Morgunblaðið - 19.02.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.02.2016, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2016 : PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 miðvikudaginn 2. mars. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 4. mars SÉRBLAÐ Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. FERMINGAR NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Það tók ekki margar leikvikur í deildakeppninni nú að gefa þann tón sem haldist hefur til þessa. Þau fjög- ur lið sem við hér á Morgunblaðinu töldum líklegust til að blanda sér í baráttuna um meistaratitilinn í bandaríska körfuboltanum voru fljót að sýna styrkleika sinn og erfitt er nú að sjá nokkur önnur lið blanda sér í þá baráttu það sem eftir lifir keppnistímabilsins. Í Vesturdeildinni hafa meistarar Golden State Warriors haldið áfram stórkostlegum leik sínum frá síðasta keppnistímabili. Liðið hóf deilda- keppnina án þjálfarans Steve Kerr, sem var frá vegna hliðarverkana frá bakuppskurði síðasta sumar, en það virtist hafa lítil áhrif. Aðstoðarþjálf- arinn Luke Walton hélt skipinu á réttum kili og áður en nokkur vissi hafði liðið sett nýtt met í að hefja deildakeppnina taplaust. Warriors vann 24 fyrstu leiki sína og hefur nú unnið 48 af 52 leikjum sínum til þessa. Það er ekki einugis árangur liðs- ins sem er athyglisverður, heldur og leikstíll þess. Stephen Curry, núver- andi leikmaður ársins í NBA- deildinni, stjórnar leik liðsins af slíkri snilli að hann neyðir andstæð- inga Warriors leik eftir leik til að spila með þeirri hrynjandi sem Warriors kýs. Hann keyrir upp hraðann og andstæðingarnir virðast lítið geta gert til að hægja á leikn- um. Þetta má vel sjá af stigaskorun í leikjum Warriors þar sem andstæð- ingar geta sjaldnast haldið liðinu undir 110 stigum. Liðið hefur aðeins skorað tólf sinnum undir 110 stigum í 52 leikjum og aðeins tvisvar undir 100. Söguefnið er Golden State Ef ekki væri snilld og skemmti- legheit í leik Warriors væri þessi NBA-deildakeppni annars frekar leiðinleg. Golden State leggur allan grunninn fyrir hverri þeirri sögu sem hægt er að skrifa um deilda- keppnina. Nú er stóra spurningin í deilda- keppninni hvort liðið muni slá vinn- ingsmet Chicago Bulls frá 1995-6, þegar Bulls vann 72 leiki. Til að jafna metið þarf Golden State að vinna 24 af næstu þrjátíu leikum sín- um. Það gæti tekist, en liðið á hins vegar eftir sjö erfiða leiki gegn Oklahoma City Thunder, San Ant- onio Spurs og Los Angeles Clippers – erfiðustu keppinautum sínum. Lið- ið er einnig nú á erfiðri útileikja- seríu sem einnig gæti sett strik í reikninginn. Ef marka má leik liðs- ins til þessa í deildakeppninni virðist það hins vegar skipta Warriors litlu hvort það leikur á heimavelli eða ekki og hver andstæðingur liðsins er hvert kvöld. Liðið slátraði San Ant- onio með þrjátíu stigum nýlega og sá leikur var ekki einu sinni svo jafn! Toppbaráttan í Vesturdeildinni lykillinn Helstu keppinautar Golden State í Vesturdeildinni verða San Antonio (45-8), Oklahoma City (40-14) og Los Angeles Clippers (35-18). Á venjulegu keppnistímabili væri ár- angur San Antonio Spurs nægilega góður til að vera í toppsætinu í deildinni, en slíkir eru yfirburðir Golden State að fæstum boltaeðjót- um finnst árangur Spurs merkilegur þótt hann sé svo. Gregg Popovich, þjálfari Spurs, sýnir enn á ný snilli sína með því að halda Spurs í topp- baráttunni. Oklahoma City er nú komið á gott skrið eftir erfiða byrjun með nýja þjálfara, en þeir Russell Westbrook og Kevin Durant hafa leikið frábær- lega undanfarnar vikur og liðið verður sjálfsagt til alls líklegt í úrslitakeppninni. Þessi tvö lið virðast vera einu liðin í Vesturdeildinni sem gætu svo mik- ið sem ógnað Golden State í úrslita- keppninni. Erfitt er að sjá nokkurt annað lið slá út Warriors í sjö leikja leikseríu. Los Angeles Clippers hefur gert það nokkuð gott, en þar á bæ eru einfaldlega of miklir veikleikar til að geta yfirbugað Golden State í úr- slitakeppninni. Bæði Houston Roc- kets og Memphis Grizzlies virðist skorta það sem til þarf í toppbarátt- unni, rétt eins og við spáðum á þess- um síðum í upphafi keppnistímabils- ins. Grizzlies munu leika án miðherjans Marc Gasol út keppn- istímabilið eftir að hann fótbrotnaði í síðustu viku. Þar með fóru mögu- leikar liðsins út um þúfur. Austurdeildin í tilvistarkrísu Ef Austurdeildarliðin væru í toppdeild í evrópsku knattspyrn- unni, væru þau öll í fallbaráttu utan Cleveland Cavaliers. Reyndar hafa Toronto Raptors komið á óvart með góðum árangri, en það er ekki eins og að eðlurnar frá þeim bænum ættu svo mikið sem minnsta tæki- færi að veita toppliðunum í Vestur- deildinni harða keppni í úrslita- keppninni. Þetta er ekki Jurassic Park! Cleveland er í raun eina liðið í Austurdeildinni sem er samræm- anlegt við toppliðin vestanmegin, en jafnvel Cavaliers virðist of veikt sál- fræðilega til að geta unnið Golden State eins og staðan er í dag. Liðið hefur í raun enga keppni um topp- sætið austanmegin, en væri sjálf- sagt í fjórða sæti ef það væri í Vesturdeildinni. Vantar samheldnina? Cleveland rak þjálfarann David Blatt fyrir þremur vikum og lét að- stoðarþjálfarann Tyronn Lue taka við. Hann hefur bætt leiks liðsins, en ef marka má fréttir úr herbúðum liðsins það sem af er deildakeppn- inni virðist ekki sem þar sé sú sam- heldni sem til þarf þegar í harð- bakkann slær í úrslitakeppninni. Óvíst er hvernig liðið mun bregðast við ef það mætir erfiðri stöðu í úrslitakeppninni. Það stefnir allt í lokaviðureign Golden State og Cleveland að nýju, en Oklahoma City og San Antonio munu eflaust hafa sitt að segja um það áður en yfir lýkur. Fjögur berjast um titilinn  Magnaður árangur Golden State  San Antonio Spurs væri efst á venjulegu tímabili  Geta Oklahoma, Clippers eða Cleveland sett strik í reikninginn? NBA-deildin » Þrír fyrstu leikirnir eftir Stjörnuleiksfríið fóru fram í nótt en efstu átta lið í hvorri deild fyrir þá voru þessi: » Austurdeild: Cleveland 38/ 14, Toronto 35/17, Boston 32/ 23, Atlanta 31/24, Miami 29/ 24, Indiana 28/25, Chicago 27/25, Charlotte 27/26. » Vesturdeild: Golden State 48/4, San Antonio 45/8, Okla- homa 40/14, LA Clippers 35/ 18, Memphis 31/22, Dallas 29/ 26, Portland 27/27, Utah 26/ 26. AFP Toppslagur Stephen Curry hjá Golden State Warriors brýst framhjá Russell Westbrook og Enes Kanter hjá Oklahoma City Thunder. Bæði lið eru líkleg til að fara mjög langt í úrslitakeppninni í vor. Ég er ekki viss um að margir hafi hreinlega vitað að íþróttin bandý væri stunduð hér á landi, þar til að Ísland átti allt í einu lið í undankeppni HM karla fyrr í þessum mánuði. Þetta landslið var líka bara stofnað á síðasta ári, en náði þrátt fyrir það í einn sigur í undankeppninni sem hlýt- ur að teljast býsna gott. Forvitnin yfir þessari íþrótt, sem ég hafði svo gaman af að spila í íþróttatímum í grunn- skóla, rak mig á opna æfingu hjá HK í vikunni. Þar kom reyndar strax í ljós að íþróttin er talsvert ólík því sem ég var vanur í sveit- inni. Erfiðast var líklega að venj- ast því að halda í raun á kylfunni með öfugum hætti við það sem maður er vanur, t.d. úr golfi, það er að segja með hægri höndina ofar en þá vinstri. Æfingin var stórskemmtileg þó að ekki hafi ég reynst vera neitt undrabarn í íþróttinni. Það var helst að ég gæti hlaupið, en önnur og ansi mikilvæg atriði eins og að skjóta á markið og rekja boltann, vöfðust fyrir mér, svo ekki sé meira sagt. Reyndar virtust margir eiga í vandræðum með skotin. Á öðr- um vallanna sem þessi 40 manna hópur spilaði á voru engir markverðir, heldur eins konar fleki sem huldi stóran hluta marksins. Boltinn komst aldrei framhjá þessum flekum í fyrstu þremur leikjunum. Á hinum vell- inum, þar sem markverðirnir voru af holdi og blóði, voru hins vegar skoruð nokkur mörk og ég græt það enn að hafa ekki nýtt mitt besta tækifæri til að bæta við einu slíku. En já, ég get alla vega hiklaust mælt með bandýi fyrir þá sem vilja prófa nýja íþrótt, sem virðist ætla að takast að festa sig al- mennilega í sessi hér á landi. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.