Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 6
BIKARINN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Eins vel og tímabilið leit út hjá Ars-
enal fyrir aðeins mánuði hafa vonir
liðsins um að landa titli á þessu tíma-
bili dvínað allsvakalega síðustu vik-
ur. Liðið hefur aðeins unnið einn af
síðustu sjö leikjum sínum í öllum
keppnum, dregist aftur úr í toppbar-
áttu ensku úrvalsdeildarinnar, nán-
ast stimplað sig út úr Meistaradeild
Evrópu, og í gær féll liðið svo úr leik
í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppn-
innar með 2:1-tapi gegn Watford.
Arsenal hefur unnið keppnina síð-
ustu tvö ár.
Þetta var þriðja tap Arsenal í röð
á Emirates-vellinum og það hefur
liðið ekki þurft að þola áður á þess-
um velli, sem tók við af Highbury
sem heimavöllur Arsenal árið 2006.
Nú þarf liðið annaðhvort að vinna
upp átta stiga forskot Leicester í
ensku úrvalsdeildinni, og komast
sömuleiðis upp fyrir Tottenham, eða
vinna Meistaradeildina til að geta
landað titli á þessari leiktíð. Þar er
liðið 2:0 undir gegn Barcelona í 16-
liða úrslitum fyrir seinni leik liðanna
á Camp Nou á miðvikudagskvöld.
Manchester United hélt sér með
naumindum inni í keppninni með
1:1-jafntefli við West Ham í gær, en
liðin þurfa að mætast að nýju á
heimavelli Hamranna. Dimitri Payet
kom West Ham yfir með glæsimarki
úr aukaspyrnu en Anthony Martial
náði að jafna fyrir United sjö mín-
útum fyrir leikslok.
„Þetta verður erfitt í seinni leikn-
um en ég tel okkur líklegri því ég
held að sjálfstraustið verði enn
meira hjá okkur,“ sagði Slaven Bilic,
knattspyrnustjóri West Ham.
Auk Watford eru Crystal Palace
og Everton komin áfram í undan-
úrslit bikarsins, sem fara fram á
Wembley 23. og 24. apríl. Everton
sló Chelsea út með 2:0-sigri á laug-
ardag þar sem Romelu Lukaku
skoraði bæði mörkin seint í leiknum.
Mánaðar
martröð
Watford sá til þess að Arsenal nær
ekki að verja bikarmeistaratitilinn aftur
AFP
Glaðir Quique Flores faðmar Nathan Ake, lærisvein sinn hjá Watford, eftir
sigurinn góða á Arsenal í gær sem tryggði Watford farmiðann á Wembley.
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
England
Bournemouth – Swansea........................ 3:2
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
með Swansea og skoraði annað marka liðs-
ins á 62. mínútu leiksins.
Norwich – Manchester City .................... 0:0
Stoke – Southampton............................... 1:2
Aston Villa – Tottenham.......................... 0:2
Staðan:
Leicester 29 17 9 3 52:31 60
Tottenham 30 16 10 4 53:24 58
Arsenal 29 15 7 7 46:30 52
Manch.City 29 15 6 8 52:31 51
West Ham 29 13 10 6 45:33 49
Manch.Utd 29 13 8 8 37:27 47
Southampton 30 12 8 10 38:30 44
Liverpool 28 12 8 8 43:37 44
Stoke 30 12 7 11 32:36 43
Chelsea 29 10 10 9 43:39 40
WBA 29 10 9 10 30:36 39
Everton 28 9 11 8 51:39 38
Bournemouth 30 10 8 12 38:47 38
Watford 29 10 7 12 29:30 37
Crystal Palace 29 9 6 14 32:39 33
Swansea 30 8 9 13 30:40 33
Sunderland 29 6 7 16 35:54 25
Norwich 30 6 7 17 31:54 25
Newcastle 28 6 6 16 28:53 24
Aston Villa 30 3 7 20 22:57 16
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Everton – Chelsea.................................... 2:0
Arsenal – Watford.................................... 1:2
Manchester United – West Ham............ 1:1
B-deild:
Cardiff – Ipswich..................................... 1:0
Aron Einar Gunnarsson hóf leikinn á
varamannabekk Cardiff en kom inná á 73.
mínútu leiksins.
Charlton – Middlesbrough ..................... 2:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék allan
leikinn fyrir Charlton.
Wolves – Birmingham............................. 0:0
Björn Bergmann Sigurðarson lék allan
leikinn fyrir Wolves.
Blackburn – Leeds ................................... 1:2
Bolton – Preston....................................... 1:2
Fulham – Bristol City .............................. 1:2
Huddersfield – Burnley........................... 1:3
Hull – MK Dons........................................ 1:1
Nottingham F. – Sheffield Wed.............. 0:3
QPR – Brentford ...................................... 3:0
Rotherham – Derby ................................. 3:3
Staða efstu liða:
Burnley 37 21 11 5 60:30 74
Middlesbrough 35 20 7 8 46:21 67
Hull 35 19 8 8 49:21 65
Brighton 36 17 14 5 49:34 65
Derby 37 16 13 8 50:35 61
Sheffield Wed. 37 15 14 8 53:36 59
Cardiff 37 15 13 9 48:40 58
Birmingham 36 15 10 11 40:34 55
Ipswich 36 15 10 11 44:43 55
Preston 37 13 13 11 35:34 52
QPR 37 12 14 11 46:42 50
Wolves 37 12 11 14 45:50 47
Leeds 36 11 14 11 36:41 47
C-deild:
Burton – Fleetwood ................................ 2:1
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn fyrir Fleetwood.
Þýskaland
Darmstadt – Augsburg ...........................2:2
Alfreð Finnbogason lék allan leikinn fyr-
ir Augsburg og skoraði jöfnunarmark liðs-
ins úr vítaspyrnu á 90. mínútu leiksins.
Bayern München – Werder Bremen .... 5:0
Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna-
hópi Werder Bremen vegna meiðsla.
Staðan:
Bayern M. 26 21 3 2 64:13 66
Dortmund 26 19 4 3 61:25 61
Hertha B. 26 13 6 7 35:26 45
Gladbach 26 13 3 10 53:42 42
Schalke 26 12 5 9 37:34 41
Mainz 26 12 4 10 34:32 40
Leverkusen 26 11 6 9 37:33 39
Wolfsburg 26 10 7 9 38:33 37
Köln 26 8 9 9 28:33 33
Ingolstadt 26 8 9 9 22:29 33
Stuttgart 26 9 5 12 43:52 32
Hamburger 26 8 7 11 30:35 31
Augsburg 26 6 9 11 32:40 27
Darmstadt 26 6 9 11 27:40 27
W.Bremen 26 7 6 13 35:53 27
E.Frankfurt 26 5 9 12 28:43 24
Hoffenheim 26 5 9 12 27:42 24
Hannover 26 5 2 19 22:48 17
C-deild:
Holstein Kiel – Erzgebirge Aue ............ 3:0
Eiður Aron Sigurbjörnsson var ekki í
leikmannahópi Holstein Kiel.
Spánn
Las Palmas – Real Madrid .......................1:2
Athletic Bilbao – Real Betis .....................3:1
Sevilla – Villarreal.....................................4:2
Levante – Valencia....................................1:0
Rayo Vallecano – Eibar ............................1:1
Atlético Madrid – Dep. La Coruna..........3:0
Celta Vigo – Real Sociedad ......................1:0
Barcelona – Getafe....................................6:0
Staða efstu liða:
Barcelona 29 24 3 2 84:22 75
Atlético Madrid 29 21 4 4 45:12 67
Real Madrid 29 19 6 4 83:28 63
Villarreal 29 15 8 6 35:23 53
Sevilla 29 13 9 7 43:31 48
Athletic Bilbao 29 14 5 10 47:37 47
Celta Vigo 29 13 6 10 41:51 45
B-deild:
Real Oviedo – Valladolid ........................ 2:4
Diego Jóhannesson var ekki í leik-
mannahópi Real Oviedo.
KNATTSPYRNA
Alfreð Finnbogason tryggði
liði sínu Augsburg afar mik-
ilvægt stig í fallbaráttunni í
þýsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu þegar hann jafnaði
metin gegn Darmstadt í 2:2 úr
víti á lokamínútu leiks liðanna
á laugardag. Darmstadt var
2:0 yfir í hálfleik. Þetta var
annað mark Alfreðs í fyrstu
sex leikjum hans í Þýskalandi.
Liðin eru því áfram jöfn að
stigum og eru með Werder Bremen í 13.-15. sæti,
þremur stigum frá Eintracht Frankfurt og Hoff-
enheim í 16. sæti og 17. sæti. Liðið sem endar í
17. sæti fellur, og liðið í 16. sæti fer í umspil við
liðið í 3. sæti næstefstu deildar, um sæti í 1.
deildinni á næstu leiktíð. sindris@mbl.is
Alfreð skoraði afar
dýrmætt mark
Alfreð
Finnbogason
Jakob Örn Sigurðarson og fé-
lagar í Borås áttu ekki í vand-
ræðum með að leggja Nässjö
að velli í fyrsta leik liðanna í 8-
liða úrslitum sænsku úrvals-
deildarinnar í körfubolta. Bor-
ås vann 79:58 á heimavelli og
var Jakob stigahæstur með 18
stig.
Sundsvall Dragons, lið Hlyns
Bæringssonar, tapaði hins veg-
ar gegn Norrköping Dolhpins á
útivelli, 70:61. Hlynur fór á kostum og skoraði 18
stig auk þess að taka 15 fráköst.
Næstu leikir hjá þessum liðum í 8-liða úrslit-
unum eru á fimmtudagskvöld. Vinna þarf þrjá
leiki til að komast áfram í undanúrslitin.
sindris@mbl.is
Stórleikur Hlyns
dugði ekki til
Hlynur
Bæringsson
Paris Saint-Germain varð í
gær franskur meistari í knatt-
spyrnu fjórða árið í röð, þrátt
fyrir að enn séu átta umferðir
eftir af tímabilinu. Liðið er
með 25 stiga forskot á Monaco
sem er í 2. sæti, en PSG hefur
aðeins tapað einum leik á tíma-
bilinu.
PSG tryggði sér titilinn með
stæl því liðið vann botnlið
Troyes 9:0 á útivelli. Svíinn
Zlatan Ibrahimovic skoraði fernu í leiknum og
Édinson Cavani tvö.
„Við höfum verið upp á okkar besta frá byrjun.
Ég veit ekki hvort okkur tekst nokkurn tímann
að leika þetta eftir,“ sagði Laurent Blanc, stjóri
PSG, glaður í bragði. sindris@mbl.is
Meistarar með 24
stig enn í pottinum
Zlatan
Ibrahimovic
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
Vegna leikja í ensku bikarkeppninni
í knattspyrnu voru ekki leiknir
nema fjórir leikir leiknir í úrvals-
deildinni. Tottenham og Manchest-
er City gátu þar með saxað á forskot
Leicester á toppnum en toppliðið
tekur á móti Newcastle í kvöld.
Manchester City fór illa að ráði sínu
þgar það gerði markalaust jafntefli
við Norwich. Tottenham heldur hins
vegar áfram að anda ofan í háls-
málið á spútnikliði Leicester en
Tottenham sigraði botnlið Aston
Villa, 2:0, á útivelli í gær. Lærisvein-
ar Mauricios Pochettinos eru með
58 stig, tveimur stigum minna en
Leicester. Markahrókurinn Harry
Kane skoraði bæði mörkin í leiknum
og er þar með búinn að skora jafn-
mörg mörk og Jamie Vardy í deild-
inni í vetur, 19 talsins. Þeir félagar
eru markahæstir í deildinni en held-
ur hefur hægt á Vardy síðan hann
skoraði í 11 leikjum í röð fyrir ára-
mót.
Slakir liðsfélagar?
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sig-
urðsson heldur áfram að draga vagn-
inn fyrir Swansea. Hann skoraði
annað mark liðsins í 3:2-tapi gegn
Bournemouth á laugardag. Gylfi hef-
ur þar með skorað níu mörk í deild-
inni á tímabilinu en sjö þeirra hafa
komið á árinu 2016.
Gengi Swansea hefur samt ekki
verið neitt sérstakt en liðið er nú í 16.
sæti með 33 stig, átta stigum frá fall-
sæti. Sumir sérfræðingar segja að
liðsfélagar Gylfa séu ekki á pari við
hann, hvað varðar knattspyrnuhæfi-
leika. Netmiðillinn Wales Online gaf
okkar manni 8 í einkunn fyrir
frammistöðu sína. „Enn einu sinni
var frammistaða hans sannfærandi
sem sýnir að hann á betra skilið frá
liðsfélögum sínum,“ sagði velski mið-
illinn meðal annars í umsögn sinni
um Gylfa Þór Sigurðsson.
AFP
Góður Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt níunda mark á tímabilinu um
helgina. Það dugði ekki til en Swansea tapaði 3:2 fyrir Bournemouth.
Herðar Gylfa þurfa
að þola mikið álag
Sjöunda markið á árinu dugði ekki til