands- og bikarmeistari bæði
árið 2011 og árið 2013.
„Hún er frábær leikmaður og liðs-
maður, sem kann þetta allt mjög
vel,“ sagði Gunnhildur Gunn-
arsdóttir, liðsfélagi Bryndísar hjá
Snæfelli og íslenska landsliðinu.
„Hún kemur með mikla reynslu inn í
liðið okkar, er mjög góð bæði í sókn
og vörn og er klár leikmaður sem
gerir aðra leikmenn í kringum sig
betri. Það var mjög góð viðbót fyrir
okkur að fá hana og ég held að henni
líði líka bara vel að spila með okk-
ur,“ sagði Gunnhildur, sem Morgun-
blaðið fékk til að lýsa Bryndísi.
Alhliða leikmaður
„Hennar hlutverk er aðallega inni
í teignum. Hún er fjarki eða fimma,
sem getur samt dregið sig út og
opnað leið inn í teiginn fyrir aðra,
því það þarf að huga að henni fyrir
utan þriggja stiga línuna þar sem
hún getur vel skotið líka. Hún er al-
hliða leikmaður,“ sagði Gunnhildur.
Mikil læti voru í kringum brott-
hvarf Bryndísar frá Keflavík og eft-
ir að Bryndís hafði fengið nóg af
samskiptum sínum við Margréti
sagði þjálfarinn meðal annars eft-
irfarandi í viðtali við Vísi: „Hún vildi
láta koma fram við sig öðruvísi en
aðra leikmenn. Hún vildi fá öruggar
mínútur í liðinu og vera fyrirliði.“
Gunnhildur hlær hins vegar dátt,
aðspurð hvort það geti verið að ein-
hverjir svona „drottningarstælar“
einkenni Bryndísi:
„Ekki fyrir mér. Hún er ekki nein
„drottning“ í Snæfelli. Ég veit ekki
hvernig hún er í öðrum liðum en
mér finnst það mjög ólíklegt miðað
við mín kynni af henni. Hún er frá-
bær týpa, ósköp venjuleg stelpa,
yndisleg og góð. Hún er mikill húm-
oristi og skemmtileg,“ sagði Gunn-
hildur. „Ég kynntist henni fyrst í
gegnum landsliðið og hún er virki-
lega góður liðsmaður og ein-
staklingur. Það er gaman að spila
með henni og ennþá betra núna þeg-
ar við erum saman í félagsliðinu,“
bætti Gunnhildur við.
Er ekki nein
„drottning“
Liðsauki Bryndís Guðmundsdóttir kom til Snæfells eftir að tímabilið var
byrjað í haust. Hún er með 13 stig og 6 fráköst að meðaltali í leik í vetur.
Bryndís býr í Keflavík, æfir í Kópa-
vogi og spilar með Snæfelli
Morgunblaðið/Eggert
Stoke City, félag-
ið sem um skeið
var í eigu Íslend-
inga, keypti dýr-
asta leikmanninn
af öllum félögum
ensku úrvals-
deildarinnar á
meðan opið var
fyrir félagaskiptin
frá 1. janúar til 1.
febrúar.
Á síðustu stundu, áður en lokað var
fyrir félagaskiptin seint í fyrrakvöld,
gekk Stoke frá kaupum á franska
varnartengiliðnum Giannelli Imbula
frá Porto í Portúgal og greiddi fyrir
hann 18,3 milljónir punda. Imbula er
23 ára gamall og lék með yngri lands-
liðum Frakka en hefur fengið heimild
til að spila með A-landsliði Belgíu.
Hann fæddist í Belgíu en flutti korn-
ungur til Frakklands.
Everton kom næst í röðinni og
greiddi Lokomotiv frá Moskvu 13,5
milljónir punda fyrir Oumar Niasse,
25 ára kantmann eða framherja frá
Senegal.
Newcastle keypti Andros Towns-
end af Tottenham og Jonjo Shelvey
af Swansea og greiddi 12 milljónir
punda fyrir hvorn um sig.
Stærstu viðskipti ensks liðs átti þó
Chelsea sem seldi Ramires til Ji-
angsu Suning í Kína fyrir 25 milljónir
punda. vs@mbl.is
Stoke keypti
dýrasta leik-
manninn
Giannelli
Imbula