Morgunblaðið - 24.03.2016, Blaðsíða 1
Ljósmynd/GSÍ
62 Rúnar hitti 16 flatir af 18 í tilskildum höggafjölda á methringnum.
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Strákarnir sem ég keppi við hérna
úti eru allt frábærir kylfingarnir og
því er það stórt og gott skref að
vinna háskólamót,“ sagði Rúnar
Arnórsson, úr Keili, þegar Morg-
unblaðið sló á þráðinn til hans í gær.
Hann var þá búinn að sinna tveimur
viðtölum þar ytra, annars vegar við
dagblað á svæðinu og hins vegar við
vefsíðu skólans. Rúnar sigraði í
fyrsta skipti á móti í háskólagolfinu
í Bandaríkjunum á þriðjudags-
kvöldið en hann er á öðru ári í Uni-
versity of Minnesota.
Þeir eru orðnir nokkrir íslensku
kylfingarnir sem unnið hafa há-
skólamót í gegnum tíðina en veru-
lega hefur fjölgað í þeim hópi síð-
ustu fimm árin eða svo. Systir
Rúnars, Signý Arnórsdóttir, sigraði
á móti árið 2010 og var fyrst ís-
lenskra kvenna til að afreka það eft-
ir því sem Morgunblaðið kemst
næst.
Í tilfelli Rúnars vekur fyrsti
hringur hans í mótinu mesta athygli
og ekki að ástæðulausu. Rúnar fór
hamförum á Barona Creek-vellinum
í Kaliforníu og lék hann á 62 högg-
um sem er tíu höggum undir pari.
Skólametið orðið 17 ára
Ekki veit Morgunblaðið til þess
að fleiri Íslendingar en Örn Ævar
Hjartarson hafi leikið á betra skori í
móti erlendis en hann lék á 60 högg-
um á New Course-vellinum í St.
Andrews í St. Andrews Links
Trophy-mótinu. Frammistaðan er
merkileg í því ljósi en auk þess er
um skólamet að ræða.
„Þegar þú nefnir þetta þá hugsar
maður fyrst út í hver sé númer eitt
og ég held að flestir afrekskylfingar
á Íslandi þekki afrek Arnar Ævars.
Auðvitað er gaman að heyra þetta
og vita til þess að maður hafi skrifað
nafn sitt á einhvern stað þar sem
hægt verði að finna það í framtíð-
inni. Einnig er skemmtilegt að setja
skólamet en það var sett árið 1999
og er því orðið sautján ára gamalt.
Auk þess sýnir þetta hvers ég er
megnugur á golfvellinum og gefur
vísbendingu um hvar ég stend í golf-
inu. Í golfinu leggur maður mikla
vinnu í æfingar og maður getur ekki
horft á annað en skorið sem maður
skilar inn sem viðmið,“ sagði Rúnar.
Fyrri 9 á 29 höggum
Rúnar segist hafa verið ágætlega
meðvitaður um skorið meðan á
hringnum stóð og þannig sé því yf-
irleitt háttað hjá honum. Hann seg-
ist þó ekki hafa fundið fyrir miklu
stressi þótt skorið eftir fyrri 9 hol-
urnar hafi sýnt 29 högg.
„Ég er yfirleitt mjög efins þegar
kylfingar segjast ekki vita á hvaða
skori þeir eru því sjálfur veit ég oft-
ast á hvaða skori ég er, eða kemst
alla vega mjög nálægt því. Ég var
fjögur högg undir pari eftir fimm
holur og sex undir eftir níu. Eins og
stundum gerist þegar vel gengur þá
þurfti ég ekki að þvinga fram góð
högg. Ég átti oft vegalengdir eftir
inn á flöt sem henta mér vel og þeg-
ar uppi var staðið hitti ég sextán
flatir af átján í tilskildum högga-
fjölda. Auk þess hitti ég flestar ef
ekki allar brautirnar af teig. Ég
vissi að ég væri undir 30 eftir níu
holur og leyfði mér að hugsa um
það. Minnti bara sjálfan mig á að
einbeita mér alltaf að næsta höggi,“
sagði Rúnar ennfremur við Morg-
unblaðið.
„Stórt og gott skref“
Rúnar Arnórsson leyfði sér að hugsa um skorið á hringnum sögulega
Skólamet sem athygli vekur í Minnesota Áhugaverð tölfræði
FIMMTUDAGUR 24. MARS 2016
ÍÞRÓTTIR
Petrúnella Skúladóttir Reyndasti leikmaður Grindavíkurliðsins sem er komið í úrslitakeppni Íslandsmótsins
í körfubolta. Driffjöður í liðinu, fær samherjana til að rífa sig upp og gerir miklar kröfur á sjálfa sig. 4
Íþróttir
mbl.is
Robbie Sigurðs-
son, leikmaður
SR, hefur fengið
leikheimild með
íslenska landslið-
inu í íshokkí.
Hefur hann verið
valinn í æf-
ingahópinn fyrir
2. deild heims-
meistaramótsins
en Ísland leikur á
Spáni í apríl.
Robbie á íslenskan föður en er
fæddur í Bandaríkjunum 1993 og
ólst þar upp. Reglur alþjóða ís-
hokkísambandsins kveða á um að
leikmaður þurfi að hafa leikið í tvö
ár samfleytt í deildakeppni í landi
þess landsliðs sem hann sækir um
að leika fyrir. Robbie hefur nú leik-
ið síðustu tvö tímabil með SR. Hann
lék einnig með liðinu tímabilið
2011-2012 en lék í millitíðinni í
Bandaríkjunum. kris@mbl.is
Löglegur með
landsliðinu
Robbie
Sigurðsson
Ísland og Danmörk mætast í 23.
skipti í A-landsleik karla í knatt-
spyrnu í kvöld en þjóðirnar eigast
þá við í Herning á Jótlandi.
Saga viðureigna þjóðanna í milli
er jafngömul landsliðssögu Íslands
því fyrsti leikurinn í sögu íslenska
landsliðsins var einmitt gegn Dön-
um á Melavellinum árið 1946. Dan-
ir sigruðu 3:0 og hafa allt frá þeim
tíma verið erfiðasti andstæðingur
Íslands á knattspyrnuvellinum.
Af 22 viðureignum þjóðanna hef-
ur Ísland nefnilega ekki unnið eina
einustu. Fjórum sinnum hafa þær
gert jafntefli en 18 sinnum hafa
Danir fagnað sigri. Stundum stór-
sigri en aldrei þó eins og árið 1967
þegar þeir unnu 14:2 í Kaupmanna-
höfn. Markatalan er 71:13, Dönum í
hag, en þeir hafa tvisvar skorað sex
mörk gegn Íslandi og tvisvar fimm.
Sex síðustu leikir þjóðanna hafa
endað með dönskum sigri. Sá tæp-
asti af þeim var á Parken í Kaup-
mannahöfn í september 2010 en
Danir unnu þá 1:0 á marki í upp-
bótartíma.
Þá voru Aron Einar Gunnarsson,
Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann
Berg Guðmundsson allir ungir leik-
menn með örfáa landsleiki að baki í
byrjunarliði Íslands, Birkir Már
Sævarsson var hægri bakvörður og
þeir Kolbeinn Sigþórsson og Birkir
Bjarnason komu inn á sem vara-
menn.
Þessir leikmenn eru allir í
stórum hlutverkum í dag og spila
eflaust allir í Herning í kvöld en
leikurinn hefst klukkan 19 að ís-
lenskum tíma.
Nú eru Danir í því óvenjulega
hlutverki að vera ekki á leið á stór-
mót og mæta Íslandi sem er á leið
á EM í Frakklandi. Åge Hareide
stýrir Dönum í fyrsta sinn í kvöld
en hann tók við af Morten Olsen
um áramótin. vs@mbl.is
Erfiðasti mótherjinn í sögunni
Kemur fyrsti
sigurinn í 23. til-
raun í Herning?
Ljósmynd/Gísli Baldur
Parken Gylfi Þór Sigurðsson með
boltann í ósigrinum nauma gegn
Dönum fyrir sex árum.
María Þórisdóttir, landsliðskona
Noregs í knattspyrnu, hefur ekki
getað spilað síðan hún meiddist á
fæti í ágúst. María fékk þær fréttir
frá læknum í gær að hún gæti þurft
að leggja skóna á hilluna, fengi hún
ekki rétta meðferð.
Jón Páll Pálmason, sem þjálfar
Maríu hjá úrvalsdeildarliðinu
Klepp, sagði við Morgunblaðið í
gær að búið væri að senda hana sér-
fræðinga á milli og stöðugt væru að
koma nýjar greiningar.
„Ég trúi því ekki að ferlinum sé
lokið en þetta virðast vera sjaldgæf
meiðsli. Liðband slitnaði þegar stig-
ið var á ristina á henni og svo fékk
hún beinmar. Þetta hefur verið erf-
iður tími en hún hefur í raun verið á
spinninghjólinu í hálft ár og æft
mjög vel. En um leið og hún reynir
að skokka, kemur bakslag,“ sagði
Jón Páll um íslenska Norðmanninn
í liði sínu. vs@mbl.is
Óvissa með
ferilinn
hjá Maríu
Sara Björk
Gunnarsdóttir og
samherjar henn-
ar í sænska
meistaraliðinu
Rosengård voru
óheppnar að
tapa 0:1 fyrir
Evrópumeist-
urum Frankfurt
á heimavelli í
átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Dzenifer Mar-
oszán skoraði sigurmarkið úr víta-
spyrnu á 71. mínútu.
Rosengård var sterkari aðilinn
lengst af og litlu munaði að Sara
jafnaði undir lokin þegar bjargað
var á marklínu eftir skalla hennar.
Rosengård varð fyrir áfalli eftir
tíu mínútna leik þegar markvörð-
urinn Erin McLeod fór meidd af
velli. Seinni leikur liðanna fer fram
í Frankfurt næsta miðvikudag.
vs@mbl.is
Sara nærri
því að jafna
Sara Björk
Gunnarsdóttir
Ellert Sölvason spilaði sinn síðasta
landsleik í Árósum árið 1949 þegar Ís-
land sótti Danmörku í fyrsta sinn heim
í A-landsleik karla í knattspyrnu.
Ellert fæddist 1917 og var þekkt-
astur sem „Lolli í Val“ en hann lék all-
an sinn feril með Valsmönnum, til árs-
ins 1951, og varð sjö sinnum
Íslandsmeistari með liðinu, þar sem
hann var lengst af í stóru hlutverki.
Hann var markahæsti leikmaður Ís-
landsmótsins árið 1942. Ellert lék fjóra
fyrstu landsleiki Íslands á árunum
1946 til 1949. Hann lést árið 2002.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR
DAGSINS