Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.10.1993, Page 13

Víkurfréttir - 21.10.1993, Page 13
VffftfHFRETTIR 21. OKTÓBER 1993 13 restastefna Þjóðkirkjunnar J, J lagði til árið 1988 að flestir þættir kirkjulegs starfs r verði endurskoðaðir í ljósi safnaðareflingar. Bent var á helgi- hald safnaðarins, líknarþjónustu, fræðslumál, samstarf við aðrar kirkjudeildir, byggingu nýrra kirkna og safnaðarheimila og nýt- ingu þeirra. Prestastefnan taldi brýnt að efla menntun starfsfólks safnaðanna og komið yrði á ráðgjöf í safnaðaruppbyggingu. Bent var á samþykkt kirkjuþings frá 1986, þess efnis að efling kirkjulegs starfs skuli vera meginmarkmið hátíðar- halda vegna þúsund ára kristnitök- unnar árið 2000 og telur safnaðar- Safnaðarefling í Keflavíkursókn uppbyggingu verðugt viðfangsefni þennan áratug, sem aðdraganda há- tíðarhaldanna aldamótaárið. Víða hefur verið tekin upp sér- þjónusta sem er mikils virði, eins og þjónusta presta á sjúkrahúsum, þjónusta við við sorgarhópa, hjónafólk, fanga, fræðsla í fjöl- miðlum, auk margvíslegrar lfknar- starfsemi og einingarviðleitni kirknanna. Haft hefur verið eftir fram- kvæmdastjóra Alkirkjuráðsins, að það sem gerist ekki í söfnuðunum gerist ekki í kirkjunni. Mörg við- leitnin innan kirkjunnar hefur hvorki fært fólk til kirkjunnar né kirkjuna til fólksins. I sumum til- vikum hafa leikmennirnir verið sviptir ábyrgð eða ekki viljað gangast undir ábyrgð. Kristin kirkja er alheimssam- félag, sem ætlað er að svala trúar- þörf manna og kalla þá til ábyrgðar í lífi og starfi. Hún kemur ekki í stað fjölskyldu, þjóðar, verkalýðsfélags eða klúbbs, sem gegna þörfu hlut- verki. Hún er frábrugðin öllu þessu vegna þess að hún boðar rnönnum eilíf sannindi og er skuldbundin Guði umfram allt. Kirkjan má ekki leita svölunar í grunnum og hávað- asömum vötnum samtímans á kostnað hinna djúpu, kyrru og líf- gefandi vatna, svo ég noti líkinga- mál. Henni ber vissulega að vera hvort tveggja í senn kirkja Mörtu og Maríu og það má aldrei gleymast að þær voru systur. Kirkjan er sam- félag trúar og þjónustu sem sam- einar og nær yftr allt sem sundrar. Hún skerðir ekki frelsi einstakl- ingsins, þótt hún kalli menn til samfélags við Guð og náungann. Það er hægt að hefja umbætur í söfnuðunum. Menn hafa í því sam- bandi komið á margs konar gras- rótarhreyfingum í safnaðarstarfi. Eg nefni sem dæmi umræðuhópa um margs konar málefni. Leikmenn geta stjórnað þessum umræðum. en um leið notið leiðsagnar manna með sérþekkingu. En í stað slag- orðsins "kirkjan fyrir fólkið", kætjii "kirkja fóiksins", kirkja sem lifir þjáist, gleðst og starfar meðal fólksins sjálfs. Þessar grásrótar- hreyfingar gætu orðið það súrdeig sem umskapar kirkju og samfélag og þannigunniðaðnýjugildismati. Menn hafa í því sambandi talað um "steinana í kirkju framtíðarinnar". I nýlegri könnun um trúarlíf Is- lendinga vill fólk eftirfarandi breytingar á starfsháttum kirkjunn- ar. Eg vil taka það frarn að það sem ég nefni fyrst hafði mest vægi í könnuninni: 1) Frjálslegri, léttari og líflegri guðsþjónustur. (91) 2) Meira fyrir börn og unglinga og miðað við sérþarfir þeirra. (51) 3) Virkja söfnuðinn betur i guðsþjónustunni og öðru starfi. (47) 4) Vera alþýðlegri og fjalla um dagleg vandamál. (45) 5) Endumýja og breyta tónlist í kirkjunni (42). 6) Að fylgjast betur með breytt- um þjóðfélagsháttum, framförum í vísindum og þess háttar. (38) Önnur atriði sem einnig komu fram í könnuninni höfðu mun minna vægi. Það sem vekur sér- staka athygli, þegar þessar á- bendingar eru skoðaðar, að kirkjan og starfshættir hennar eru í hugum manna einkum það sem fer fram innan veggja guðshússins í bók- staflegri merkingu. 731 einn svar- listi barst af þúsund manna úrtaki og af þeim vildu 34.9 % taka upp nýja starfshætti, 21.6 % vildu það ekki, 38.9% höfðu ekki skoðun á málinu og 4.7 % svörðuðu ekki. En viljum við í rauninni kirkju- legt starf, ef við förum undan í flæmingi þegar minnst er á kenn- ingar kristninnar? Menn geta ekki viljað andann án Orðsins, ekki Krist án náungans, sem hefur þörf fyrir, rétt eins og við, að ljúka upp lífi sínu fyrir honum. Það eru alltaf ein- hverjir; kirkjunni sem vilja taka þátt í nýjum hreyfingum, einkum með trúarlegu yfirbragði, komast í þá lest sem brunar mót landi fram- tíðarinnar. En það er athyglisvert að oft sprettur lítil hugsun um Guð eða tilbeiðsla af þessari athafnasemi, vegna þess að menn eru uppteknir af því að kirkjan lifi áfram, en ekki hvert sé hið sanna eðli hennar. Stundum læðist að mér sá grunur að menn þori ekki að kannast við að kirkjan þurfi að endurnýja sig í anda fagnaðarerindsisins. Boði kirkjan fagnaðarerindið ber henni að prédika boðskapinn um fyrirgefningu, kærleika og miskun- sama nærveru Guðs í mannlegri neyð bæði í orði og verki. Til þess hefur hún kennivald og kenniskyldu en ekkert pólitískt vald. Þörfin er brýn í miskunnarlausum heimi og samfélagi. En geri hún það ekki verður hún ekki trúverðug og glatar ásjónu sinni í heimi samtímans. Nú gefst ykkur tækifæri, ágætu Keflvíkingar, að leggja ykkar lóð á vogarskálar. Umræðufundur um safnaðareflingu verður í Kirkju- lundi í kvöld kl. 20.30 og ákveðið hefur verið að þessir fundir verði eftirleiðis vikulega í allan vetur á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. Ólafur Oddur Jónsson. Nauðungarsala Föstudaginn 22. október nk. kl. 16:00 fer fram lausafjáruppboð að beiðni ýmissra lögmanna. Uppboðið byrjar við Bílageymslu BG/Skemmu við Flugvallarveg, þar sem boðnar verða upp bifreiðar, sjónvörp. farsími o.fl. lausafjármunir. Þá verður uppboðið flutt að Iðavöllum 6 í Kefla- vík, áður Trésmiðja Þorvaldar Ólafssonar hf., og þar seldir ýmsir lausafjármunir svo sem PC tölva, Lingó 88TX, eldhúsborð, stólar, ísskápur, kaffi- vél, tölvuskjár og lyklaborð, skrifborð, skápar, hillusamstæða, sófaborð, hornsófi, bókahilla, af- greiðsluborð, skrifborðsstólar, ritvél, tölvuskjáir og lyklaborð, prentari, peningaskápur, hillu- skápur, telextæki, skjalaskápur svo og efnislager o.fl. lausafjármunir. Að lokum verður uppboðið flutt á athafnasvæði Súlna hf á Fitjabökkum í Njarðvík, þar sem seldar verða ýmsar vinnuvélar og bifreiðar áður þ.b. Stapaverks hf. Sýslumaðurinn íKeflavík. UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu emb- ættisins að Vatnsnesvegi 33, Keflavík, fimmtudaginn 28. október 1993 kl. 10:00, á eftirfarandi eignum: Akurbraut 3, Njarðvík, þingl. eig. Guð- bjartur Daníelsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Landsbanki ís- lands, Leifsstöð og Sparisjóðurinn í Keflavík. Austurgata 17,efri hæð.Keflavík., þingl. eig. Sigurður G. Þorleifsson og Þrúður Elísabet Sturlaugsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Austurvegur 10, Grindavík, þingl. eig. Haukur Pálsson., gerðarbeiðendur Birgir Guðnason og Byggingarsjóður ríkisins. Baugholt 25,Keflavík., þingl. eig. Sigrún Óladóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins. Bjarmaland 18, Sandgerði, þingl. eig. John Hill, gerðarbeiðendur Kaupþing hf og ís- landsbanki h.f., lögfræðideild. Bjarmaland 20, Sandgerði, þingl. eig. Sigurður Jóhannsson. og Ingibjörg Bjamadóttir, gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður ríkisins. Brekkugata 19, 0101, Vogum, þingl. eig. Hörður Rafnsson og Margrét Pétursdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Brekkustígur 5 neðri hæð Sandgerði, þingl. eig. Sigurður Jóhannsson., gerð- arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Eldeyjar-Súla KE-20 (skipaskrárnr. 1481), þingl. eig. Eldey hf., gerðarbeiðandi 01- íufélagið hf. Garðbraut 64, Garði, þingl. eig. Sigurður Gústafsson og Ragna Sveinbjörnsdóttir., gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Sparisjóðurinn Veðdeild. Gerðavegur 4, Garði, þingl. eig. Eygló Eyjólfsdóttir og Jón Ö. Arason, gerðar- beiðandi Hitaveita Suðumesja Gerðavegur 6, 0101, Garði, þingl. eig. Kristín Eyjólfsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Húsbréfa- deild Húsnæðisstofnunar ríkisins.. Hafnargata 16 efri hæð norðurendi, Keflavík, þingl. eig. Gunnar Gunnarsson og Heiðrún Jngvarsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands, Leifsstöð. Hafnargata 27, Grindavík, þingl. eig. Steinþór Þorleifsson og Sigurður Stein- þórsson, gerðarbeiðendur Landsbanki ís- lands, Laugavegi 7, Reykjavík og Sjávar- útvegsráðuneytið. Hafnargata 65 efri hæð Keflavík, þingl. eig. Svava Magnúsdóttir og Judy A. Wesley, gerðarbeiðandi Islandsbanki h.f.bankanr. 537. Háteigur 21 a, kjallari, Keflavík, þingl. eig. Helga Hjaltadóttir, gerðarbeiðandi Lána- sjóður ísl. námsmanna. Heiðarból lOg.Keflavík., þingl. eig. Dag- bjartur Bjömsson, gerðarbeiðandi Bygg- ingarsjóður ríkisins. Heiðarból 2C. 0201, Keflavík, þingl. eig. Einar S. Guðmundsson, gerðarbeiðendur Byggingasjóður verkamanna, Lífeyris- sjóður Suðurnesja og Tryggingamiðstöðin hf.. Heiðargerði 30, 0101, Vogum, þingl. eig. Þorsteinn Sigurðsson og Þóra Rut Jóns- dóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Hús- næðisstofnunar ríkisins.. Heiðarholt 20a,Keflavík., þingl. eig. Ingi- berg Jóhannsson, gerðarbeiðandi Hús- bréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins.. Heiðarhraun 15, Grindavík, þingl. eig. Hrafn Vésteinn Kalman, og Torfey Haf- liðadóttir., gerðarbeiðendur Byggingar- sjóður ríkisins og Lífeyrissjóður sjó- manna. Heiðarvegur 19A, Keflavík, þingl. eig. Gróa Hávarðardóttir og Páll Ólafsson, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðis- stofnunar ríkisins.. Holtsgata 35,0101. Sandgerði. þingl. eig. Skúli Guðmundsson og Guðbjörg Har- aldsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður ríkisins. Höskuldarvellir 5,Grindavík., þingl. eig. Hermann M. Sigurðsson og Hrönn Krist- insdóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins.. Kirkjustígur 7,Grindavík., þingl. eig. Stef- án Karl Kristinsson og Hrafnhildur Hrund Helgadóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins.. Kópubraut 13, Njarðvík, þingl. eig. Krist- inn Magnússon, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður ríkisins og Lífeyrissjóður Suðurnesja. Lágmói 10, Njarðvík, þingl. eig. Jón Sig- urðsson, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins.. Mávabraut 7B,Keflavík., þingl. eig. Heiðar Reynisson og Stefanía Bergmann Magn- úsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins Mávabraut 9d,Keflavík., þingl. eig. Kol- brún Arnadóttir og Jóhann Bjarki Ragn- arsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins Mávabraut 9E, 3 hæð, Keflavík, þingl. eig. Jóhannes Ingiþórsson, gerðarbeiðendur Bygginearsjóður ríkisins og Húsasmiðjan hf Miðtún 7,efri hæð,Keflavík., þingl. eig. Guðfínna Reimarsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Sparisjóður- inn í Keflavík. Njarðvíkurbraut 25b, Njarðvík, þingl. eig. Gunnar Þór Isleifsson., gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Sjóvá Almennar hf og Skeljungur h.f.. Norðurgata 23, Sandgerði, þingl. eig. Guðjón Aðalsteinn Sæbjörnsson, gerð- arbeiðandi Lífeyrissjóður Suðurnesja. Norðurgata 24, Sandgerði, þingl. eig. Böðvar Þórir Gunnarsson, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins og Sýslu- maðurinn í Keflavík. Skagabraut 72, 0101, Garði, þingl. eig. Magnús Frímann Hjelm, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins. Skúmur GK-22 (skipaskrárnr. 1872), þingl. eig. Fiskanes hf, gerðarbeiðandi Tryggingastofnun Ríkisins v/Lífeyrissjóðs sjómanna. Týsvellir 2,Keflavík., þingl. eig. Sigurður Ragnarsson, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins. Vatnsnesvegur 14, 0202, 0301, 0302, Keflavík, þingl. eig. Páll Axelsson., gerð- arbeiðandi Sparisjóðurinn í Keflavík. Sýslumaðurinn í Keflavík 19.október 1993. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Fífumói 3B, neðri hæð, 0101, Njarðvík, þingl. eig. Kristín Kristjánsdóttir, Guðríður Dögg Pétursdóttir og Petra Mjöll Péturs- dóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Gjaldheimta Suðurnesja, Líf- eyrissjóður Suðumesja og Rfkisútvarpið innheimtudeild, 27. október 1993 kl. 10:00. Gónhóll 32, Njarðvík, þingl. eig. Hilmar Hafsteinsson., gerðarbeiðandi Gjald- heimta Suðurnesja, 27. október 1993 kl. 10:15. Heiðargerði 29B,Vogum., þingl. eig. Vogaverk hf.gerðarbeiðandi B.O.Rammi hf.,27. október 1993 kl. 11:30. Hjallavegur 3,0303,Njarðvík., þingl. eig. Anna Dóra Combs., gerðarbeiðendur Byggingarsjóður verkamanna og Gjald- heimta Suðumesja, 27. október 1993 kl. 10:45. Sýslumaðurinn í Keflavík 19. október 1993 Framhald uppboðs verður háð í dómsal embættisins að Vatnsnesvegi 33,Keflavík á Baldri GK-97, skipaskránr. 0311, þingl. eign. Njáls hf.,gerðarbeiðandi Elliði hf., 27. október 1993 kl. 10.30. Sýslumaðurinn í Keflavík. 19.október 1993.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.