Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 DÓMARAR Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég hefði öskrað af gleði hefði ég ekki verið með veik börn heima sof- andi,“ sagði Jónas Elíasson hand- knattleiksdómari, spurður um hver hans fyrstu viðbrögð hefðu verið þegar honum bárust þau tíðindi á föstudaginn fyrir viku að hann og félagi hans, Anton Gylfi Pálsson, hefðu verið valdir til þess að dæma í handknattleikskeppni Ólympíu- leikanna í Ríó í sumar. Fyrir þremur mánuðum blés ekki byrlega hjá þeim félögum. Þeir voru sendir heim eftir að hafa dæmt einn leik á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik í Danmörku vegna mistaka annarra manna í leik sem þeir dæmdu. Útlit var fyrir að mikil vinna síðustu ár við dómgæslu á kappleikjum og mótum víða um heim væri fyrir bí. Þeir væru komn- ir út af landakortinu hjá Alþjóða- handknattleikssambandinu, IHF. „Okkur var boðið að dæma tvo vináttuleiki hjá Evrópumeisturum Þjóðverja og nokkru síðar kom boð frá IHF um að dæma leiki í for- keppni Ólympíuleikanna sem fram fara í Gdansk í Póllandi í byrjun apríl. Þá vaknaði von um að við værum kannski komnir inn í mynd- ina hjá IHF á nýjan leik,“ sagði Anton Gylfi. „Sú von var á rökum reist þegar boðið um að dæma á Ól- ympíuleikunum barst því IHF sér um þá keppni fyrir Alþjóðaólymp- íunefndina,“ sagði Anton Gylfi. „Við tökum þessum gleðifregnum af stó- ískri ró.“ Dæmt saman í nærri þrjú ár Anton Gylfi og Jónas eru langt komnir á sínu þriðja keppnistímabili saman sem dómarapar. Anton, sem er 39 ára gamall, dæmdi árum sam- an með Hlyni Leifssyni á stórmót- um landsliða og í Evrópukeppni. Þegar Hlynur hætti hóf Anton sam- starf með Jónasi sem um nokkurra ára skeið hafði verið samdómari Ingvars Guðjónssonar. Anton Gylfi hefur verið Evrópudómari í 16 ár en Jónas í 10. Að Ólympíuleikunum í sumar loknum hefur Anton dæmt á öllum stórmótum A-landsliða, því hann á að baki að hafa dæmt á HM og EM karla og kvenna. Jónas, sem er fertugur, á enn nokkuð í land að jafna metin við Anton. Spurðir hvenær þeir hafi talið sig eiga möguleika á að geta dæmt á Ólympíuleikum, sagði Anton það hafa verið eftir að þeir dæmdu úr- slitaleik EHF-keppni karla í Berlín á síðasta vori. Fengu úrslitaleik eftir tvö ár „Þegar við byrjuðum að dæma saman sáum við ákveðna möguleika í stöðunni þar sem við vorum nokk- uð sterkt par með góða reynslu þótt við hefðum ekkert dæmt saman. En eftir úrslitaleikinn í Berlín sáum við hversu langt við vorum komnir. Það hefur engu pari tekist að fá úrslita- leik í Evrópukeppni á öðru ári sam- starfs. Þá var ljóst hversu langt við vorum komnir og hversu vel yfir- menn dómaramála kunnu að meta frammistöðu okkar. Í framhaldinu settum við okkur markmið og eitt þeirra var að dæma á Ólympíu- leikum,“ sagði Anton Gylfi sem hef- ur frekar orð fyrir þeim félögum. Allt lék í lyndi og m.a. dæmdu þeir félagar í Asíuhluta forkeppni Ól- ympíuleikanna í Katar í nóvember auk þess sem þeir dæmdu nokkra leiki í Meistaradeild Evrópu í haust og fram í desember, þegar bakslagið kom á HM kvenna í Danmörku. Skipað að fara heim strax „Það var hrikalegt högg sem við fengum þar,“ sagði Jónas. „Senni- lega svipað og að vera sagt upp vinnunni fyrirvaralaust og án ástæðu. Við vorum kallaðir á fund og sagt að ákveðið hefði verið að við færum heim nú þegar. Þátttöku okkar á mótinu væri lokið,“ sagði Anton Gylfi. „Þegar við óskuðum eftir skýringum þá var okkur nánast svarað með þögninni, bara sagt að þetta væri ákveðið og yrði ekki breytt.“ Í stuttu máli sagt þá var notast við svokallaða marklínutækni á HM kvenna í Danmörku. Myndavélum var komið fyrir inni í mörkunum og þær tengdar við tölvur. Ef dóm- urum þótti leika vafi á hvort boltinn hefði farið inn fyrir marklínuna gátu þeir stöðvað leikinn og óskað eftir upplýsingum úr myndavélunum. Í fyrsta leiknum sem þeir dæmdu (og þeim eina) kom upp vafaatvik snemma í leik Suður-Kóreu og Frakklands. Anton Gylfi sem stóð við endalínuna dæmdi mark en eftir- litsdómara leiksins þótti ástæða til þess að skera úr um hvort rétt hefði verið dæmt og kalla eftir upplýs- ingum frá þeim sem sat yfir mynda- vélatölvunni. Eftirlitsdómarinn fékk rangar upplýsingar með þeim afleið- ingum markið var afturkallað. Upprisa eftir hrik Fremstir Jónas Elíasson og Anton Gylfi ureign Evrópumeistara Þýskalands og A  Anton og Jónas voru sendir heim af HM að ósekju  Svipað og að vera sagt upp vinnunni að ástæðulausu  Fengu gífurlegan stuðning  Boðið til Þýskalands og Pól- lands  Uppreisn æru að vera valdir á Ólympíuleikana í Ríó Lengjubikar karla A-DEILD, riðill 2: Breiðablik – Víkingur Ó. .........................2:2 Höskuldur Gunnlaugsson 14., Atli Sigur- jónsson 21. – Kenan Turudija 47., Hrvoje Tokic 54.  Fylkir 7, Breiðablik 7, Víkingur Ó. 6, KA 4, Selfoss 0, Fjarðabyggð 0. A-DEILD, riðill 4: Þróttur R. – Leiknir F............................. 1:2 Emil Atlason 62. - Kristófer Páll Viðarsson 55., 74.  FH 9, Leiknir R. 7, Þór 4, Fjölnir 3, Leiknir F. 3, Þróttur R. 0,. Þýskaland Hertha Berlín – Schalke...........................2:0 B-deild: Arminia Bielefeld – Nürnberg ...............0:4  Rúrik Gíslason hjá Nürnberg er ekki tilbúinn í leik eftir meiðsli. Danmörk Esbjerg – AGF ..........................................2:1  Guðlaugur Victor Pálsson hjá Esbjerg er frá keppni vegna meiðsla.  Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik- inn með AGF. Holland B-deild: Telstar – Jong PSV .................................1:1  Albert Guðmundsson lék með Jong PSV í 87 mínútur og skoraði mark liðsins. Noregur Aalesund – Stabæk.................................. 1:0  Adam Örn Arnarson lék allan leikinn fyrri Aalesund. Aron Elís Þrándarson fór nefbrotinn af leikvelli á 64. mín. Daníel Leó Grétarsson kom ekkert við sögu. England Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Reading – Crystal Palace .........................0:2 Ítalía Juventus – Sassuolo ................................. 3:0 Spánn Málaga – Sporting Gijon.......................... 1:0 KNATTSPYRNA 1. deild karla Fjölnir – KR.......................................... 32:26 Þróttur – HK ........................................ 26:30 ÍH – Selfoss........................................... 25:29 Stjarnan – Mílan....................................36:21 Staðan: Stjarnan 18 17 0 1 579:400 34 Selfoss 18 15 0 3 516:427 30 Fjölnir 18 14 0 4 519:423 28 Þróttur 18 7 2 9 450:498 16 HK 18 7 0 11 503:539 14 Mílan 18 6 1 11 437:473 13 ÍH 18 3 0 15 460:570 6 KR 18 1 1 16 379:513 3 Vináttulandsleikur karla Þýskaland – Katar ...............................32:17  Dagur Sigurðsson þjálfar lið Þýska- lands.  Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn. Þýskaland B-deild: Eintracht Hagen – Springe.................24:28  Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 1 mark fyrir Hagen. Aue – Bietigheim................................. 25:25  Árni Þór Sigtryggsson skoraði 7 mörk fyrir Aue og Bjarki Már Gunnarsson 2. Sveinbjörn Pétursson ver mark Aue og Rúnar Sigtryggsson þjálfar liðið. Sigtrygg- ur Daði Rúnarsson er frá keppni vegna meiðsla.  Aron Rafn Eðvarðsson ver mark Bietig- heim. Austurríki West Wien – Schwaz ............................30:27  Hannes Jón Jónsson skoraði ekki mark fyrir West Wien en hann þjálfar liðið. HANDBOLTI ENGLAND Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Ætlar öskubuskuævintýrið að halda áfram hjá Leicester City og ná bláu „refirnir“ að skjóta stóru liðunum ref fyrir rass og hampa Englandsmeist- aratitlinum í vor? Þessari spurningu hafa menn velt upp ótal sinnum á síð- ustu vikum og mánuðum. Sparkspek- ingar út um allan heim og miklu fleiri til hafa spáð því trekk í trekk að blaðr- an hjá strákunum hans Claudio Rani- eri hljóti nú að fara að springa en Leic- ester-hraðlestin er ennþá á fullu stími og engin teikn á lofti sem stendur um að hún ætli eitthvað að hægja eitthvað á ferðinni. Þegar níu umferðum er ólokið í deildinni er Leicester með fimm stiga forskot á Tottenham, átta stiga for- skot á Arsenal og er tíu stigum á und- an Manchester City. Leicester er ein- faldlega í dauðafæri á að verða enskur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins sem yrði hreint út sagt stórkostlegt af- rek. Hvorki heppni né tilviljun Nú tala menn ekki lengur um heppni eða tilviljun. Leicester-liðið er einfaldlega frábært fótboltalið sem hefur allt sem prýða þarf góð lið. Í lið- inu er stemning, leikgleði, klókindi, agi, hraði, útsjónarsemi og afburða- leikmenn þar sem í hryggsúlunni eru Kasper Schmeichel, Wes Morgan, N’Golo Kante, Riyad Mahrez og Jamie Vardy. Allir hafa þeir slegið í gegn sem og hreinlega allt Leicester-liðið. Frá stofnun ensku úrvalsdeildar- innar 1992 hafa aðeins fimm lið hamp- að titlinum, Manchester United, Blackburn, Arsenal, Chelsea og Man- chester City og frá því Arsenal varð Englandsmeistari árið 2004 hafa Chelsea, Manchester United og Man- chester City skipt titlinum á milli sín. Uppgangur Leicester City á einu ári hefur verið hreint lygilegur. Þær eru 38 umferðirnar sem spilaðar eru í ensku úrvalsdeildinni og þegar maður spólar 38 leiki aftur í tímann þá sat Leicester á botni ensku úrvalsdeild- arinnar. En í 9 síðustu leikjunum á síð- ustu leiktíð og þeim 29 sem það hefur spilað á tímabilinu hefur Leicester unnið 24 leiki. Til marks um uppgang- inn þá hafði Leicester aðeins unnið fjóra leiki af 29 eftir að það vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni 2014. Uppskera Leicester í síðustu 38 leikj- um er 82 stig, 11 stigum meira en Manchester City hefur fengið, 12 stig- um meira en Arsenal og 13 stigum meira en Tottenham. Yrði mikill sigur fyrir fótboltann Af leikjunum níu sem Leicester á eftir að spila eru fimm á heimavelli, við Newcastle, Southampton, West Ham, Swansea og Everton og útileikirnir eru fjórir, við Crystal Palace, Sunder- land, Manchester United og Chelsea. Maður sér í hillingum ríkjandi meist- ara Chelsea standa heiðursvörð á Stamford Bridge þann 15. maí en þá sækir Leicester meistarana heim í lokaumferð deildarinnar. Mikill yrði sigurinn fyrir fótboltann ef litla Leic- ester City stæði uppi sem Englands- meistari og eitt er víst að ég vona það svo innilega. „Ég held að ef Leicester verður Englandsmeistari þá sé það meira af- rek en hjá Nottingham Forest forðum daga.“ Þetta sagði Savage, fyrrver- andi leikmaður Leicester, en hann starfar sem knattspyrnusérfræðingur í sjónvarpi í dag. Líkt við Nottingham Forest Leicester hefur verið líkt við Nott- ingham Forest á áttunda áratugnum Leicester-hraðlestin á fullu stími Viðhorf á laugardegi Taka mistök nærri sér Mikið álag er á dómurum. Þeir eru oft harðlega gagnrýndir og verða einnig fyrir misjafnlega skemmtilegum athugasemdum frá áhorfendum í hita leiksins. Anton og Jónas segjast aldrei hafa átt erfitt með að mæta þeirri gagnrýni sem þeir hafa fengið og aldrei t.d. leitað eftir aðstoð frá sálfræðingum. „Mér líður vel á vellinum. Ástríðan og spennan er alltaf fyrir hendi,“ sagði Anton. „Ef við gerum mistök, sem kemur fyrir, þá sjáum við eftir því og biðj- umst afsökunar. Eins ef þjálfarar senda okkur upptökur af leikjum þar sem við gerum mistök, þá ræðum við saman. Við höfum aldrei neitað að tala við þjálfara eða leikmen vegna mistaka okkar inni á leikvellinum. Ef einhverjum líður illa yfir mistökum sem þeir gera í leikjum þá eru það við dómararnir. En lífið heldur áfram.“ Feta í fótspor Gunnars og Stefáns Þegar Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson dæma í handknattleiks- keppni Ólympíuleikanna í Ríó í sumar feta þeir í fótspor annars íslensks dómarapars. Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson voru fyrstu ís- lensku dómararnir til þess að dæma handknattleik á Ólympíuleikum. Þeir félagar dæmdu á ÓL í Aþenu 2004. Síðan hafa íslenskir handknatt- leiksdómarar ekki dæmt á Ólympíuleikum. Karlalandsliðið hefur sett þeim mun meiri svip á tvenna síðustu leika en það verður ekki með að þessu sinni. Þróttarar úr Reykjavík, sem leika í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í sumar eftir sex ára fjarveru, hafa fengið til sín tvítugan danskan bak- vörð, Kristian Larsen. Hann hefur lengst af verið í röðum Bröndby og á að koma í stað Hlyns Haukssonar sem verður ekki með liðinu í ár vegna náms. Larsen er þriðji er- lendi leikmaðurinn sem Þróttarar fá til sín í vetur en áður voru komnir danski miðjumaðurinn Seb- astian Svärd og brasilíski miðju- maðurinn Thiago Pinto Borges. vs@mbl.is Þróttur bætir Dana í hópinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.