Víkurfréttir - 09.06.1994, Side 8
8
9. JÚNÍ 1994
VÍKURFRÉTTIR
♦ Þnð er gott að
hvíla lúin bein í
kaffittmanum og
fá sér tíu itropa í
kaffistofunni í
vesturbænum.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
Ingibjargar Ingimundardóttur
Norðurgarði 7,
Keflavík
Sérstakar þakkir til K.K.K. og K.K.
Börn tengdasynir og barnabörn.
m ö ©
Hátíðarhöld á þjóð
hátíðardaginn í ISjavðvík
Hátíðarhöidin í Njarðvík i tilefni þjóðhátíðardagsins verður
skipt í tvennt vegna hátíðarhaldanna á Þingvöllum og verð-
ur dagskráin í meginatriðum eftirfarandi:
17. júní föstudagur:
Kl. 09:30 Þjóðhátíöarmessa í Ytri-I\ljarðvíkurkirkju.
Þjóðhátíðin sett.
Kl. 10:15 Fánahylling - Lúðrasveit Tl\l
Þjóðhátíðarræöa, Kristján Þálsson
Ávarp fjallkonu
Kórsöngur
18. júní laugardagur:
Kl. 11:00 Víðavangshlaup,
fjölskylduhlaup, púttmót o.fl.
Kl. 14.00 Skrúðganga- r 7
Skemmtidagskrá við Stapann
Hátíðarkaffihlaðborð vegum Kvenfélags ^
Njarðvíkur
Kl. 20:00 Fjölskyldudansleikur í Stapa
Nákvæmari dagskrá um þjóðhátíðarhöldin verður borin í
hvert hús síðar.
Þjóðhátíðarnefnd
það fer með hundana út að
ganga.
Það er minna rusl í bænum
þegar það er kalt úti því þá er
fólk í bílunum sínum. En það er
mikiö af sígarettustubbum út um
allt í bænum. Þetta er fyrir neð-
an allar hellur. Eg vona að fólk
gangi vel um bæinn okkar.
Glerbrot og annað er hryllingur!
Bærinn helst ekki hreinn af
sjálfum sér, það erum við, ég og
Villi, sem tínurn ruslið upp.
Þetta er stundum mikii vinna og
þreytandi. Fólki finnst sjálfsagt
að henda rusli.
Þur er bannaö að henda rusli!
Eg hef komið til Þýskaiands í
bæinn hennar mömmu minnar
sem er þýsk og þar var miklu
þrifalegra en hér. Þar má fólk
ekki henda rusli og stubbum á
götuna, það er bannað og ef
maður gerir það þá er bara pikk-
að í niann og manni sagt aö taka
þetta upp.
Eftir erilsaman dag í vinnunni
finnst Oskari gott að koma í for-
eldrahús og setjast við sjónvarp-
ið. Hann segist vera þreyttur í
lok dagsins og finnst gott að
hvíla sig við að horfa á eitthvað
í kassanum.
Stundum bóna ég bílinn minn
og kannski fer ég í heimsókn tii
systkina minna. En á föstudög-
um fer ég stundum í sumarbú-
staðinn meö mömmu og pabba.
Það er nú eiginlega hörkuvinna
því þar er nóg að gera. Maður
er að smíða, mála grindverk og
svo var ég að laga jarðar-
berjareitinn um Hvítasunnuna.
Sjö vinir
Eg hef ferðast mikið t.d. til
Kanaríeyja, Mallorca, Þýska-
lands og ég man ekki fleiri lönd.
Hérna innanlands fór ég síðast
til Akureyrar með Sjö vinurn en
það er félagsskapurinn minn.
Við erum nú bara sex í hóp-
num(en köllum okkur Sjö vini)
á aldrinum 23 til 33 ára og ég er
elstur. Asa Kristín Margeirs-
dóttir er kennarinn okkar. Hún
kennir okkur svo margt t.d. hef-
ur hún kennt okkur að lesa, að
Alltaf finnst mér jafn gaman að koma inn í Áhaldahús
Keflavíkur. Þar ríkir skemmtilegur andi eða svo tlnnst mér
svona gestkomandi. Fólkið sem vinnur hjá bænuni er oft á
léttu nótunum og hefur skoðanir á öllu og engu. Nú þegar
sumarið er komið þá fjölgar starfsmönnunum og þá færist
meira fjör í mannskapinn. Auðvitað eiga hæjarstarfsmenn
sínar erlíðu stundir eins og aðrir en ég held svei mér þá að
þeim sé léttleiki í blóð horið. Ætli það sé ekki allt þetta lík-
amspúl hjá starfsmönnunum sem er svona hollt fyrir sálina?
Á kafFistofunni er lítlegast á morgnana þegar fólk kemur til
vinnu og svo um fimmleytið þegar allir eru á heiinleið. Þess á
milli er verið að vinna við fegrun bæjarins og lagfæringar
hingað og þangað.
Er Óskar ívarsson við?
Eg kíkti einn morguninn
niðr' í Áhaldahús því mig lang-
aði að spjalla við jafnaldra minn
og gamlan skólafélaga sem unn-
ið hefur hjá Keflavíkurbæ síðan
1982. Það var eins og fyrri dag-
inn, móttökurnar góðar og á
meðan ég beið eftir skólafélag-
anum fékk ég mér sæti hjá Þor-
steini Baldvinssyni, verkstjóra.
Hann var ásamt pípulagninga-
manni að skoða myndbandsupp-
töku af skolpræsislögn við götu
eina hér í bæ. Með þessari
tækni má staðsetja nákvæmlega
skemmdir á skolplögnum t bæn-
um. Myndavélin keyrir í gegn-
um rörin, eftir að þau hafa verið
krafthreinsuð, og myndar allt
sem á vegi hennar verður. Þor-
steinn segir þessa tækni spara
bænum heilmikla fjármuni því
áður þurftu þeir jafnvel að grafa
á mörgum stöðum til að komast
í eina skemtnd í lögn. Nú vita
þeir nákvæmlega hvar lögnin er
biluð. Eg var alveg dolfallin að
horfa á þetta og að sjá skolprör-
in að innan.. humm..og íbúana
þarna niðri...jæja ekki orð um
það en þetta var engu líkt!
Nú birtist minn maður, Óskar
Ivarsson, sá sem mig langaði að
kynna fyrir ykkur í þetta sinn.
Hann var alveg til í að spjalla
um lífið og tilveruna enda lífs-
glaður með eindæmum hann
Óskar.
Já, ég er fæddur þann 17.mars
1961 og uppalinn í Keflavík.
Eg er yngstur í fjögurra systkina
hópi, sonur hjónanna Ursúlu
Magnússon og fvars Magnús-
sonar. Viö búum núna úti í
Garði en ég keyri sjálfur í vinn-
una á Mözdunni minni, árgerð
1992.
Við hreinsum göturnar
Eg vinn við alls konar hreins-
un í bænum, lóðahreinsun,
gatnahreinsun og stundum
hreinsa ég til í bænum á morgn-
ana um helgar. Ég er varamað-
ur um helgar ef það næst ekki í
aðalmanninn. Við vorum mörg
kölluð út til að þrífa eftir kosn-
ingahelgina, þá var drasl fyrir
utan Þotuna og á Hafnargötunni.
Mér finnst leiðinlegt þegar mað-
ur er búinn að gera götuna
hreina og fólk byrjar aftur að
kasta rusli á götuna. Það á að
nota ruslakassana og við losum
þá á föstudagsmorgnum.
Hundum hefur fjölgað og
þeim fylgir hundaskítur. Mér
veröur óglatt af því að hreinsa
upp skítinn eftir hundana. Fólk
á að hafa poka með sér þegar
skrifa og reikna.
Jæja, en við fórum á Akur-
eyri 12,-15. maí og þar ferðuð-
umst við um. Við vorum að
skoða okkur um. Fórum að
heimsækja krakkana á sambýl-
inu á Húsavík, þar var vel tekið
á móti okkur.
♦ Óskar fyrir framnn fallegu Mözduna sína
sem er 626 árgerð 1992. A henni keyrir hann í
vinnuna.
Óskar og Villi, vinnufélagi hans halda Kefla-
vikurbx hreinum. „Fólki finnst sjálfsagt að
hcnda rusli", segir Óskar.
Lífsglatt fólk
eiivs og
rvm
ÓSKAR !
MARTA
EIRÍKSDÓTTIR
19. þáttur
VllfVRFRÉTTIR
♦ Ég er mjög ánægður með að hafa vinnu í svona atvinnuleysi. Þetta er
góð vinna. Ellert er bcsti vinurinn okkar...
Svo fórum við í Hagkaupsbúö
á Akureyri að skoða hvað það er
fínt þar. Frá Hagkaup fórum
við í sund og fengum lykil og
skáp. Eftir sundið fórum við að
telja kirkjutröppur og ég taldi
I0l en getur það verið? Sumir
sögðu 100 en ég var með alveg
rétt. Svo hvíldum við okkur á
torginu.
Ævintýrakvöld...
Um kvöldið fórum við í fín
föt og fórum á kínverskan mat-
stað og gátum valið hvað við
vildum borða. Næst fórum við í
bíó og svo á ballstað, Sjallann,
og ég var alveg að dansa eins og
ég gat á gólfinu með krökkun-
unt. Það var sko gaman og ef
þau vilja fara aftur þá er ég al-
veg til! Við erum að reyna að
safna í sjóð til að fara saman til
útlanda. Mig langar að vera
sjálfstæður maður og vera ekki
alltaf með mömmu og pabba.
Mig langar að ferðast með Sjö
vinum, þetta eru bestu vinir
mínir. Við hittumst einu sinni í
viku hjá Þroskahjálp og ræðum
saman. Það er svo gaman.
I framtíðinni langar mig að
læra meira. Ég vil hafa góða
heilsu, reyna að lifa fínu lífi og
hafa það gott.
Ég er mjög ánægður með að
hafa vinnu í svona atvinnuleysi
og ég er ntjög ánægður hérna.
Þetta er góð vinna. Ellert er
besti vinurinn okkar. Hann er
alltaf hress og kátur.
26. MAI 1994
Langar í betri vinnubíl
Ég og Villi (Vilhjálmur Þor-
leifsson) skiptumst á að hreinsa
göturnar. Ég fer öðrum megin á
götuna og hann hinum megin.
Við förum líka með vörur í
skólana og fleiri stofnanir.
I sama rnund kemur Villi
vinnufélagi Óskars inn og til-
kynnir honum að nú þurfi þeir
að fara með vörur út í bæ.
Viðtal við Villa væri efni í
aðra grein því hann talar
tæpitungulaust um málin og hef-
ur skoðanir á hlutunum.
Óskari finnst hann nú dáldið
strangur yfirmaður en þó finnst
honum gaman að vinna með
Villa og ferðast með honum í
bitaboxinu. Óskar segist þó
vera hálfhræddur að ferðast um í
Suzukibílnum því hann leggist
alveg örugglega saman ef þeir
lenda í árekstri.
Ég heyri á honum að hann er
ekki rólegur yfir þessu og langar
helst að fá sterkari bíl undir þá
félaga. Og afhverju ekki? Þetta
eru mennirnir sem sjá um það
mikilvæga starf að halda götun-
um hreinum. Á meðan ekki er
búið að finna upp rusl sem labb-
ar sjálft í fötuna þá eru þessir
starfsmenn mikilvægari en okk-
ur grunar. Vilhjálmur Þorleifs-
son á lokaorðið;
Ég og Óskar erum að þjóna
menningunni á vissan hátt.
Það ber engin virðingu fyrir
manni í skítugum jakkafötum.
Til að fólk beri virðingu fyrir
bænum st'num þá verður hann
að vera hreinn!
Svo eru þeir roknir út í bæ
með vörur en kíkja væntanlega í
kringum sig um leið alveg
ósjálfrátt. Þeirra draumur er að
tæma einungis ruslafötur bæjar-
ins en ekki göturnar.
ÞJÓDHÁTÍÐAR-
TÓNLEIKAR KORS
KEFLAVÍKUR-
KIRKJU
Miövikudaginn 15. júni verða
þjóðhátíðartónleikar í Keflavík-
urkirkju og hefjast þeir kl.
20.30. Á efnisskránni verða
m.a. íslensk ættjarðarlög og
sálmar tengdir ættjörðinni. Ein-
söngvarar verða María Guð-
mundsdóttir, Sverrir Guð-
mundsson og Steinn Erlings-
son. Undirleikari er Gróa
Hreinsdóttir. Stjómandi er Einar
Örn Einarsson organisti Kefla-
víkurkirkju. Með kórnum mun
kór Trollhattan kirkju í Svíþjóð,
vinabæjar Keflavíkur, syngja í
tveinur lögum. Aðgangur er að
sjálfsögðu ókeypis og fólk hvatt
til að koma og heyra perlur úr
íslenskum tónlistararfi sem eru
ekki fluttar nema við sérstök
tækifæri, eins og 50 ára lýðveld-
isafmæli íslensku þjóðarinnar
sannarlega er.
Tónleikar á
Skrúógaróstorgi
sunnudag
Hornaflokkur frá danska
hemum kom hingað til lands
í gær og er ráðgert að halda
tónleika víðsvegar um landið.
Flokkurinn er skipaður 16
hljóðfæraleikumm sem leika
á málmblásturshljóðfæri og
slagverk en stjómandi hans er
Erik Hammerbak sem hefur
stjórnað honum frá 1977. Á
sunnudaginn næstkomandi
mun flokkurinn leika á
Skrúðgarðstorginu í Keflavík
kl. 20. Aðgangur er ókeypis
og em allir velkomnir.
♦ Eirikur og Óskar á góðri stund.
FMÆLISTILBOÐ
| Framkönunarþjónusta |
HAFNARGÖTU 52 KEFLAVÍK SÍM114290
Passamyndir
Barnamyndatökur
öIIl
........,, ►
JUJESZoJa - n*
*. a allri
* vöru og
^FSLÁrmk / þjónustu Framköllun (filma fylgir)
Uf{d> Rammar
»». ..»« ,,,
*■■■*»*
VIKUNA 9. - 17. JUNI
Album
MUNID LJÓSM YNDAMARAÞONID I f. JÚNÍ