Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.08.1993, Side 11

Víkurfréttir - 12.08.1993, Side 11
\ikurfréttir 12. ÁGÚST 1993 11 ♦ Óli Þór Magnússon skoraði þrennu gegn IBV á mánudagskvöldið og hefur skorað þrjú mörk með skalla í síð- ustu tveimur leikjum. mynd: pket. Milljóna-skalli ÓLA ÞÓRS „Þú þarft ekki endilega að vera stór til að skora skallamörk. Þetta er spumingin um að vera á réttum tíma á réttum stað. Gunni Odds á stóran þátt í þessum mörkum mínum í sumar. Hann hefur átt flestar sendingarnar á mig sem hafa gefið mörk“, sagði Óli Þór Magnússon, nýjasti „gullskalli" Getraunadeildarinnar. Óli Þór er ann- ar markahæsti leikmaður Getrauna- deildarinnar í knattspymu, hefur skorað 9 mörk. I síðustu leikjum hefur hann skorað mikilvæg mörk. Hann skoraði sigurmark IBK gegn Vík- ingum á síðustu mínútu, gegn Val í Mjólkurbikamum og var í miklu stuði gegn Eyjamönnum á mánudags- kvöldið. Milljónamark gegn Val Óli Þór skoraði sigurmark ÍBK gegn Valsmönnum í Mjólkurbik- amum í síðustu viku, - með glæsi- legum skalla efst í markhomið, á síð- ustu sekúndum leiksins. Markið kom IBK í úrslitaleikinn gegn Skaga- mönnum, sem hafa nokkuð örugglega tryggt sér Islandsmeistaratitilinn. Það gerir það að verkum að IBK hefur unnið sér þátttökurétt í Evrópukeppni bikarhafa á næsta ári, hvernig sem bikarleikurinn fer, því IA leikur í Evrópukeppni meistaraliða. „Þetta er örugglega dýrmætasta mark sem ég hef skorað og það er ánægjulegt. Mér hefur verið sagt að það eigi eftir að skila einhverjum milljónum í sjóði félagsins, vonandi rætist það.“ -Nú eru skallamenn yfirleitt há- vaxnir, en varla er hægt að segja það um þig? „Ég er rétt fyrir neðan 180 senti- metrana og þar af leiðandi langt frá því að vera risi, en ég skora samt skallamörk. Auðvitað er gott að hafa hæð í skallaeinvígjum en það er ekki nóg fyrir mig að skora bara með skalla". Ekki mólið hver skorar Óli Þór skoraði þrennu gegn ÍBV og tvö markanna með skalla, fyrsta og fjórða markið. „Auðvitað er skemmtilegt að skora en það er ekki aðal málið hver skorar, heldur að liðið skori og því gangi vel. Við höfum komið á óvart í sumar þó svo við höfum átt okkar slöku leiki eins og flest önnur lið. Númer eitt er að ná fleiri stigum í næstu tveimur leikjum. Þá getum við alveg hætt að hugsa um einhverja fallbaráttu og einbeitt okkur vel að bikarúrslitaleiknum. Sigurinn gegn IBV var mjög mikilvægur því það voru mörg lið í einum hnapp í miðri deildinni." Óli Þór er næst leikjahæsti nú- verandi leikmaður ÍBK, á að baki 148 leiki í 1. deild fyrir ÍBK og Þór, 132 fyrir IBK og 13 fyrir Þór. Hann hefur leikið með öllum landsliðum Islands, fjóra með U-16, jafn marga með U-18 og U-21 og þá á Óli Þór tvo A- landsleiki að baki. - gegn slöku liði Eyjamanna, 4:0 sigur síst ofstór „Við gáfum þeim engan frið og strákamir voru sívinnandi allan leik- inn. Það var auðvitað mjög sterkt að skora seint í fyrri hálfleik og snemma í þeim seinni. Það var rothöggið. Eft- irleikurinn var formsatriði“, sagði Kjartan Másson, þjálfari IBK eftir yf- irburðasigur á lakasta IBV-liði sem keppt hefur í Keflavík í mörg ár. Keflvíkingar skoruðu fjögur mörk en þau hefðu getað orðið mun fleiri því heimamenn óðu hreinlega í færum allan leikinn. Með þessum sigri skut- ust Keflvíkingar í 4. sæti Get- raunadeildarinnar og eru með 17 stig. Óli gullskalli Óli Þór Magnússon skoraði senni- lega mikilvægasta mark sitt á ferlinum þegar hann skallaði knöttinn í netið hjá fyrrverandi Keflvíkingnum í Valsmarkinu, Bjama Sigurðssyni, í bikarleik ÍBK og Vals á dögunum. Kollurinn á Óla var greinilega enn heitur því hann sneiddi boltann með sjóheitu „enninu" á 30. mínútu í leiknum á mánudagskvöldið gegn IBV, eftir sendingu frá Gunnari Oddssyni. Óli Þór bætti við mark- areikninginn sinn á síðustu mínútu fyrri hálfleiks með hörkumarki úr vítaspyrnu eftir að Marco Tanasic hafði verið felldur inn í teig. 2:0 í hálfleik. Rothöggið Rothögg Keflvíkinga á Eyja- peyjum kom á fyrstu mínútum síðari háifleiks. Marco Tanasic skoraði þá með viðstöðulausu skoti óverjandi fyrir Friðrik markvörð ÍBV, 3:0. Og Keflvíkingar héldu áfram að sækja. Þeir átti mörg fleiri góð tækifæri í fyrri hálfleik og í þeim síðari áttu þeir enn fleiri. Eitt mark bættist í safnið og enn var það Óli Þór sem skoraði. Gunnar Oddsson gaf góða sendingu langt inn í markteig og þar kom gullskallinn „dökkhærði" og skallaði léttilega yfir Eyjamarkvörðinn, 4:0. Níu stiga leikur „Þetta var níu stiga leikur“, sagði Sigurður Björgvinsson, aðstoðar- þjálfari og leikmaður ÍBK. Ef við hefðum tapað værum við í þriðja neðsta sæti en með sigrinum fórum við í fjórða sæti. Ég held að menn átti sig ekki á því hvað þetta var mik- ilvægur sigur. Við eigum erfiða leiki framundan, Fram í kvöld og Val á sunnudag, báða úti og vonandi tekst okkur jafn vel upp í þeim.“ Sigurður yfir 250 Sigurður Björgvinsson lék sinn 252. leik mánudagskvöldið gegn Eyjamönnum. Sigurður lék sinn 250. leik gegn Víkingi fyrir skömmu sem IBK vann 1:0. Hinn gamalreyndi knattspymumaður á að baki 199 leiki með IBK en hann lék sem kunnugt er 53 leiki með Vesturbæjarliðinu KR. Tvöhundraðasti leikur Sigurðar er í kvöld, gegn Valsmönnum. Jafnt hjá UMFG Grindvíkingar gerðu jafntefli við Stjömuna í Grindavík í fyrra- kvöld. Hvort lið skoraði eitt mark. Stjörnumenn sáu um að skora fyrir heimamenn því þeir gerðu sjálfs- mark en Bjami Benediktsson gerði mark Stjörnunnar. Með þessu jafntefli eru Grind- víkingar í fjórða sæti 2. deildar með 16 stig og eiga varla mögu- leika á sæti í 1. deild. Næst neðsta liðið í deildinni er þó með 12 stig og má því segja að sex lið í 2. deildinni geti verið í fallbaráttu. Arnar með þrennu í 6:3 sigri mömmustróka Mæðrasynir sigruðu Hómer ömgglega á Heiðarbólsvellinum sl. föstudag með sex mörkum gegn þremur. Hómersmenn skor- uðu þó tvö fyrstu mörkin í leiknum og leiddu þannig í hálfleik. En þá fór „bruðningsvér Mæðrasona í gang og skoruðu mömmu- strákamir sex mörk án þess að Hómer og félagar kæmu nokkrum vörnum við. Kurteisins vegna fengu Hómersmenn að bæta við marki fyrir leikslok. Lokatölur því 6:3. Amar Astþórsson skoraði þrennu fyrir Mæðrasyni en aðrir sem skoruðu voru Sigurður Svav- ar, Karl, og Ægir. í 4. deildinni sigruðu Njarð- víkingar Emi með sjö mörkum gegn þremur en Hafnamenn töp- uðu hins vegar fyrir Hvatberum 1:4. Fyrstí leikur Eysteins Eysteinn Hauksson, sem gekk tll liðs við ÍBK frá Hetli í vor lék sinn fyrsta leik með ÍBK gegn ÍB V á mánudag. Eysteinn er sterkur leikmaður og stóð sig vel í leinum. Hann á að baki ung- lingalandsleiki. Gestur í bann Gestur Gylfason er í leikbanni í næsta leik ÍBK í Get- raunadeildinni. Hann er kominn með fjögur gul spjöld og verður því ekki með liðinu gegn Fram í kvöld. Yfirburðir ÍBK

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.