Víkurfréttir - 12.08.1993, Page 6
6
12. ÁGÚST 1993
Yikurfréttir
YÍkurfréttir
12. ÁGÚST 1993
7
V/? HafiégeinhverntímaveriðundirþaðbúinnaðsigraekkiíLandsmótivarþaðnúna.Hinar
*T\ stelpurnar hafa verið að sækja í sig veðrið og því átti ég alveg eins von á að vinna ekki. Ég hef
aldrei leikið jafn mikið golf, í fyrsta skipti sem ég hef ekki tekið neitt frí. Ég var að Ijúka mínu
fyrsta ári í Bandaríkjunum og síðan kom ég beint heim í keppnir. Golf er ekki bara leikur. Þetta getur verið
puð og það þarf að taka sér hvíld frá öllu í einhvern tíma. En þetta hafðist og það var gaman að innbyrða
fimmta titilinn í röð", segir Karen Sævarsdóttir, sem varð íslandsmeistari kvenna í golfi en Landsmótinu lauk
á Hólmsvelli í Leiru á föstudag fyrir verslunarmannahelgi.
Frá ltalíu beint í titilvöm
Karen varð fyrst íslands-
meistari kvenna 1986 á Hólms-
velli. Hún hefur sigrað á hverju ári
síðan. I fyrsta skipti var keppandi
frá íslandi á Evrópumeistaramóti
einstaklinga í kvennaflokki í áren
mótið fór fram í Tórínó á Italíu
síðustu dagana fyrir Landsmót og
Karen kom heim daginn fyrir
mótið. Henni gekk mjög vel,
komst í gegnum niðurskurðinn af
um 150 keppendum sem þykir
mjög gott. „Þetta var meiriháttar
völlur og það var náttúrlega
skemmtilegt að komast áfram. Eg
lék á 80-76-73-81 eða samtals 310
höggum. Völlurinn er mjög lang-
ur eða svipaður og Hólmsvöllur
á karlateigum", segir Karen sem
náði besta árangri kvenna á
Norðurlandamóitnu í fyrra þegar
hún varð í 2. sæti, einu höggi á
eftir norski stúlku.
„Ég byrjaði vel í Landsmótinu
og var ánægð að koma inn á 79
höggum fyrsta daginn, því það er
alltaf erfitt að koma úr allt öðrum
aðstæðum og veðri, eins og var í
þessu tilviki. Mér gekk hræðilega
annan daginn (86 högg) og þá var
Olöf María Jónsdóttir aðeins einu
höggi á eftir mér, þannig að allt
gat gerst. En þriðja daginn gekk
mér mjög vel, kom inn á 75
höggum og átti þá níu hö£g á O-
löfu fyrir síðasta daginn. Ég bætti
um betur síðasta daginn og í lokin
munaði tíu höggum“.
-Hvað heldurðu að haft ráðið
úrslitum?
„Ég held að þekking mín á
Hólmsvelli hafi komið mér til
góða því ég var þó nokkuð frá
mínu besta. Veðrið var ekki hag-
stætt til golfleiks og þó ég haft
ekki náð mínu besta dugði það til
sigurs.
Sjaldan fellur eplið....
Karen er kominn niður í 2,5 í
forgjöf og stefnir enn lægra. Hún
keppir um helgina í Norð-
urlandamótinu með liði Islandsen
það fer fram í Finnlandi að þessu
sinni. Mótið er með breyttu fyr-
irkomulagi. Ekki er keppt í ein-
staklingskeppni nema annað
hvert skipti þannig að ekki á
Karen möguleika á að verða
Norðurlandameistari einstaklinga
að þessu sinni, en hún segist
vonast til þess að liðinu gangi vel
eins og í fyrra.
Móðir Karenar, Guðfinna Sig-
Karen
Viðtal: Páll Ketilsson.
Myndir: pket. og mad.
segir að...
frisvar Það styttist í tugtnn...
Fimmfaldur Islandsmeistari
kvenna í golfi, Karen Sævarsdóttir
íverðlaunaliafi. „Það er mikið verk
að þurrka af þessu öllu", segir hún.
...draumurinn sé auðvitað að geta unnið fyrir sér með því að
KYLFUNNI ALLA DAGA
í keppnir. Það er ansi mikið. En
nú er ég að hefja mitt annað ár og
það verður vonandi miklu auð-
veldara því þá er ekki allt nýtt
fyrir manni“.
Skólinn hefst 23. ágúst hjá
Karenu og hún missir því af
sveitakeppni Golfsambands Is-
lands. „Ég hefði viljað spila í því
móti og hjálpa mínum klúbbi.
Vonandi kemst ég í mótið á næsta
ári en þetta er einungis spuming
um hvenær skólinn byrjar og
hvenær þetta mót er tímasett hér
heirna".
Fjárfrekt
En hverja telur Karen mögu-
leikana á atvinnumensku vera?
„Það er ekki nóg að vera góður
kylfingur. Það kostar mikla pen-
inga að taka þátt í úrtökumótum
fyrir atvinnumannakeppnir. Eitt
ár í keppnishaldi, með ferða-
lögum og uppihaldi kostar um 3
milljónir króna. Heppni spilar
mikið inn í. Ef maður nær að
standa sig vel í einu móti getur
manni staðið til boða þátttaka í
fleiri mótum...og ef boltinn ratar
rétta leið í holuna, holu eftir holu
eftir holu...þá fær ntaður góða á-
vísun og þá myndi þetta byrjað að
rúlla fyrir einhverri alvöru. Nú er
ég að tala í óskhyggju og draumi
en hver veit nema að þetta eigi
eftir að rætast. Draumurinn er
auðvitað að geta unnið fyrir sér
með því að sveifla kylfunni alla
daga...
Fjórir flokka-
meistarar fró
Suðurnesjum
Fyrir utan Karenu eignuðust
Suðurnesjamenn fjóra flokka-
meistara á Landsmótinu í golfi.
I 3. flokki karla sigraði Júlíus
Steinþórsson, GS. Högni R.
Þórðarson, GS, vann í 2. flokki
karla og í 2. flokki kvenna sigr-
aði Sigrún Sigurðardóttir, GG.
Þá var Rut Þorsteinsdóttir ör-
uggur sigurvegari í 1. flokki
kvenna.
Móðirin
meistari fyrir
25 órum
Guðfinna Sigurþórsdóttir var fyrsti
lslandsmeistari kvenna í golfi 1968
ogKaren sigraði ífimmta sinn núna,
nákvæmlega tuttugu og fimm árum
frá fyrsta sigri Guðfinnu en hún
sigraði alls þrisvar sinnum imótinu.
Myndin að ofan er tekin af henni í
Leirunni á Itennar meistaraárum.
urþórsdóttir var fyrsti íslands-
meistari kvenna, árið 1968 og
sigraði þrisvar sinnuni á árunum
68-71. Það vill svo skemmtilega
til að nú þegar Karen var að vinna
fimmta árið í röð eru liðin tuttugu
og fimm ár frá því móðir hennar
varð fyrsti íslandsmeistari
kvenna. Guðfinna segir að megin
munurinn á kvennagolfi nú og þá
sé aðstaðan. „Þetta var á algjöru
frumstigi þegar ég var á fullu í
þessu og það hafa rniklar fram-
farir átt sér stað á þessum árum.“.
Guðfinna segir að öll fjöskyldan
sé á fullu í golfinu og styðji við
bakið á Karenu, „það þarf mikinn
stuðning í þessari íþrótt og við
reynum eftir fremsta megni að
taka þátt í þessu með henni“.
Aðrir fjölskyldumeðlimir spila
einnig gott golf, faðirinn Sævar
Sörensson hefur orðið flokka-
meistari á Landsmóti og son-
urinn, Sigurþór hefur eins og
mamman og systirin orðið ís-
landsmeistari, en það var í ung-
lingaflokki fyrir fjórum árum
síðan, en þá reyndar sigraði Karen
í stúlknaflokki. Það var sann-
kallaður systkinasigur. Unnusti
Karenar er sjálfsögðu forfallinn
golfari, en það er enginn annar en
Jón H. Karlsson, sonur gam-
alkunnugs íþróttamanns og síðar
dómara, Karls Jóhannssonar. Jón
kennir golf á nýjum golfvelli
Oddfellowstúkunnar og hefur af-
salað sér áhugamannaréttindun-
um. „Hann kentur með mér út
þegar ég gerist atvinnumaður og
verður kylfusveinn hjá mér“,
segir Karen með bros á vör en
strax þegar hún kemur úr Norð-
urlandamótinu í næstu viku,
heldur hún til Bandaríkjanna í
nám og meira golf....
Draumurinn...
„Auðvitað er draumurinn að
fara í atvinnumennsku. En fyrst
þarf ég að klára skólann", segir
Karen en hún stundar hag-
fræðinám í Lamar University í
Texas í Bandaríkjunum. „Mér
hefur gengið vel og var fasta-
maður í fimm manna liði skólans
sem hefur á nokkuð sterku liði á
að skipa. Við æfum mikið og
keppunt einnig oft, alls tíu sinnum
eða fimm mót á hvorri önn. Þetta
er mjög stíft prógramm því hver
keppni tekur tæplega viku og svo
þarf oft að leika í undankeppnum
um sæti í liðinu. Það eru mikil
ferðalög og bara á þessu fyrsta
skólaári mínu fór ég til sjö fylkja
Meistarasveifla
Karen ermeð 2,5 íforgjöfsem er langlægstaforgjöfsem kvenkylfingurhefurnokkum tíma náð hérálandi. Einn helst styrkleiki hennar er liögglengdin. Margur karlmaðurinn mundi
vilja eiga upphafsltöggin hennar, sé nú ekki talað unt glæsilega sveiflu hennar.