Víkurfréttir - 21.10.1993, Side 4
4
21. OKTOBER 1993
VlKIIUFRÉTTIR
Keflavíkurkirkja:
Þeir sem áhuga hafa á því að efla starf
safnaðarins eru hvattir til að sækja
samráðsfund um safnaðaruppbygg-
ingu í Kirkjulundi í kvöld, fimmtu-
dag, kl. 20.30. Umræðufundir um
safnaðareflingu verða í Kirkjulundi
á þriðjudagskvöldum kl. 20.30 í allan
vetur. Verið með frá byrjun.
Sóknai'prestiir.
mFasteignaþjónusta
Suðumesja. hf SK?PASALA &
Vatnsnesvegi 14 - Keflavik - Sími 13722
Ásabraut 6, Sandgerði
113 l'erm. einbýli ásamt 35,7
fcrm. bílskúr. 9.000.000.-
Kópubraut 8. Njarðvík
5 herbergja timbur einbýlishús
ásaml bílskúr. 10.500.000,-
Mávabraut 1A, Keflavík
4ra herbergja íbúð í fjórbýli ásamt
bílskúr. Hagstæð lán áhvílandi.
9.000.000.-
Norðurgata 52, Sandgerði
5 herbergja einbýlishús ásamt
bílskúr. Tilboð.
Birkiteigur 12, Keflavík
120 ferm. einbýli á tveimur
hæðum ásamt 49,5 ferm. bílskúr.
8.500.000,-
0
Suðurvellir 16, Ketlavík
137 ferm. einbýli ásamt tvöföldum
bílskúr. 11.500.000,-
Einbýlishús og raðhús:
Uppsalavegur 2, Sandgerði. Skipti möguleg. Vatnsholt IC, Kellavík. Raðhús í smíðum. Kirkjuvegur 59, Keflavík. Norðurvellir 40. Keflavík. Skipti möguleg. H jallagata 9, Sandgerði. Fokhelt einbýlishús. 8.000.000,- 5.500.000,- 7.900.000.- 9.700.000,- 5.900.000,-
4ra herbergja og stærra:
Tunguvegur 8, m.h. «g kjallari, N jarðv. Skipti á einbýlish. Hringhraut 71, e.h., Keflavík. Skipti á minna. 9.000.000,- 6.100.000.-
3ja herbergja:
Kirk jubraut 22, Njarðvík, ásamt bilskár. Kirkjuvegur 13, 2.hæð, Keflavík. Hátcigur 21, Keflavík, ásamt bílskúr. Skipti mög. í R.vík. 4.300.000.- 3.300.000,- 6.800.000.-
2ja herbergja:
Faxabraut 32C, Kcflavík. Hagst. lán áhvfl. Heiðarholt 32, Keflavík. Skipti á stærra. 5.700.000.- 4.700.000,-
Um 700 gestir
Stærsti íþróttasalur á Suðurnesjum var formlega
tekinn í notkun á laugardaginn, þegar Garðmenn
tóku í notkun Iþróttamiðstöðina í Garði. Auk
íþróttasalar var tekin í notkun 25 metra löng sund-
laug, ásamt heitum pottunr og búningsklefum fyrir
180 manns. Aðalverktaki við húsið var Hjalti Guð-
mundsson og synir. Um 700 gestir voru viðstaddir
opnunarhátíðina í Garðinum.
Finnbogi Björnsson, oddviti Gerðahrepps, sagði
í ávarpi í tilefni dagsins að nú væri runnin upp stór
og langþráð stund í sögu Garðmanna. Iþrótta-
miðstöðin væri byggð af stórhug og þar væri aðstaða
á opnunardegi
öll hin besta. „Trú fólksins hefur verið sú, að þessi
íþróttamiðstöð væri sú framkvæmd sem Garðurinn
þarfnaðist helst nú og yrði hvati að enn betri tilvist
og ánægjuauki Garðmönnum til handa,“ sagði enn-
freniur í ávarpi oddvita.
Iþróttasalurinn er 1156 fermetrar og tekur 384
manns í sæti. I húsinu eru allir löglegir inni-
keppnisvellir eins og t.d. fyrir körfuknattleik,
handknattleik og knattspyrnu. I salnum rúmast
einnig 6 badmintonvellir. svo einhver dærni séu
tekin. - Mefifylgjandi myndir tók Hilmar Brat’i á
opmmardegi íþróttamiðstöðvarinnar.
Vel
heppnaðir
Hausfdagar
HAUSTDAGAR á Suðurnesj-
um voru í verslunum og fyrir-
tækjum 14.-18. okt. sl. Urn
fimmtíu aðilar buðu góða afslætti
og tilboð á vörum sínum eða
þjónustu þessa daga. Var verslun
víðast mjög góð og nokkuð ljóst
að margir notuðu sér þetta tæki-
færi til lrins ýtrasta og gerðu góð
kaup. í Skóbúðinni í Keflavík var
mikil traffík alla dagana og þær
kaupkonur, Magnúsína og Stella,
eigendur verslunarinnar voru
ánægðar með útkomuna.
• Bæjarstjórn
Keflavíkur:
Gönguleið á
Bergi nýtur
vaxandi
vinsælda
Göngustígurinn sem
lagður hefur verið út á Bergi,
um 1800 rnetra með bjarg-
brúninni nýtur aukinna vin-
sælda. Fjöldi þeirra sem
leggja leið sína þar um fer
vaxandi. Þetta kom frarn á
síðasta bæjarstjórnarfundi í
Keflavík. Anna Margrét
Guðmundsdóttir benti á að
þama væri náttúruperla og
mjög fallegt útsýni yfir
Faxaflóa og aðrir bæjarfull-
trúar tóku undir það.
Einnig kom fram á fund-
inum að ekki vissu allir um
þennan göngustíg, sem hef-
ur verið lagður grjóti. Það
kom fram á fundinum að
mikill áhugi væri fyrir því að
halda áfram með stíginn og
tengja hann Garðvegi við
Mánagrund og halda þar
áfram upp í heiöina og
tengja við göngustígakerfi
sem vísir er kominn að í
byggð í Keflavík.
♦ HAUSTDAGATRAFFÍK í skóbúð Keflavíkur. Þar var mikið að gera,
eins og alls staðar annars staðar.
mynd: pket.
Byggingafélag eldri borgara
Á SUÐURNESJUM
NJARÐVÍKINGAR
Njarövíkingar 55 ára og eldri. Föstudaginn
22. október n.k. kl. 17:00 veröur haldinn
fundur í sal barnaskólans til þess aö
kynna fyrirhugaða byggingu fyrir eldri
borgara aö Vallarbraut 4, Y-Njarövík.
Stjórn Byggingafélags eldri
borgara á Suöurnesjum.
t
Árnheiður Magnúsdóttir
frá Garðbæ í
Innri - Njarðvík
lést mánudaginn 18. október aö Garövangi í Garði.
Jaröaförin fer fram föstudaginn 22. október kl. 15:00 í
Innri- Njarövíkurkirkju.
Árni Sigurösson