Víkurfréttir - 21.10.1993, Blaðsíða 6
6
21. OKTÓBER 1993
VHfUHPRÉTTIR
FRETTIR
Útgefendi iVikmfi’éttii1 hf.
Afgreiðsla,ritst jpórag auglýsirgar :VaIlai’götu 15, símai’ 14717,
15717. Box 185, S30 Keflavík. Póstfax nr. 1S777. - Ritst jórigo
ábra.:Pál Ketil >n, heimas. 13707. - Fréttast jórHi
Bárðarson, heimas. S7064 bílas. 985-33717. - Auglýsiigast jóri:
Slgi’íðui’ Gunnarsdóair - Upplag: 6400 eintök semdi’eift er
ókeypis um öll Suðurnes. - Fréttaþjónusta íyrii’ Stöð S og Bylgj-
una. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða - Eftir-
prentun, hljóðritun, notkun fjósmynda og annað er óheimilt
nema heimildar sé getið.
Umbr ot, flmuvinna cq prntun: Gl’ágás iKeflavík
ölW “gpor
Hvað er milljónkall?
Grélar sagði í samtali við blaðið að hann hafi ekki fengið hátt verð
fyrir dýrið. „Bara ánægjuna af því að koma dýrinu í land“, en Grétar
vildi ekki gefa upp söluverð dýrsins. Heimildir blaðsins segja að fyrir
kjötið hafi fengist ein milljón króna.
- Forsíða Víkurfrétta 14. okt. 1993
+ FÆR
... áhöfnin á Farsæl GK-
162 fyrir að færa þjóðinni
Ijúffengt hrefnukjöt á haust-
dögum. Suðurnesjamenn fá
einnig plús fyrir að hafa
opnað buddumar hressilega
á Haustdögum verslana.
Valdi þarf síðar nœrbuxur
Valdimar fór hamförum á sínum seðli, sýndi ótrúlegt hugrekki og
kulda í „tippinu“.
- Getraunaþáttur Víkurfrétta 14. okt. 1993
Líflegur dauðdagi!
Eftir líflega viðureign, þar sem minkurinn Itafði oft betur. lét sá loðni
lífið undir skóflu eins lögreglumannsins.
- Löggufrétt úr Ketlavík.
-t- FÆR
... dómsmálaráðherra fyr-
ir að kippa fótunum undan
tjáröflun björgunarsveit-
anna með því ða veita HHI
leyfi fyrir spilakössum og
VAmarliðið fyrir að hleypa
ekki hundum inn á haust-
hátíð sína!
Leiðari:
Breytingar
Eins og eflaust all flestir vita nú orðið hafa orðið breyt-
ingar á ritstjórn Víkurfrétta. Þetta þóttu talsverð tíðindi hér
á Suðurnesjum og kannski ekki að furða þar sem Víkurfréttir
hafa verið stærsti fjölmiðill svæðisins á annan áratug og oft
haft mikil áhrif á gang margra mála á Suðurnesjum. Ekki er
laust við að maður hafi hugsað til þeirra sem eru oft í um-
ræðunni meðal fólks og mátti heyra ýmsar útgáfur (sumir
kalla þetta kjaftasögur!) af ástæðum „hjónaskilnaðar“ Pál-
anna sem stýrðu saman pennunum hér á Víkurfréttum í tíu
ár. Nú er undirritaður orðinn einn við stjórnvölinn á blaðinu
og vonast ég til þess að eiga gott samstarf og samskipti við
ykkur Suðurnesjamenn, góðir, hér eftir sem hingað til. Aðrir
fastráðnir starfsmenn blaðsins eru áfram þeir sömu, Hilmar
Bragi Bárðarson er fréttastjóri og Sigríður Gunnarsdóttir
heldur utan um auglýsingamálin. Stefanía Jónsdóttir er
skrifstofustjóri og sér um afgreiðslu.
Ymsar breytingar verða á blaðinu og ein Ieit dagsins ljós
í síðasta tölublaði, þegar nýr „haus“, eins og sagt er, var
mættur á forsíðuna, og meira segja í lit. Það er ekki hægt
annað en að segja að ntaður sýni smá lit, eða hvað! Fleiri
breytingar er að sjá í blaðinu í dag, á efnistökum og útliti.
Meðal annars verður leiðari meðal fastra þátta í fram-
tíðinni.
Það er síðan ykkar að dæma, lesendur góðir, og verið ó-
hrædd að segja okkur, sem á blaðinu störfum, ykkar skoðun.
Blaðið er fyrir ykkur, um ykkur og ykkar mál, og það sem
máli skiptir hér á Suðurnesjum. Það verður þó eflaust lengi
hægt að deila um það, hvað á erindi í fjölmiðla nútímans.
Kjarninn í stefnu Víkurfrétta verður þó eins og verið hef-
ur; að fjalla fyrst og fremst um málefni sem gerast á Suð-
urnesjum og snerta svæðið. Fréttir um Suðurnesjamálefni og
Suðurnesjamenn.
Þið munuð taka eftir því að pistlahöfundar verða meira á-
berandi en verið hefur. Við höfunt fengið gott fólk með
okkur í lið, til að gefa blaðinu meiri vídd og þessir „pennar“
verða reglulega með sína pistla. Pistlahöfundar okkar koma
úr öllum stéttum og sumir hafa dýft í blekið fyrir okkur áður.
Þeir helstu eru m.a. Marta Eiríksdóttir, Valur Ketilsson,
Kjartan Már Kjartansson, Fljálmar Árnason, Hrafnkell Ósk-
arsson, Elías Jóhannsson, Kristín Sveinbjörnsdóttir, Grétar
Miller og fleiri eiga eflaust eftir að koma til sögunnar. Þetta
fólk mun taka á öllum málum, segja sínar skoðanir og ann-
arra og allt þar á milli. Pennafært fólk má líka hafa sam-
band!
En ekki má gleyma því að fréttirnar skipa að sjálfsögðu
stóran sess í blaðinu og.til þess að geta gefið út gott blað
í hverri viku....þarf auglýsingar. Viðhöfum verið heppin í öll
þessi ár, haft marga góða viðskiptamenn og við munum að
sjálfsögðu sinna þeim áfram, og öllum sem til okkar koma,
nteð góðri þjónustu og góðum auglýsingum sem koma
skilaboðum þeirra alla leið!
Fréttadeild Víkurfrétta mun áfram sinna fréttaþjónustu
fyrir Stöð 2 og Bylgjuna og ef þið hafið eitthvað fram að
færa, og viljið koma fréttum á framfæri þá endilega hafið
samband. Símanúmer fréttamanna eru í blaðhaus hér að ofan
Þið megið hringja dag sem nótt. Fréttamenn eru á vaktinni
allan sólarhringinn!
Páll Ketilsson
MODEL: sigrún gróa magnúsdóttir
MYNDATAKA: oddgeir karlsson
FÖRÐUN: nýtt útlit/gloría
HÁRGREIÐSLA: elegans
FATNAÐUR:
Kóda
Fyrirsætur óskast
Óskum eftir að komast í kynni við ungt
fólk á öilum aldri sem hefur áhuga á og
þorir að sitja fyrir á SEXSÍÐUMYND
blaðsins, sem er tískuþáttur blaðsins.
Myndirnar verða af ýmsum toga og birtast
reglulega í blaðinu á síðu sex.
- Sendu okkur mynd af þér og upp-
lýsingar um símanúmer svo við getum haft
samband við þig.
Utanáskriftin er:
Víkurfréttir, Vallargötu 15
Pósthólf 125 - 232 Keflavík