Víkurfréttir - 28.04.1994, Page 8
8
28. APRÍL 1994
VlKUHPRÉTTIR
• Grindavík:
Innbrot við
Staðarvör
- ryksugu stolið
Brotist var inn í íbúðarhúsið
Staðarvör 11 að því er talið um
síðustu helgi. Gluggi á húsinu var
brotinn upp og svo virðist sem
þeir sem brutust inn hafi lagst í
drykkju þegar inn var komið. Þá
var sjónvarpstæki stolið úr í-
búðinni og einnig áfengi. Heim-
ilisfólkið var hins vegar erlendis
við Sunnubraut
þegar innbrotið var framið. Lög-
reglan í Grindavík biður alla sem
hafa orðið varir við mannaferðir
í íbúðinni um sl. helgi að hafa
samband ef þeir hafa upplýsingar
sem upplýst gætu innbrotið.
Þá var brotist inn í íbúð við
Sunnubraut í Grindavík og þaðan
stolið ryksugu.
Óskum
launþegum
til hamingju með
dag verkalýðsins.
Takið þátt í
shemmtunum
dagsins.
Iðnsveinafélag
Suðurnesja
ATVINNA I
SUMAR!
Geröahreppur óskar eftir um-
sóknum í eftirtalin störf:
A. Verkstjórn með unglingavinnu ásamt af-
leysingu í áhaldahúsi. Ráðningatími frá 15.
maí til 31. ágúst 1994.
B. Flokkstjóra í unglingavinnu í sumar. Um-
sækjendur þurfa að vera eldri en 20 ára.
C. Aðila til að hafa umsjón með blómabeðum
og skólagörðum.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
hjá sveitarstjóra.
Umsóknarfrestur er til 5. maí 1994.
Sveitarstjóri.
SUAIARBROS í SUNDMIÐSTÖÐ
Ljósmynd: Hilmar Bragi
óskum
öllum launþegum
til hamingju með
dag verkalýðsins
1. maí.
LÍFEYRISSJÓÐUR
SUÐURNESJA
Tjarnargötu 12 - Sími: 16666 - Fax: 16664
UMSÓKN
^ UMSTÖRF
Sandgerðisbær auglýsir í
eftirtalin störf:
1. í Áhaldahúsið lágmarksaldur 16 ára.
2. Verkstjóra yfir vinnuskólanum, æskilegt er
að umsækjendur hafi reynslu í verkstjórn og
verklegum störfum í garðyrkju.
3. Leiðbeinendur við Vinnuskólann.
4. Umsóknarblöð liggja frammi í afgreiðslu
á Bæjarskrifstofu og í Áhaldahúsi.
Umsóknarfrestur er til 8. maí n.k.
Upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarverkstjóri.
• Sandgerði:
Framboðslisti
Oháðra og
Alþýðuflokks-
fólks
Eftirfarandi framboðslisti
Óháðra borgara og Alþýðu-
tlokksfólks í Sandgerði var sant-
þykktur á almennum fundi stuðn-
ingsfólks K-listans hinn 14. apríl
sl. Listinn er svohljóðandi:
1. Óskar Gunnarsson
2. Pétur Brynjarsson
3. Sigurbjörg Eiríksdóttir
4. Guðrún Artúrsdóttir
5. Hörður Kristinsson
6. Gunnar Guðbjömsson
7. Kolbrún Leifsdóttir
8. Guðmundur Gunnarsson
9. Gunnhildur Ásta Sigurðardóttir
10. Þorvaldur Kristleifsson
11. Ingibjörg Hjördís Einarsdóttir
12. Jón Norðfjörð
13. Gretar Mar Jónsson
14. Ólafur Gunnlaugsson.
Klippurnar
á lofti
Lögreglan klippti núm-
eraplöturnar af þremur bifreiðum
um helgina vegna vangoldinna
bifreiðagjalda. Fjölmargir hafa
undanfarnar vikur fengið aðvörun
frá Sýslumanni um að ef ekki
verði gerð skil á vangoldnum
bifreiðagjöldum, verði núm-
eraplötur klipptar af.
Auglýsingasíminn
er 14717