Víkurfréttir - 21.10.1993, Side 1
• Sundlaugum fjölgar ört á Suðurnesjum:
SUNDSTAÐIR
HÉR FLEIRI EN
í REYKJAVÍK!
Almenningssundlaugar á Suðurnesjum eru orðnar fleiri en í
höfuðborg íslands, Reykjavík. Á Suðurnesjum eru sundlaugar
í öllum byggðarlöguin nema Höfnum, en í Reykjavík eru al-
menningslaugarnar einungis fjórar.
I Keflavík eru tvær sundlaugar, ein úti og önnur inni. Þá er
gert ráð fyrir 25 metra innilaug við sundmiðstöðina. I Njarðvík
er lítil innilaug og önnur útilaug á teikniborðinu. Þá eru stórar
sundlaugar i Garöi, Sandgerði og Vogum. Lítil útilaug er í
Grindavík og innan fárra mánaða verður tekið í notkun þar eitt
glæsilegasta sundmannvirki á Suðurnesjum. Þá má ekki
gleyma stórri sundlaug á Keflavíkurflugvelli og vinsælasta
baðstað á Suðurnesjum, Hláa lóninu.
Mikill áliugi er á sundíþróttinni á Suðurnesjum, enda er
þorri alls fremsta sundfólks landsins af Suðurnesjum. Erlingur
Jóhannsson hjá Iþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur sagði í
samtali við blaðið að með aukinni aðstöðu til sundiðkunar ættu
Suðurnesjamenn að ná enn lengra í þessari íþróttagrein.
Viðtaliö:
ODDGEIR myndar úti í
náttúrinni.
Kjaftasögur:
Valur Ketilsson skrifar
um Gróu á Leiti.
Kirkjustarf:
Fólk vill léttari guðs-
þjónustur. Sjá grein séra
Ólafs Odds.
• Þrír vertíðarbátar úr Garðinum:
Kvótinn að klárast
Þó aðeins séu liðnir rétt tæpir
tveir mánuðir af kvótaárinu eru
a.m.k. þrír vertíðarbátar úr
Garðinunt að verða búnir með
firkveiðikvóta sína. Bátarnir eru
Gunnar Hámundarson GK-357
og Hólmsteinn GK-20. Þá er
Katrín GK-98 að klára sinar
veiðiheimildir.
Júlíus Guðmundsson á
Hólmsteini GK sagði í samtali
við blaðið að hann væri hálfn-
aður með kvótann sem er 136
þorskígildistonn, Það tæki ekki
langan tíma að klára það sem
eftir væri. Þorvaldur Hall-
dórsson, útgerðarmaður Gunn-
ars Hámundasonar GK. sagði í
samtali við blaðið, að kvótinn
væri búinn, en báturinn væri að
ftska kvóta fyrir annan aðila.
FRÉTTIR
Sterar í umferð á
Suðurnesjum
Sterar hafa verið í umferð á
Suðurnesjum. Þetta kemur fram
í grein sem Hrafnkell Óskarsson,
yfirlæknir Sjúkrahúss Kefla-
víkurlæknishéraðs, skrifar í
blaðið í dag. 1 grein sinni fjallar
Hrafnkell um útlit karla og
kvenna og svokallaðar skrokka-
sýningar. - Sjá nánar um stera-
notkun í blaðinu í dag.
Þakka bílbeltum að
ekki fór illa
Bílvelta varð á Grinda-
víkurvegi nærri Seltjörn kl. 7.30
á mánudagsmorgun. Ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni í
liálku og valt út í móa. Þrír far-
þegar voru með ökumanninum.
Tvö börn voru í bílstólum í aft-
ursæti og beltuð niður og einnig
farjregi í framsæti. Aðkoman að
slysinu var ekki góð. þar sem
ýmsir smáhlutir úr bílnum höfðu
kastast langar leiðir og einnig var
skótau af börnunum sem hafði
kastasl langt frá bílnum. Engan
sem var í bílnum sakaði utan
þess að ökumaður kenndi smá
verkjar og þakkar hann því að allt
fór vel að allir voru í beltum og
börnin í bílstólum. Ökumaðurinn
sagði í samtali við lögrcglu að
hann gæti ckki hugsað það til
enda bílbeltin hefðu ekki verið
notuð.
18 tonn á fimm
tímum í netin
Það fiskaöist vel í netin hjá
Oddi Sæmundssyni á Stafnesi
KE-130 á mánudaginn. 18 tonn
af fiski fengust í netin eftir fimm
tíma í sjó. Helsta frétt þriðju-
dagsins af miðunum var mikil
veiði hjá Agústi Guðmundssyni
GK í Jökuldýpi, en þar var mikill
ufsi. - Sjá nánari fréttir af alla-
brögðum á blaðsíöu 12
staður
Sími 11777
mummi og vignir leika
fyrir dansi föstudags-
kvöld og
BALDUR og BIRGIR
laugardagskvöld
eftir leikhús.
Húsið opnar fyrir
almenning kl. 23:00 - 03:00
Söngleikurinn „STONDUM SAMAN"
Leikfélag Keflavíkur sýnir föstu-
dags- laugardags- og sunnudags-
kvöld kl 21:00.
Matargestir mæti kl. 19:00.
Leikrit & 3ja rétta kvöldverður
& ball á eftir, aðeins kr. 3.500,-
Leikhús-matseðill á kr. 2500,-
SjÁVíirrétta terrine Á srtLiti
með ilmandi volgri balsamic
vinagrette og grcenmetissafa
#
Grillaðnr lambavöðvi þakinn
með rabbabara barbecne og
rósmarine sósn, ristnðn
grrenmeti og gratinernðtim
kartöflum.
#
Okkar meiribÁttar siíkkn-
biðimousse terta með Grand
marnier kremi og
ferskum Ávöxtum.