Morgunblaðið - 24.03.2016, Síða 4
Jötunn kynnir GOES fjórhjól á Íslandi
Goes er franskt fyrirtæki stofnað af nokkrum fyrrverandi lykilstjórnendum evrópudeildar Bombardier árið 2005.
Frá upphafi hefur áherslan verið lögð á framleiðslu einfaldra og vandaðra vinnuhjóla og eru hjólin í dag seld í 15
Evrópulöndum og framleiðslan er í allt um 4000 hjól á ári.
100.000 kr
kynningarafsláttur í mars!
Hafðu samband við okkur í síma 480 0400 fyrir frekari upplýsingar
• Driflæsing framan, sjálfstæð
afturfjöðrun, spil og stálfelgur.
• Lengd: 2120 mm
• Þyngd: 313 kg
• Vél: 493 cc
• 4x4 / 4x2
• Stillanlegir demparar
• Rafléttistýri
• Diskabremsur framan og aftan
• Dekk framan: 25x8x12”
• Dekk aftan: 25x10x12”
• 12“ stálfelgur
• Bensíntankur: 19L
• Litur: Svartur
með vsk
GOES 520 Kr. 1.239.000
• Driflæsing , sjálfstæð fjöðrun ,
spil og álfelgur.
• Lengd 2300 mm
• Þyngd 352 kg
• Vél: 594 cc
• 4x4 / 4x2
• Stillanlegir gasdemparar
framan og aftan.
• Diskabremsur framan og aftan
• Dekk framan: 25x8x14“
• Dekk aftan: 25x10x14“
• Álfelgur 14“
• LCD skjár
• Bensíntankur: 19L
• Litur: Hvítur
með vsk
Kr. 1.490.000GOES 625i
• Driflæsing , sjálfstæð fjöðrun,
spil og álfelgur.
• Lengd: 2320 mm
• Þyngd: 323 kg
• Vél: 493 cc
• 4x4 / 4x2
• Stillanlegir demparar.
• Rafléttistýri
• Diskabremsur framan og aftan
• Dekk framan: 25x8x12“
• Dekk aftan: 25x10x12“
• Álfelgur 12“
• LCD skjár
• Bensíntankur: 19L
• Litur: Grár
með vsk
Kr. 1.297.000GOES 520 LTD
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Verð án vsk. á kynningartilboði:
GOES 625i Kr. 1.201.685,- án vsk.
Verð án vsk. á kynningartilboði:
GOES 520 LTD Kr. 1.046.031,- án vsk.
Kr. 1.339.000 Kr. 1.590.000
Verð án vsk. á kynningartilboði:
GOES 520 Kr. 999.254,- án vsk.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2016
Leikur karlalandsliðsins í
knattspyrnu gegn Dönum í Hern-
ing í kvöld markar upphafið að
lokaundirbúningi liðsins fyrir
Evrópumótið í Frakklandi í sumar
og er fyrsta „genaralprufan“ hjá
Heimi, Lars og lærisveinum
þeirra áður en þeir stíga inn á
stóra sviðið þegar þeir mæta
Portúgölum í fyrsta leiknum í Sa-
int-Étienne þann 14. júní.
Það eru leikmenn í hópnum
sem eru berjast fyrir því að kom-
ast í lokahópinn og leikurinn í
kvöld og eins leikurinn á móti
Grikkjum á þriðjudaginn getur
ráðið úrslitum hvort þeir hljóti
náð fyrir augum landsliðsþjálf-
aranna eða ekki.
Sverrir Ingi Ingason, Hörð-
ur Björgvin Magnússon, Hjörtur
Hermannsson, Ögmundur Krist-
insson, Ingvar Jónsson, Ólafur
Ingi Skúlason og Arnór Ingvi
Traustason eru í hópnum í þess-
um leikjum en þetta eru allt
strákar sem eru að berjast fyrir
því að fá farseðilinn á EM.
Vonandi fá strákarnir okkar
fljúgandi start í þessum lokaund-
irbúningi og fara með sigur af
hólmi á móti Dönum og skrifa
þar með nýjan kafla í sögu lands-
liðsins. Staðreyndin er nefnilega
sú að Íslendingar hafa aldrei
fagnað sigri gegn gömlu herra-
þjóðinni en leikurinn í kvöld er sá
23. í röðinni.
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
28. UMFERÐ
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Petrúnella Skúladóttir lagði svo
sannarlega sitt af mörkum með liði
Grindavíkur þegar það hafði betur
gegn grönnum sínum í Keflavík í
baráttu liðanna um fjórða sætið í
Dominos-deild kvenna í körfuknatt-
leik og þar með sæti í úrslitakeppn-
inni. Petrúnella skoraði 16 stig og
tók 2 fráköst í 84:77 sigri Grindvík-
inga og hún er leikmaður 28. og
lokaumferðarinnar í deildinni.
„Hún er okkar reynslumesti leik-
maður og hefur verið einn besti
leikmaðurinn í deildinni undanfarin
ár,“ sagði Daníel Guðni Guðmunds-
son, þjálfari Grindvíkinga, við
Morgunblaðið þegar hann var beð-
inn um að lýsa Petrúnellu.
Petrúnella er 30 ára gömul og
leikur í stöðu framherja. Hún hefur
leikið allan sinn feril með Grindavík
fyrir utan tímabilið 2011-12 þegar
hún lék með Njarðvík. Þá hefur hún
átt fast sæti í íslenska landsliðinu
undanfarin ár og hefur þar verið
öflugur liðsmaður sem leggur sig
ávallt vel fram.
Lenti í erfiðum höfuðmeiðslum
„Petrúnella lenti í erfiðum höf-
uðmeiðslum í haust og var lengi frá
en á undanförnum vikum hefur
verið mikil stígandi í hennar leik og
hún er nálgast sitt allra besta form.
Það munar miklu fyrir okkur að
geta nýtt hennar krafta bæði í sókn
og vörn. Þó svo að skotin séu ekki
alltaf að detta niður hjá henni er
alltaf hægt að treysta því að hún
skili góðum varnarleik. Hún gerir
miklar kröfur á sjálfa sig til þess
að ná árangri og er mikil driffjöður
í okkar liði,“ segir þjálfarinn Daní-
el Guðni við Morgunblaðið.
Gott að geta leitað til hennar
Í leikjunum 19 sem Petrúnella
hefur spilað með Grindvíkingum í
deildinni hefur hún skorað 10,1
stig að meðaltali, tekið 3,2 fráköst
og hefur átt 2 stoðsendingar.
„Reynsla hennar nýtist liðinu af-
ar vel og stelpurnar hlusta á hana
og fylgja hennar fordæmi. Þegar
hún á sína bestu leiki og gefur sig
alla í leikina þá fylgja hinar með.
Hún hefur þann eiginleika að fá
samherja sína til að rífa sig upp
þegar á móti blæs. Það er gott að
geta leitað til hennar þegar hlut-
irnir eru ekki að ganga alveg eins
og þeir eiga að gera. Hún hefur
gegnt fyrirliðastöðunni undanfarin
ár og er núna varafyrirliði. Hún
þekkir körfuboltaíþróttina út og
inn og er bara virkilega mik-
ilvægur hlekkur í Grindavíkurlið-
inu,“ sagði Daníel Guðni en
Grindavík mætir deildarmeist-
urum Hauka í úrslitakeppninni en í
hinni viðureigninni eigast við Ís-
lands- og bikarmeistarar Snæfells
og Valur.
Að nálgast sitt besta form
Petrúnella Skúladóttir er mikil driffjöður í liði Grindavíkur sem er komið í
úrslitakeppnina Hún gerir miklar kröfur á sjálfan sig, segir Daníel þjálfari
Morgunblaðið/Ómar
Ákveðin Petrúnella Skúladóttir hefur um árabil verið í stóru hlutverki í liði
Grindvíkinga og spilað um tvö hundruð leiki með því í efstu deild.
Körfubolti kvenna: Leikmaður umferðarinnar