Morgunblaðið - 24.03.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 24.03.2016, Síða 2
Í KAPLAKRIKA Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Vel stemmdir Gróttumenn innbyrtu öruggan og sanngjarnan sex marka sigur, 34:28, á móti FH-ingum í næst síðustu umferð Olís-deildar karla í handknattleik í Kaplakrika í gærkvöld. Eftir gott gengi í undanförnum leikj- um komu Gróttmenn FH-ingum niður á jörðina og liðin höfðu sætaskipti á stigatöflunni. Grótta er komin í 5. sæti með jafnmörg stig og FH en stendur betur að vígi í innbyrðisleikjum. Bæði lið eiga enn möguleika á að ná fjórða sætinu og tryggja sér þar með heima- vallarréttinn í fyrstu umferð úr- slitakeppninnar en þau eru stigi á eftir ÍBV sem er í fjórða sætinu. Í loka- umferðinni tekur Grótta á móti Vík- ingi, FH fær ÍR í heimsókn og Eyja- menn sækja Aftureldingu heim. Fyrri hálfleikurinn var sveiflu- kenndur þar sem bæði lið náðu góðu áhlaupum en það fór lítið fyrir varn- arleik og markvörslu. Gróttumenn höfðu þriggja marka forystu af loknum fyrri hálfleik og eftir að þeir náðu að þétta raðirnar í vörninni og Lárus Gunnarsson hrökk í stuð sigldu Gróttumenn öruggulega fram úr FH- ingum og það var aðeins spurning hversu stór sigur Seltirninga yrði. Liðsheildin var aðal Gróttumanna og margir skiluðu góðum leik eins og Þráinn Orri Jónsson, Finnur Ingi Stef- ánsson, Vilhjálmur Geir Hauksson og Daði Laxdal Gautason. Sóknarleik- urinn gekk vel upp hjá nýliðunum og stemningin og sigurviljinn miklu meiri heldur en hjá FH-ingum. FH, sem hefur átt mjög góðu gengi að fagna eftir áramótin, náði sér aldrei á strik. Vissulega hafði það mikil áhrif á sóknarleikinn að Ásbjörn Frið- riksson heltist úr leik eftir 10 mínútur vegna meiðsla en varnarleikur liðsins var í molum og markvarslan eftir því. Einar Rafn Eiðsson og Jóhann Birnir Ingvarsson áttu góða spretti en aðrir náðu sér ekki á strik.  Afturelding verður með heima- leikjarétt í átta liða úrslitum en Mos- fellingar náðu þriðja sætinu af ÍBV með sigri norður á Akureyri, 26:24.  ÍBV lá óvænt heima gegn botnliði Víkings, 31:35, og er í fjórða sæti. Í lokaumferðinni munu því ÍBV, FH og Grótta slást um fjórða sætið og heima- leikjaréttinn.  Valur vann Fram, 23:22, á Hlíð- arenda eftir að hafa verið undir, 18:21, rétt fyrir leikslok. Garðar B. Sig- urjónsson gerði 12 mörk fyrir Fram- ara. Þar með er ljóst að Fram og Ak- ureyri verða í 7. og 8. sæti og mæta Haukum og Val í 8 liða úrslitum, en hvort mætir hvoru skýrist í loka- umferðinni. Haukar burstuðu fallna ÍR-inga, 32:19. Grótta í góðri stöðu í sla  Vann FH á sannfærandi hátt  Aftur- elding fær heimaleikjarétt  ÍBV, Grótta og FH í baráttunni um fjórða sætið Morgunblaðið/Styrmir Kári Návígi Guðni Ingvarsson úr Gróttu og Daníel Matthíasson úr FH í Kaplakrika. Í KEFLAVÍK Skúli B. Sigurðsson skulibsig@mbl.is Flestir ef ekki allir höfðu afskrifað Keflvíkinga í einvígi þeirra gegn Tindastól fyrir gærkvöldið. Keflvík- ingar höfðu komið sér í þá holu að vera undir 2:0 í einvíginu og urðu að vinna ella væru þeir á leið í sum- arfríið. Svo fór að lokum að þeir komu sáu og sigruðu með mikilli baráttu. 95:71 varð loka niðurstaða kvöldsins og skilaboð Keflvíkinga nokkuð skýr: Aldrei afskrifa okkur! Liðin mætast nú í fjórða sinn á Sauðárkróki á mánudagskvöldið. Þetta byrjaði þó ekkert vel hjá þeim heimamönnum og allt stefndi í enn einn 100 stiga leikinn hjá þeim varnarlega því eftir fyrsta fjórðung höfðu gestirnir skorað 31 stig og leiddu með 6 stigum. En Keflvíkingar settu þá allt púður í byssurnar og hófu árás á báðum endum vallarins. Liðið var farið að leika eins og það gerði best hérna fyrir áramót. Menn að vinna hver fyrir annan og með hverri mínútu leiksins virtist sjálfstraustið hjá liðinu aukast. Tindastólsmenn sem framan af leik voru aldrei langt undan voru end- anlega slegnir út af laginu um miðjan fjórða leikhluta þegar Keflvíkingar höfðu þá skorað einhver 10 stig í röð og komnir í 20 stiga forystu. Baráttan um fráköstin réð úrslitum Maður veit í raun ekki alveg hvað gerist hjá þeim Tindastólsmönnum nema bara það að þeir mættu særðum Keflvíkingum sem vissu upp á hár hvað var í húfi þetta kvöldið. Þeir voru svo sem að spila sinn leik að mestu en hittu illa úr skotum sínum, jafnvel þeim auðveldustu undir körfunni. En saga leiksins liggur í frákastabarátt- unni þar sem Keflvíkingar tóku 20 fráköstum fleiri en gestir sínir. Jerome Hill var í krossferð þetta kvöldið og langt frá því að játa sig sigraðan af liðinu sem losaði sig við hann fyrr í vetur. Hill barðist af öllum kröftum frá fyrstu mínútu og það skil- aði honum 28 stigum og 21 frákasti ásamt því að spila fantavörn á Myron Dempsey sem náði sér aldrei á strik í leiknum. Nú heldur einvígið aftur norður á Sauðárkrók og spilað er næsta mánu- dag. Þar þurfa Keflvíkingar að halda sömu baráttu innan síns liðs og þá sérstaklega í varnarleiknum. Það er nú ekki á hverjum degi sem lið koma til baka í einvígi eftir að hafa lent 2:0 undir. En eitt lið hefur afrekað það í sögu úrvalsdeildarinnar og það eru jú einmitt Keflvíkingar. Hill í kross- ferð gegn Tindastóli Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Hefnd Jerome Hill sækir og Helgi Rafn Viggósson verst. Hill lét Sauðkrækinga heldur betur finna fyrir sér og kemur nú aftur á Krókinn með Keflvíkingum.  28 stig og 21 frákast gegn gömlu félögunum  Einvígið heldur áfram 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2016 Lengjubikar karla A-DEILD, riðill 3: ÍA – KR...................................................... 0:4 Hólmbert Friðjónsson 30., Morten Beck 69., Finnur Orri Margeirsson 75., Morten Beck Andersen 87. Rautt spjald: Ólafur Valur Valdimarsson (ÍA) 45.  Víkingur R. 12, ÍA 7, KR 7, HK 4, Hauk- ar 3, Grindavík 2. KR á eftir að mæta Grindavík og Víkingur R. mætir ÍA. B-DEILD, riðill 1: Grótta – Afturelding ................................ 4:0  Grótta 9, Afturelding 9, Njarðvík 3, Vængir Júpíters 0, Álftanes 0, Reynir S. 0. Vináttulandsleikir karla Króatía – Ísrael ........................................ 2:0 Rúmenía – Litháen................................... 1:0 Pólland – Serbía ....................................... 1:0 Meistaradeild kvenna 8 liða úrslit, fyrri leikir: Rosengård – Frankfurt .......................... 0:1  Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik- inn með Rosengård en Andrea Thorisson var ekki í hópnum. Wolfsburg – Brescia................................. 3:0 Barcelona – París SG ............................... 0:0 Lyon – Slavia Prag................................... 9:1 KNATTSPYRNA Olís-deild karla ÍR – Haukar.......................................... 19:32 Valur – Fram ........................................ 23:22 Akureyri – Afturelding ........................ 24:26 ÍBV – Víkingur ..................................... 31:35 FH – Grótta .......................................... 28:34 Staðan: Haukar 26 22 1 3 736:572 45 Valur 26 19 1 6 653:592 39 Afturelding 26 13 2 11 616:615 28 ÍBV 26 11 4 11 673:669 26 Grótta 26 11 3 12 669:688 25 FH 26 12 1 13 653:688 25 Fram 26 10 2 14 627:645 22 Akureyri 26 8 5 13 610:639 21 ÍR 26 7 2 17 657:713 16 Víkingur 26 4 5 17 601:674 13 1. deild karla Þróttur – Mílan..................................... 30:22 Þýskaland RN Löwen – Bergischer ..................... 28:20  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 5 mörk fyrir Löwen en Alexander Petersson skoraði ekki.  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Bergischer. Björgvin Páll Gústavsson varði 11 skot. Lemgo – Füchse Berlín....................... 26:34  Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir Füchse. Erlingur Richardsson þjálfar liðið. Staða efstu liða: RN Löwen 24 21 0 3 679:535 42 Flensburg 24 19 2 3 716:596 40 Kiel 22 19 0 3 680:565 38 Melsungen 24 16 3 5 682:611 35 Füchse Berlín 24 14 3 7 693:626 31 Danmörk Bjerringb.Silkeborg – Aalborg ......... 24:19  Ólafur Gústafsson var ekki í leikmanna- hópi Aalborg vegna meiðsla. Mors-Thy – SönderjyskE.................... 25:28  Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 1 mark fyrir Mors-Thy en Róbert Aron Hos- tert skoraði ekki.  Árni Steinn Steinþórsson var ekki í leik- mannahópi SönderjyskE. Daníel Freyr Andrésson ver mark liðsins. Skive – Midtjylland ............................. 16:27  Vignir Svavarsson skoraði 4 mörk fyrir Midtjylland. Tvis Holstebro – KIF Kolding ........... 24:24  Egill Magnússon skoraði 5 mörk fyrir Holstebro en Sigurbergur Sveinsson var ekki í hópnum. Århus – GOG ........................................ 31:27  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3 mörk fyrir Århus. Skjern – Nordsjælland........................ 23:30  Jóhann Karl Reynisson var ekki í leik- mannahópi Nordsjælland.  Lokastaðan: Tvis Holstebro 39, Århus 35, Skjern 33, Bjerringbro/Silkeborg 33, KIF Kolding 30, GOG 30, Aalborg 28, Sön- derjyskE 27. Skanderborg 23, Mors-Thy 20, Ribe-Esbjerg 19, Midtjylland 19, Nor- dsjælland 16, Skive 12.  Átta efstu liðin leika um meistaratitilinn, Midtjylland og Nordsjælland fara í umspil en Skive er fallið. Frakkland Ivry – St. Raphaël ............................... 30:30  Arnór Atlason skoraði 4 mörk fyrir St. Raphael. Chambéry – Nimes ............................. 29:25  Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 6 mörk fyrir Nimes en Ásgeir Örn Hall- grímsson ekkert. Meistaradeild karla 16 liða úrslit, seinni leikur: Kiel – Pick Szeged............................... 33:26  Alfreð Gíslason þjálfar Kiel.  Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn.  Kiel áfram, 62:59 samanlagt og mætir Barcelona í 8 liða úrslitum. HANDBOLTI Kaplakriki, Olís-deild karla, mið- vikudaginn 23. mars 2016. Gangur leiksins: 2:4, 5:7, 8:11, 12:11, 14:14, 15:18, 17:21, 18:23, 20:25, 22:28, 23:32, 28:34. Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson 9/2, Jóhann Birgir Ingvarsson 7, Ágúst Birgisson 3, Þorgeir Björnsson 2, Halldór Ingi Jónasson 2, Benedikt Reynir Kristinsson 2, Ásbjörn Frið- riksson 2, Andri Berg Haraldsson 1. Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 5, Brynjar Darri Baldursson 4. Utan vallar: 4 mínútur Mörk Gróttu: Finnur Ingi Stef- ánsson 7/2, Þráinn Orri Jónsson 6, Vilhjálmur Geir Hauksson 5, Daði Laxdal Gautason 5, Aron Dagur Pálsson 4, Viggó Krist- jánsson 3, Guðni Ingvarsson 2, Árni Benedikt Árnason 1, Þorgeir Bjarki Davíðsson 1. Varin skot: Lárus Gunnarsson 15. Utan vallar: 4 mínútur Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Ómar Ingi Sverrisson. Áhorfendur: 873. FH – Grótta 28:34 TM-höllin, Dominos-deild karla, 8 liða úrslit, 3. leikur, miðvikudag 23. mars. Gangur leiksins: 5:10, 6:17, 17:23, 25:31, 29:37, 35:38, 45:41, 49:49, 60:49, 64:56, 71:62, 76:63, 76:65, 81:68, 89:68, 95:71. Keflavík: Jerome Hill 28/21 fráköst/3 varin skot, Magnús Már Traustason 24/8 fráköst, Valur Orri Valsson 17/9 fráköst/5 stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 7/4 fráköst, Reggie Dupree 7/8 fráköst, Ágúst Orrason 6, Andrés Kristleifsson 3/5 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 3. Fráköst: 41 í vörn, 16 í sókn. Tindastóll: Darrel Lewis 22/11 frá- köst, Viðar Ágústsson 11/5 fráköst, Anthony Gurley 11/4 fráköst, Myron Dempsey 9/8 fráköst/4 varin skot, Pétur Rúnar Birgisson 9/4 fráköst/5 stoðs., Helgi Rafn Viggósson 6/6 frá- köst, Helgi Freyr Margeirsson 3. Fráköst: 26 í vörn, 13 í sókn.  Staðan er 2:1 fyrir Tindastól. Keflavík – Tindastóll 95:71

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.