Morgunblaðið - 14.03.2016, Síða 7
FIMLEIKAR
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
Ármann stóð uppi sem sigurvegari í
kvenna- og karlaflokki á Bikarmótinu í
áhaldafimleikum 2016 sem fram fór á
laugardag. Keppnin var æsispennandi og
skemmtileg en Ármann seig fram úr í
síðustu tveimur áhöldunum.
Í kvennaflokki börðust þrjú félög um
titilinn, Ármann, Björk og Gerpla. Ár-
menningar tylltu sér á toppinn í loka-
umferðinni og tryggðu sér þar með bik-
armeistaratitilinn annað árið í röð. Björk
hafnaði í öðru sæti og Gerpla í því þriðja.
Þetta er frábært
Dominiqua Belányi, Ármanni, var
ánægð með sigurinn þegar blaðamaður
Morgunblaðsins heyrði í henni í gær.
„Við vörðum titilinn okkar, unnum í
fyrsta skipti í fyrra þegar við stoppuðum
að ég held 10 ára sigurgöngu Gerplu.
Þannig að við stelpurnar höfðum titil að
verja núna og gerðum það. Átta lið voru
að keppa og ég held að það hafi aldrei
verið jafnmörg lið að keppa á bikarmóti.
Þetta er frábært,“ sagði Dominiqua sig-
urreif.
Gerpla var í fyrsta sæti fyrir loka-
umferðina kvennamegin, Björk í öðru
sæti og Ármann í því þriðja. Ármenn-
ingar enduðu á gólfæfingum sem gengu
það vel að þær tryggðu sér titilinn.
Sigur heildarinnar
„Stelpur keppa á fjórum áhöldum:
stökki, tvíslá, slá og gólfi,“ útskýrir Dom-
iniqua en henni fannst Ármann ekki
standa sig áberandi vel eða illa á ein-
hverju ákveðnu áhaldi. „Mér fannst liðið
standa sig rosalega vel, við vorum saman
í þessu. Ef einhver gerði mistök þá var
önnur tilbúin að hífa hana upp.Ég get því
ekki sagt að eitthvert áhald sé okkar
sterkasta, við unnum bara vel saman.“
Strákar hópast í fimleika
Þrjú karlalið tóku þátt en það er í
fyrsta skipti í langan tíma sem svo mörg
lið taka þátt í karlakeppninni. Dominiqua
segist verða vör við aukinn fjölda stráka í
fimleikum. „Það er aukning strákamegin
í fimleikum á Íslandi, það er ekki spurn-
ing. Það eru fleiri og fleiri strákar sem
byrja að æfa fimleika af því að okkur hef-
ur verið að ganga vel á heimsvísu und-
anfarin ár. Ég myndi segja að núna sé
mikil uppbygging. Það eru ekki margir
eldri strákar núna en það er mikil aukn-
ing í yngri hópum og starfsemi. Ég býst
við að strákarnir verði aftur komnir á
toppinn eftir 5-10 ár.“
Öruggt hjá Ármanni karlamegin
Í karlaflokki stóð baráttan um sigur-
inn milli Gerplu og Ármanns. Fór það svo
að lokum að Ármenningar vörðu titilinn
sem þeir unnu í fyrra. Fimleikafélagið
Björk hafnaði svo í þriðja sæti.
Ljósmynd/Áslaug Jónasdóttir
Bikarmeistarar Ármenningar unnu tvöfalt á bikarmótinu og hér eru liðin samankomin með verðlaun sín.
Ármann varði titilinn
Tvöfaldur sigur Ármenninga á bikarmótinu í áhaldafimleikum Mikil spenna
í kvennaflokki Fleiri strákar æfa og að þessu sinni tóku þrjú karlalið þátt
Tilþrif Irina Sazonova sýnir hér hvað í henni býr á bikarmótinu, þar sem hún keppti fyrir hönd Ármanns.
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
Ítalía
Udinese – Roma ....................................... 1:2
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir
Udinese.
Staða efstu liða:
Juventus 29 21 4 4 51:15 67
Napoli 29 19 7 3 59:23 64
Roma 29 17 8 4 61:30 59
Fiorentina 29 16 6 7 50:32 54
Inter 29 16 6 7 39:27 54
Milan 29 13 9 7 39:30 48
Sassuolo 29 11 11 7 36:32 44
B-deild:
Como – Cesena ........................................ 1:3
Hörður Björgvin Magnússon kom inná
hjá Cesena á 81. mínútu.
Frakkland
Nantes – Angers ...................................... 2:0
Kolbeinn Sigþórsson var í liði Nantes
fram á 77. mínútu.
Efstu lið: París SG 77, Monaco 52, Nice
47, Lyon 45, Rennes 44, Nantes 44, Caen
43, Saint-Étienne 42, Lille 40.
Belgía
St. Truiden – Lokeren ............................ 1:1
Sverrir Ingi Ingason var á varamanna-
bekk Lokeren.
Sviss
Basel – St. Gallen..................................... 4:2
Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Basel.
Tyrkland
Genclerbirligi – Galatasaray ................. 1:1
Ólafur Ingi Skúlason lék fyrstu 60 mín-
úturnar fyrir Genclerbirligi.
Rússland
Mordovia – Krasnodar ........................... 0:1
Ragnar Sigurðsson var í byrjunarliði
Krasnodar og fékk rautt spjald á 12. mín-
útu leiksins.
Danmörk
OB – Nordsjælland .................................. 3:1
Hallgrímur Jónasson fyrirliði lék allan
leikinn fyrir OB og Ari Freyr Skúlason
fram á 75. mínútu.
Guðmundur Þórarinsson var í liði Nord-
sjælland fram á 60. mínútu en Rúnar Alex
Rúnarsson sat á bekknum.
Svíþjóð
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Malmö – Norrköping............................... 1:0
Kári Árnason lék allan leikinn fyrir
Malmö. Viðar Örn Kjartansson lék fram á
86. mínútu og skoraði sigurmarkið.
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn fyr-
ir Norrköping en Arnór Ingvi Traustason
varð að hætta við að spila rétt fyrir leik.
Noregur
Bodö/Glimt – Sogndal ............................ 2:0
Hannes Þór Halldórsson lék allan leik-
inn fyrir Bodö/Glimt.
Molde – Tromsö ....................................... 1:1
Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunar-
liði Molde, en var tekinn af velli á 66. mín-
útu leiksins.
Aron Sigurðarson lék allan leikinn fyrir
Tromsö og skoraði jöfnunarmark liðsins á
70. mínútu leiksins.
Odd – Rosenborg ..................................... 1:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
fyrir Rosenborg og Matthías Vilhjálmsson
kom inná á 53. mínútu.
Sarpsborg – Haugesund ......................... 0:1
Kristinn Jónsson lék allan leikinn fyrir
Sarpsborg.
Start – Lilleström .................................... 1:1
Guðmundur Kristjánsson lék allan leik-
inn fyrir Start .
Árni Vilhjálmsson var á bekk Lilleström.
Rúnar Kristinsson þjálfar liðið og Sigurður
Ragnar Eyjólfsson er aðstoðarþjálfari.
Kína
B-deild:
Wuhan Zall – Beijing BG ........................ 1:1
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn með
Wuhan Zall.
Lengjubikar karla
A-DEILD, riðill 1:
Valur – ÍBV ....................................... frestað
A-DEILD, riðill 3:
HK – Haukar ............................................ 5:0
Ágúst Freyr Hallsson 30.(víti), 41., 62.,
Sveinn Aron Guðjohnsen 34., Hákon Ingi
Jónsson 72.(víti) Rautt spjald: Stefnir Stef-
ánsson (Haukum) 31.
Víkingur R. 9, ÍA 4, HK 4, KR 4, Haukar
2, Grindavík 1.
A-DEILD, riðill 4:
Fjölnir – Þór...................................... frestað
Leiknir R. – Leiknir F ............................. 1:1
Kolbeinn Kárason 66. (víti) – Kristófer Páll
Viðarsson 48.
FH 9, Leiknir R. 8, Þór 4, Leiknir F. 4,
Fjölnir 3, Þróttur R. 0.
Lengjubikar kvenna
A-DEILD:
Selfoss – Stjarnan.................................... 0:4
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 13., Bryndís
Björnsdóttir 41., Ana Cate 61., 66.
Þór/KA – Fylkir ............................... frestað
Breiðablik – ÍBV...................................... 3:1
Málfríður Erna Sigurðardóttir 8., Esther
Rós Arnarsdóttir 11., Jóna Kristín Hauks-
dóttir 59. – Shaneka Gordon 4.
KNATTSPYRNA
Skúli Óskarsson, kraftlyft-
ingamaður frá Fáskrúðsfirði
og fyrrverandi heimsmethafi,
var á laugardag sæmdur fyrst-
ur allra gullmerki Kraftlyft-
ingasambands Íslands.
Skúli setti heimsmet í rétt-
stöðulyftu í Laugardalshöllinni
árið 1980 þegar hann lyfti 315,5
kílóum í 75 kg flokki. Hann
varð þar með fyrstur íslenskra
íþróttamanna til að setja
heimsmet, en það ár var hann kjörinn íþróttamað-
ur ársins af Samtökum íþróttafréttamanna í ann-
að skipti. Skúli, sem var um árabil einn vinsælasti
íþróttamaður þjóðarinnar, var áður kjörinn 1978.
Skúli tók við gullmerkinu í upphafi þings Kraft-
lyftingasambands Íslands. sport@mbl.is
Skúli sæmdur
fyrsta gullmerki
Skúli
Óskarsson
Ólafur Guðmundsson skoraði
fimm mörk fyrir Kristianstad
þegar liðið tryggði sér endan-
lega sænska deildarmeistara-
titilinn í handbolta, með því að
vinna Karlskrona á heima-
velli, 34:22, á laugardag. Þó
að enn séu fjórar umferðir eft-
ir er Kristianstad þegar búið
að setja stigamet, en liðið hef-
ur unnið 26 af 28 leikjum í
deildinni í vetur og komið með
52 stig. Fyrra metið var í eigu Guif frá því fyrir
fjórum árum, er liðið náði 50 stigum. Kristian-
stad gæti endað með 60 stig í vor.
Þetta er annað árið í röð sem Kristianstad
vinnur deildina, en áður hafði það ekki unnið
hana síðan 1953. sindris@mbl.is
Ólafur meistari
á nýju stigameti
Ólafur
Guðmundsson
Svana Katla Þorsteinsdóttir,
karatekona úr Breiðabliki,
hreppti bæði gull- og silfur-
verðlaun á alþjóðlegu móti í
kata, Swedish Kata Trophy,
sem fram fór í Stokkhólmi um
helgina. Í opnum flokki
kvenna vann Svana Katla
fyrstu þrjár viðureignir sínar
örugglega, gegn sænskum
andstæðingum, en hún mætti
svo Carolu Casale Sambo frá
Ítalíu í úrslitum þar sem sú ítalska hafði betur.
Svana Katla fékk hins vegar gull í hópkata
ásamt þeim Kristínu Magnúsdóttur og Örnu
Katrínu Kristinsdóttur, en þær keppa saman á
næstkomandi Norðurlandameistaramóti. Fleiri
úrslit má sjá á mbl.is/sport. sport@mbl.is
Svana Katla með
gull og silfur
Svana Katla
Þorsteinsdóttir