Víkurfréttir - 30.06.1994, Qupperneq 1
frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum
JIKUR
• FEE T TIR
26. tbl./l 5. árg. Fimmtudagur 30/6 - 1994
FljÓt og öri
gjaldeyrisþ.
LftNDSBOKASAFN
SAFNAHOSINU
hverfisgötu
101 REYKJAVU-
«
SPRRISJÓÐURIHH
I KEFLAVIK
mmmœ
Sigurður Þorleifs-
son 6K seldur
Útgerðarfyrirtækið Þorbjörn
hf. í Grindavík hefur selt fiski-
skipið Sigurð Þorleifsson GK til
Eskifjarðar. Skipið var selt án
kvóta, en á skipinu var um 900
tonna þorskígildiskvóti.
Þorbjörn hf. gerir áfram út
frystitogarann Hrafn Svein-
bjarnarson GK og einnig Gnúp
GK. Gnúpur hefur bæði verið
gerður út á ísfisk og einnig hef-
ur verið saltað um borð. Veiði-
heimildir Sigurðar Þorleifssonar
GK voru fluttar yfir á þessi skip.
Ekki náðist í forráðamenn Þor-
bjarnar út af málinu.
170 kg. af
humri stolið
Brotist var inn í frystigeymsl-
ur Miðness hf. í Sandgerði að-
faranótt sl. föstudags og þaðan
stolið 17 kössum af humri. Hver
kassi er 10.2 kg. af þyngd.
þannig að hér er um að ræða
rúm 170 kíló af humri. Lás á
frystiklefanum var klipptur í
sundur og þannig komst þjófur-
inn inn í frystiklefann.
I gegnum árin hafa innbrot í
frystigeymslur Miðness verið
nokkuð tíð og oftar en ekki er
það humar sem heillar þjófana,
enda um dýran varning að ræða.
Það mun einnig vera auðvelt að
koma humri í verð á þessum
árstíma.
Sameiningar-
fundur íþrótta-
félaganna í
kvöld
-skrúðganga frá
Myllubakkaskóla
Sameiningarfundur íþróttafé-
laganna í Keflavík verður f sal
Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
kvöld. Dagskráin hefst með
skrúðgöngu frá Myllubakka-
skóla kl. 19:30 og mun Lúðra-
sveit Tónlistarskóla Keflavíkur
fara fyrir göngunni. Fundurinn
hefst svo kl. 20.
Eins og greint hefur verið frá
í Víkurfréttum að undanförnu
munu öll íþróttafélög í Keflavík,
að undanskildu Hestamannafé-
laginu Mána, sameinast í eitt fé-
lag, ÍÞRÓTTA- OG UNG-
MENNAFÉLAGIÐ KEFLA-
VIK. A félagsfundum í síðustu
viku fengu stjórnir félaganna
timboð til að ganga til samein-
ingar sem eins og fyrr segir mun
eiga sér stað á fundinum í kvöld.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins mun aðeins einn vera í fram-
boði til formanns félagsins. Þaö
er Skúli Skúlason.
Nafnakosningin ógild
-Félagsmdlciráduneytið leggur til við bæjarstjórn að kjósa um nafnið að nýjul
Félagsmálaráðuneytið hef-
ur úrskurðað nafnakosningu
í nýju bæjarfélagi Keflavík-
ur. Njarðvíkur og Hafna
ógilda í framhaldi af kæru
tveggja íbúa í Keflavík,
þeirra Einars Ingimundar-
sonar og Hólmars Magnús-
sonar. Að sögn Sesselju
Arnadóttur lögfræðings Fé-
lagsmálaráðuneytisins er
ákvörðun um ógildingu tekin
á þeim forsendum að ekki
hafi verið rétt staðið að
skoðanakönnuninni.
Akvörðun um að nöfn
sveitarfélaganna þriggja
væru ekki gjaldgeng hafi
verið tekin of seint þar sem
utankjörstaðakosning var
hafin og kynning á þeirri
ákvörðun mjög ábótavant.
I nafnakosningunni í apríl
sl. fékk nafnið Keflavík lang
flest atkvæði eða tæplega
helming. Nafnið Suðurnes
fékk næst flest atkvæði, um
450 atkvæðum færra en
Keflavík fékk. Að sögn
Sesselju hefur ný bæjarstjórn
Keflavíkur, Njarðvíkur og
Hafna fengið málið í sínar
hendur en ráðuneytið leggur
til við nýja bæjarstjórn að
hún láti fara fram nýja kosn-
ingu og staðið verði betur að
undirbúningi og kynningu
hennar.
„Ég er svo sem ekkert
hissa á þessari ákvörðun
ráðuneytisins og átli alveg
eins von á henni. Málið
verður tekið fyrir í bæjar-
stjórn og rætt þar. Ég á ekki
von á öðru en að ný kosning
fari fram en þess ber að geta
að ráðuneytið gagnrýnir ekki
að einhver nöfn séu ekki
gjaldgeng. Það er bæjar-
stjórnarinnar að ákveða
hvaða nöfn eru í kjöri“,
sagði Ellert Eiríksson, bæjar-
stjóri Keflavíkur, Njarðvíkur
og Hafna.
Allt sem þarf er hamar og sög!
Rækjusjómenn btosa breitt:
Allt að 8 foitif af Eld-
eyjarrækju í róðri
Eldeyjarrækjan hefur veiðst í
miklu magni síðustu vikur.
Dæmi eru um að rækjubátar af
Suðurnesjum hafi veriö að fá
upp í átta tonn af rækju í róðri.
Bátarnir hafa landað eftir tvo
daga á veiðum.
Úr Grindavík róa sex bátar á
miðin við Eldey. Að sögn
Sverris Vilbergssonar. vigtar-
manns, hafa þeir verið að landa
5-8 tonnum eftir tveggja daga
veiðiferðir.
„Hér brosa rækjusjómenn út
að eyrum, enda virðist framtíðin
vera björt livað varðar rækju-
veiðina," sagði Sverrir.
Rækjubátarnir hafa hver um
sig 90 tonna kvóta og nokkrir
þeirra eru hálfnaðir með kvót-
ann.
1 Sandgerði Ianda þrír rækju-
bátar. 1 samantekt fyrir síðasta
hálfan mánuð kemur fram að
Guðfinnur KE landaði 33.8
tonnum eftir 5 róðra, Þorsteinn
KE landaði 18,4 tonnum eftir 4
róðra og Svanur KE var með
15,8 tonn í fjórum róðrum. Karl
Einarsson vigtarmaður í Sand-
gerði sagði í samtali við blaða-
mann að hann haft verið að tala
við skipstjórann á einuni rækju-
bátnum um miðjan dag á þriðju-
dag. Þá var hann að hífa trollið
eftir að hafa dregið í skamman
tíma. 800 kfló komu úr því hali.
Eldey fékk
framlengingu
Útgerðarfélagið Eldey hf.
fékk framlengingu á greiðslu-
stöðvun fyrirtækisins til 7. sept-
ember nk. Úrskurður þess efnis
var kveðinn upp í Hérðasdómi
Reykjaness á þriðjudagsmorgun.
A hluthafafundi í Eldey á
mánudag var samþykkt að færa
hlutafé niður í 10% eða rúmar 9
milljónir. Jafnframt var stjórn
veitt heimild til að auka hlutafé í
40 milljónir.
Bílstjórum VL
sagt upp
Átján af 22 bílstjórum Varn-
arliðsins hefur verið sagt upp
störfum. Bílstjórarnir hafa ann-
ast skólaakstur og að koma
starfsmönnum á milli staða.
Varnarliðið hugar að því að
bjóða út aksturinn. Bílstjórarnir
hafa hug á að bjóða í verkið.
Rússaþotan í
viðgerð
Rússneska þotan sem verið
hefur biluð á Keflavíkurflugvelli
frá því í febrúar er nú komin í
viðgerð í flugskýli Flugleiða.
Skipta þarf um einn mótor og
gera við tvo aðra. Flugvélin er
innréttuð sem glæsifbúð eins og
greint var frá í Víkurfréttum í
vetur. Viðgerð tekur um viku
tíma.
Stolið úr
hesthúsi
Tilkynnt var um innbrot og
þjófnað úr hesthúsi við Faxa-
grund 10 á föstudaginn. Þremur
hnökkum og fjórum beislum
hafði verið stolið úr hesthúsinu.
Þeir sem einhverjar upplýsingar
geta gefið um grunsamlegar
mannaferðir vinsamlegasl liafi
samband við lögregluna.