Víkurfréttir - 21.12.1993, Blaðsíða 15
yÍfíUÆFRÉTTIR
21. DESEMBER 1993
15
Sundfélagiö Suöurnes:
Sterk í bik-
arkeppninni
Sundfélagið Suðurnes er f
stöðugum vexti og framför. Fé-
lagið varð í öðru sæti í Bik-
arkeppni Sundsambandsins unt
síðustu mánaðamót og setti sveit
frá SFS m.a. stúlknamet í
4x1 OOm fjórsundi. Stelpumar
gerðu sér lítið fyrir og bættu
gamla metið um heilar fjórar
sekúndur.
Allir sundmenn SFS stóðu sig
vel, en sigurvegarar í sínum
greinum urðu: Eydís Kon-
ráðsdóttir í 200m fjórsundi
oglOOm flugsundi, auk þess sem
hún varð önnur í 200m flugsundi
og synti í boðsveitum. Eðvarð
Þór Eðvarðsson sigraði í lOOm og
200m baksundi karla, og synti í
sigursveit SFS í 4x1 OOm fjór-
sundi. Eygló Anna Tómasdóttir
sigraði í 200m bringusundi
kvenna, varð þriðja í 200m fjór-
sundi og synti í boðsveitum.
Arnþór Ragnarsson sigraði svo
lOOm bringusundi karla, 200m
fjórsundi, varð þriðji í 200m
bringu og synti í boðsveitum.
Magnús Konráðsson varð annar f
lOOm baksundi,100m bringu-
sundi, 200m bringu og synti í
boðsveitum. Anna St. Jónasd.
varð önnur í 200m baksundi
kvenna.
Auk ofantaldra má líka nefna
Berglindi Daðadóttur og Svavar
Kjartansson sem áttu góða spretti.
Svavar náði á þessu móti lág-
marki til þátttöku á Norð-
urlandameistaramóti unglinga
sem haldið verður nk. helgi í
Færeyjum. Þar mun hann keppa í
200,400 og 1500m skriðsundi.
Á heildina litið verður að segj-
ast að árangurinn er mjög góður,
en hvernig fannst þjálfaranum,
Martin Rademacher, ntótið koma
út? „Þetta var ásættanlegt, en þó
ekki fullkomið. Þetta er mikil
vinna sem liggur, bæði að baki og
framundan, og ég veit það og
krakkarnir vita það." Jón Hall-
dórsson hjá sundfélaginu sagði
árangurinn góðan, sérstaklega ef
miðað er við að SFS er byggt upp
á heimamönnum, auk þess sem
sundmaðurinn sterki, Magnús
Már Olafsson, hefur farið yftr til
Ægis. Aðeins munaði 1600 stig-
um á tveimur efstu félögunum, og
segir Jón það samsvara einni
góðri langsundsferð.
Næst stefna SFS ntenn og
konur á Innanhússmeistaramót
íslands, sem haldið verður í
Vestmannaeyjum í mars, en und-
irbúningur fyrir það hefst strax í
janúar. Framtíðin er björt hjá SFS
og stefnan er sett hátt. „Við
stefnum að því að eiga einn eða
fleiri Suðurnesjamenn í sundi á
næstu Olympíuleikum!! Það eina
sem háir okkur er skortur á inni-
sundlaug!," segja þeir Jón og
Martin að lokum og halda svo
aftur út í frostið. þar sem úti-
laugin bíður!
mm JJíO\ mk n
BÓKAVERÐLAUN FRÁ ||E}BÓK
■Ahi o
jWi 1 ~
fiv*
Það er bókabúðin Nesbók Hafnargötu 36 í
Keflavik sem gefur þrenn bókaverðlaun fyrir
réttar lausnir í Myndgátu Víkurfrétta 1993.
SkUafrestur á lausnum er til mánudagsins 10.
janúar 1994. Lausnarorð ásamt nafni og
símanúmeri sendist til Víkurfrétta, Vallargötu
15, 230 Keflavík í síðasta lagi 10. janiiar
1994.
/Vv
jV
; /FsauDOR.
••••' LlTI IMM/W
TONKTAHUfi. i