Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.06.1994, Side 14

Víkurfréttir - 09.06.1994, Side 14
14 9. JÚNÍ 1994 VllfURFRÉTTIR Nýr „ fíölskyldu "-golf- völlur I Leirunni -með stuttum holum og tilvalinn fyrir byrjendur. Aðgangur ókeypis Golfklúbbur Suðurnesja hef- ur opnað nýjan par 3 holu völl í Leirunni. Um er að ræða níu stuttar holur á gamla æfinga- svæðinu á Jóel. Völlurinn er skemmtilegur og vel útfærður og tilvalinn fyrir fólk sem er að stíga si'n fyrstu skref í golf- íþróttinni. Aðgangur á völlinn er ókeypis og öllum heimill að- gangur hvort sem viðkomandi kann eitthvað fyrir sér í íþrótt- inni eða ekki. „Þetta er tilraun hjá okkur og jafnframt hvatning til fólks sem vill byrja í golfi. Klúbbur- inn á 30 ára afmæli á þessu ári og svo erum við einnig að höfða til árs fjölskyldunnar. Á þessum velli geta fjölskyldurn- ar farið saman og spilað og haft gaman af“, sagði Einar Guðberg Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Golfklúbbs Suð- urnesja. Til stendur að setja upp skúr við þennan völl þar sem fólk getur fengið skorkort og upp- lýsingar og jafnvel lánaðar kylfur. „Við erum að leita að skúr og biðjum alla sem geta benl okkur á einhvern að hafa samband við okkur. Einnig þætti okkur vænt um ef ein- hverjir eiga gamlar eða notaðar kylfur sem þeir eru hættir að nota að koma með þær til klúbbsins til að lána þeim sem vilja prófa“, sagði Einar og bætti við að nú þegar væru hópar búnir að ákveða að koma á litla völlinn, m.a. frá félags- miðstöð Holtaskóla. Hjá GS er starfandi golf- kennari, Philip Hunter, en hann er með verslun í klúbbhúsinu og góða kennsluaðstöðu. Hann leiðbeinir fólki, jafnt byrjend- um sem lengra komnum og er með sérstök barna- og ung- linganámskeið, þrisvar í viku. Námskeið sem gildir út sumar- ið kostar aðeins kr. 4000 og er jafnframt árgjald í klúbbinn. I klúbbhúsinu er veitingasala sem er opin alla daga og starf- andi framkvæmdastjóri er á staðnum og veitir allar upplýs- ingar. „Golffþróttin er íþrótt fyrir fólk á öllum aldri. Hér eru mikill fjöldi af börnum og ung- lingum og allt upp í ellilífeyris- þega. Golfið er ijölskylduíþrótt og fyrir þá sem ekki vita er Hólmsvöllur í Leiru hreinasta útivistarparadís", sagði Einar Guðberg. Árlegt kvennastarf í Golf- klúbbi Suðurnesja er að fara af stað og verður fundur af því til- efni í golfskálanum í Leiru nk. miðvikudag 15. júní kl. 19:30. Allar konur sem hafa áhuga fyrir golfi eru hvattar til að koma. í fyrra var metmæting á kynning- arfund. Um 70 til 80 konur mættu og er vonast til þess að konur fjölmenni einnig nú. Þorvaldur Ólalsson sigraði í Landsbankamótinu í golfi sem fram fór á Sandgerðisvellinum sl. laugardag. Leikin var 18 holu punktakeppni og fékk Þorvaldur 41 punkt. I 2. sæti varð Björn V. Skúlason með 40 punkta, Jón Friðriksson þriðji með 34. Rún- ar Valgeirsson. Guðmundur Jónsson og Þorvaldur Kristleifs- son með 33 punkta. Næstur holu á 6. braut var Þorvaldur Krisl- leifsson, 1.21 m frá stönginni. ♦ Tcikning af litla vellinum sem ntjlega var opnaður. ORNÆVAR fvl- bætti vallarmetið -lék á 16 höggum undirpari á þrem dögum ♦ Órn Ævar hefur leikið frábært golf undanfama daga. mynd: pket. Örn Ævar Hjartarson, ung- lingalandsliðsmaður Golf- klúbbs Suðurnesja er senni- lega að leika besta golf á Is- landi í dag. Hann setti nýtt vallarmet á á klúbbteigum á Hólmsvelli í Leiru á sunnu- dag, lék á 68 höggum og bætti síðan um betur á þriðjudag í Hoffellsmótinu og lék þá á sex höggum undir pari, 66 högg- UTILISTAVERK VIÐFS Sýning á tillögum í lokaðri samkeppi um úti- listaverk við FS verður haldin í bókasafni skól- ans laugardaginn 11. júní og sunnudaginn 12. júní n.k. kl. 10-17 báða dagana og er öllum opin. Dómnefnd um. Það er lægsta skor sem leikið hefur verið á í Leiru frá upphafi. Á mánudag lék Örn með félögum sínum, ekki í móti og var þá einnig á 66 höggum. Hann lék því þessa þrjá daga á 16 höggum undir pari. Þetta er árangur á heims- mælikvarða hjá 16 ára ung- lingi og ljóst að drengurinn verður varla lengi á íslandi ef hann heldur áfram svona. At- vinnumennskan bíður! Örn hóf þessa glæsispila- mennsku á sunnudag þegar liann sigraði í opnu unglinga- móti sem haldið var í Leirunni. Hann lék þá 14 hol- ur á pari og fjórar á „fugli". Meðal keppenda voru allir bestu yngri kylfingar landsins, s.s. Skagamennirnir, Birgir Leifur Hafþórsson. Helgi Dan Steinsson, Þorkell Snorri Sig- urðsson og lleiri. Annar Suðurnesjakylfingur sigraði með forgjöf í mótinu, Jón Viðar Viðarsson. Hann lék á 62 höggum nettó sem einnig er mjög góður árangur. Urslit urðu annars þessi: Eldri flokkur An forgjafar I. Öm Ævar Hjartarson GS 33+35=68 2. Nökkvi Gunnarsson NK 37+34=71 3. Birgir Leifur Hafþórsson GL 39+32=72 Með forgjöf 1. Jón ViðarViðarssonGS 85-23=62 2. GuðmundurÞórGKj 83-18=65 3. Öm Ævar Hjartarson GS 68-3=65 Yngri flokkur An forgjafar 1. Gunnar Þór Jóhannsson GS 39+42=81 2. Ævar Pétursson GS 48+35=83 3. Einar Már Jóhannesson GS 47+38=85 Með forgjöf 1. Ævar Pélursson GS 83-23=60 2. Einar Már Jóhannesson GS 85-24=61 3. Gunnar Þór Jóhannsson GS 81-19=62 66!!! Öm hélt uppteknum hætti í þriðjudagsmóti GS, Hoffells- mótinu. Kom þá inn á sex undir pari, 66 höggum. Örn lék 12 holur á pari og sex hol- ur einu undir pari og sigraði að sjálfsögðu bæði með og án forgjafar. Karen Sævarsdóttir lék ágætlega, á 75 höggum en með forgjöf var Elín Gunnars- dóttir best, á 63 Itöggum. 73 þátttakendur tóku þátl t mól- inu sem hinn kunni Suður- nesjavinur Magnús Pétursson í Hoffelli gefur verðlaun í. Listagolf hjá Irven- fólkinu Magdalenda S. Þórisdóttir og Elín Gunnarsdóttir léku „lista- golf‘ í Leirunni sl. laugardag og sigruðu með og án forgjafar. 23 konur mættu til leiks úr öllum klúbbum á Suðurnesjum. Úrslit urðu þessi: An forgjafar 1. Magdalena S. Þórisdóttir GS......90 2. Jóna Gunnarsdóttir GS............93 3. Sigrún Sigurðardóttir GG.........95 Með forgjöf 1. Elín Gunnarsdóttir GS............69 2. Elínborg Sigurðardóttir GS.......70 3. Magdalena S. Þórisdóttir GS......74 Með fæst pútt voru Magda- lena S. Þórisdóttir og Sigurbjörg Gunnarsdóttir, 33 alls. Þröstur lék meistaragolf Sigurjón Arnarsson. landsliðs- kylfingur úr GR sigraði í fyrsta Bláa-lónsmótinu í golfi sem hald- ið var í Grindavík sl. sunnudag. Mótið fer fram á öllum völlum Suðurnesja og síðar í sumar verð- ur keppt í Leiru og í Sandgerði. Sigurjón lék á einu undir pari, 69 höggum og var einu höggi betri en Suðurnesjakylfingurinn Þröstur Ástþórsson, sem kont inn á pari vallarins, 70 höggunt. Þriðji varð Ásgeir Guðbjartsson GK á 71 höggi. Með forgjöf sigraði Guð- mundur Kristmundsson. GKG á 64 höggum, Þröstur Ástþórsson varð annar á 65 höggum og þriðji Halldór Svanbergsson GK á 66 höggum. Næst verður keppt 7. júlt' í Sandgerði. Verðlaun eru glæsileg- ir ferðavinningar. Ameríkuferð fyrir fyrsta sætið og Evrópuferð fyrir annað. Þröstur Ástþórsson gerði sér lítið fyrir og nældi sér í tvo Evrópufarseðla. Þáttlakendur voru 120 og léku golf í blíðviðri og 13 stiga hita.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.