Víkurfréttir - 21.10.1993, Side 12
12
21. OKTÓBER 1993
vIki/ufréttir
AFLABRÖGÐ Á SUÐURNESJUM
Keflavík / Njarðvík
Sterkir straumar
draga úr veiði
Veiði í síðustu viku var með
eindæmum léleg hjá bátum sem
gera út frá Keflavík og Njarð-
vfk. Heildarafli þessa daga var
173 tonn og þar á bæ hefur sú
tala ekki sést í langan tíma.
Eyvindur KE var aflahæstur
dragnótabáta með 10,9 tonn í
þremur róðrum. Fiskines var
aflahæst handfærabáta með 1.6
tonn í tveimur róðrum. Fuglinn
var aflagæstur smærri línubáta
með 2,3 tonn, en Albert Olafs-
son var aflahæstur stærri línu-
báta með 42 tonn í einni lönd-
un.
Stafnes var aflahæst netabáta
með 29 tonn í síðustu viku.
Eldeyjar-Súla landaði í þrjá
gáma og Þuríður Halldórsdóttir
landaði í tvo gáma og 9,6 tonn-
um að auki
Grindavík
Skarfur með 59 tonn
Skarfur var með meslan afla
línubáta í Grindavík í síðustu
viku, landaði 59,4 tonnum og
Sighvatur var með 47,9 tonn og
setti fisk í einn gám að auki.
Af netabátum fékk Kópur
mestan afla, 54,8 tonn, en fast á
hæla honum var Agúst Guð-
mundsson með 54 tonn. Gnúpur
landaði í síðustu viku 30 körum af
saltfiski og setti í þrjá gánta að
auki. Oddgeir landaði einnig í tvo
gáma.
Síld hefur verið landað í
Grindavík, en þá aðallega til
bræðslu. Nesfiskur í Garði tók á
dögunum 100 tonn til vinnslu.
Ekkert hefur verið saltað af síld í
Grindavík sem komið er og ekki
er allt of bjart yfir síldarsölt-
unarsamningum. Ef ekki verður
saltað í Grindavík á þessu hausti
má búast við tekjuskerðingu hjá
mörgum heimilum og starfs-
manni á Hafnarvigtinni leist ekki
á ástandið.
Tónlistarfélag Keflavíkur:
Vclheppnaðir djasstónleikar á Ránni
Tónlistarfélag Keflavíkur stóð sl. mánudagskvöld fyrir djass-
tónleikum á neðri hæð Ráarinnar. A tónleikunum komu fram þau Sig-
urður Flosason, saxófónleikari, Eyþór Gunnarsson, hljómborðsleikari,
Ellen Kristjánsdóttir, söngkona ásamt þremur dönskunt Itljóð-
færaleikurum þeint Torber Werstergárd, bassaleikara, Soren Frost,
trommuleikara og Karsten Houmark, gítarleikara. Flutti hljómsveitin
nýtt verk eftir Karsten Houmark, sem samið er við Ijóðabálkinn
"Flower Faries of Autum" eftir bresku skáldkonuna Ciceley Mary
Barker. Var verkið mjög skemmtilegt og fallegt áheyrnar og nutu tón-
leikagestir, sem nærri fylltu salinn, kvöldsins.
Meistarafélag lönsveinafélag
byggingarmanna Suöurnesja
á Suöurnesjum
Endurmenntunar-
námskeið
Meistarafélag byggingarmanna á Suö-
urnesjum og Iðnsveinafélag Suöur-
nesja standa fyrir námskeiöi í verk-
stjórn á byggingastað, fyrri hluta, 4. - 6.
nóvember n.k.
Skráning á námskeiöiö fer fram á skrif-
stofu Iðnsveinafélags Suðurnesja og í
síma 12976, og á skrifstofu Meistara-
félags byggingamanna á Suöurnesjum
og í síma 15101.
Vikuna 10.-16. október
Sandgerði
Dauft yfir
fiskiríinu
Það var svo sem enginn
bjartsýnissöngur í símanum á
Hafnarvigtinni í Sandgeröi á
mánudaginn, enda dauft yfir
fiskiríinu. Þn'r togarar lönduðu í
Sandgerði í síðustu viku. Hauk-
ur GK eftir 9 daga 128 tonnum
af karfa. Olafur Jónsson eftir 6
daga 70 tonnum af karfa og
Sveinn Jónsson eftir 6 daga 70
tonnum af karfa.
Benni Sæm fékk mestan afla
í dragnótina 11,4 tonn, Þorri GK
gerði það best á línuna, með
42.8 tonn. Tuttugu og fimm
handfærabátar lönduðu 75 sinn-
um samtals 30 tonnum. Þá fóru
28 litlir línubátar í 114 sjóferðir
og færðu að landi 90,3 tonn af
fiski. Þar var Sandvíkingur cfst-
ur með sex tonn. Vala var afla-
hæst netabáta í Sandgerði með
19.8 tonn í sex róðrum.
SÍMTAL Á MIÐIN 985-28446
ODDUR SÆMUNDSSOII, SKIPSTJÓRI
ÁSTAFNESIKE-130
„Gott skot
í netin"
„Það liefur gengið vel hjá okkur síðustu daga og reyndar allt
frá því við byrjuðunt vertíðina 15. ágúst. Við erunt koninir með
480 tonna afla á tveimur mánuðum og að sjálfsögðu er kvótinn
löngu búinn,“ segir Oddur Sæmundsson, skipstjóri á Stafnesi
KE-130 í samtali við blaðið. Kvóti skipsins er um 360 tonn í
þorskígildum.
„Núna erum við að veiðum við Eldeyjarboðann, en einnig
liöfum við talsvert verið undir Jökli og norður af Garðskaga. I
áhöfn Stafness KE eru ellefu strákar og hver róður tekur frá ein-
um og upp í þrjá sólarhringa.
„í gær (mánudag) fengum við gott skot í netin. Eftir að hafa
haft þau ftmm tíma í sjó drógum við 18 tonn. Við erurn rneð 130
net í sjó og þessi afli var í 80 net.“ segir Oddur.
Frétt þriðjudagsins á miðunum var að Ágúst Guðmundsson
var í miklum ufsa í Jökuldýpi og „mokaði" upp aflanum, eins og
sjóarantir komast að orði.
Leikfélag Keflavíkur:
STÖNDUM SAMAN
Uni sl. helgi hóf
Leikfélag Kefla-
víkur sýningar á
nýjum söngleik eft-
ir Huldu Ólafs-
dóttur, sem nefnist
Kjartan Már „Stöndum saman".
Kjartansson sýningarstaður cr efri
hæð vemngahussins
Glóðin og fór undirritaður á 2. sýn-
ingu s.l. laugardagskvöld. Var það
hin besta skemmtun og er l'ull á-
stæða til að benda Suðurnesja-
mönnum á að láta þessa sýningu
ekki fram hjá sér fara.
I söngleiknum notar Hulda
fjölda skemmtilegra laga sem hún
hefur samið nýja texta við. Fjallar
verkið um sambúð ungra fram-
haldskólanema, barneignir þeirra.
barnapíuvandamál, framhjáhald og
sambúðarslit; uppákontur sem
alltaf eru að gerast í hinu daglega
lífi. Aðalhlutverkin eru í höndum
Guðnýjar Kristjánsdóttur, sem
leikur Öldu, og Hafsteins Gísla-
sonar, sem leikur Edda. Þau skila
sínum hlutverkum mjög vel og er
söngur þeirra beggja góður. Aðrir
leikarar sem koma við sögu eru
Halla Sverrisdóttir, María Bald-
ursdóttir, Jóhannes Kjartansson,
Guðmundur Hreinsson, María
Kristjánsdóttir, Marta Hennanns-
dóttir, Brynja Aðalbergsdóttir og
Hallmann Sigurðsson og Marta Ei-
ríkdóttir. Þau standa sig öll mjög
vel. Sérstaklega er gaman að sjá að
Leikfélagið er ckki í vandræðum
með að finna hæfileikaríkt fólk og
eru nokkrir í þessari sýningu að
stíga sín fyrstu spor á sviðinu. Það
er merki um gott og kraftmikið
starf félagsins.
Sérstakt söngtríó, skipað þeini
Maríu Guðmundsdóttur. Særúnu
Lúðvíksdóttur og Ásntundi Val-
geirssyni, sér um að tengja atriðin
saman og eru þau um leið sögu-
maður sýningarinnar. Öll hafa þau
lært eitthvað í söng. mismikið þó,
og skila sínu hlulverki vel. Þó
hefði mátt leggja meiri vinnu í
röddun söngsins því þau hafa næga
kunnáttu til að gera enn betur. Pí-
anóleikur sýningarinnar er í hönd-
um Söru Vilbergsdóttur og þar situr
rétt manneskja á réttum stað. Þó er
ég ekki frá því að það hefði komið
enn betur út að "lyfta" píanóinu
aðeins t.d. með" hljóðnema því
hljómgæði á Glóðinni eru ekki
mikil og hljómurinn dálítið mattur.
Ein persóna setti skemmtilegan
svip á þetta kvöld þótt hún tæki nú
ekki mikinn þátt í sýningunni
sjálfri. Þetta var danska (eða fær-
eyska ?) vinnukonan og barnapían
Ása (Marta Eiríksdóttir) sem hafði
nú ýmislegt til málanna að leggja
utan úr sal. Hún minnti um margt
á fræga persónu. sem Edda Björg-
vinsdóttir Ieikkona skapaði. og
heitir Turilla Johannsson. Huldu
Ólafsdóttur hefur hér tekist vel upp
nteð persónu sem hún notar á rétt-
um augnablikum til að brjóta upp
sýninguna og halda uppi fjörinu.
Leikmynd og leikstjórn eru í
höndum Huldu. Leikmyndin er
einföld enda bjóða aðstæður varla
uppá annað. Leikarar héldu sínu
striki allan tímann og "duttu ekki úr
leik" þótt athyglin þeindist að ein-
hverjum öðrum.
Þar sem salurinn tekur aðeins um
70 manns skapaðist mjög skemmti-
leg stemning. Setið var við hvert
borð. Undirritaður fórekki í matinn
á undan en heyrði á lólki að það
væri þess virði. Maturinn ku hafa
verið mjög góður og eftirréttinn
fékk lólk í hléinu.
Á undan sýningu hefði ég kosið
að hlýða á einhverja lágt stillta og
fallega tónlist. Aðeins skilur þunnt
tjald að leikara og áhorfendur og
heyrðist allt á milli. Ef leikarar tala
lægra og tónlist hljómar frammi
skapast enn betri stemning.
Að lokum vil ég þakka Leik-
félagi Keflavíkur fyrir góða
skemmtun og oska þcim. og Huldu
Ólafsdóttur, til hamingju með sýn-
inguna. Vonandi sitja Suð-
urnesjamenn ekki heima næstu
helgar heldur bregða sér í betri fötin
og fara á Glóöina.
Úr uppfærslu L.K. á
„STÖNDUM SAMAN'
Tónlistarskólarnir á Suðurnesjum:
Stórtónleikar n.k. laugardag í Garðinum
N.k. laugardag, þ. 23. október, verður íslenskur tónlistardagur
haldinn hátíðlegur unt land allt. Þá leggja útvarpsstöðvar að-
aláherslu á flutning íslenskrar tónlistar og fjölmargir aðilar standa
fyrir tónleikum. Tónlistarskólarnir á Suðurnesjum hafa tekið
höndum saniun og Italda sameiginlega tónleika í hinu nýja og
glæsilega íþróttahúsi í Garðinum og hefjast þeir kl. 15.00
Á Suðumesjum starfrækja
sveitarfélögin 5 tónlistarskóla;
Tónlistarskólann í Garði, Tón-
listarskólann í Grindavík, Tón-
listarskólann í Keflavfk, Tónlist-
arskóla Njarðvíkur og Tónlist-
arskóla Sandgerðis. í þessum
skólunt stunda á sjöunda hundrað
nentendur nám. Á tónleikunum
munu nemendur skólanna flytja
fjölbreytta efnisskrá. Fyrir hluti
tónleikanna mun samanstanda af
ýmsum atriðum frá hverjum
skóla s.s. gítarkvartett, bjöllu-
sveit, popp- og jasshljómsveitum,
kórsöng og tréblásarasveit en eft-
ir hlé ntunu forskóladeildir.
strengjasveitir og lúðrasveitir
allra skólanna flytja nokkur lög
sameiginlega. Áð tónleikunum
loknum mun Foreldrafélag tón-
listarskólans í Garði verða með
kaffisölu í grunnskólanum.
Aðgangur að tónleikunum er
öllum heimill á meðan húsrúm
leyfir og ókeypis.