Víkurfréttir - 30.06.1994, Side 6
30. JUNI 1994
VÍKURFnÉTTIH
Stærsta fretta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjunt
• F R E T T I R
Útgefandi: Víkurfréttir hf.
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717,
15717. Box 125,230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. - Ritstjóri og
ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-33717. - Prétta-
stjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. 27064, bílas. 985-42917.
- Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir - Upplag: 6400 eintök
sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Préttaþjónusta fyrir
Stöð 2 og Bylgjuna. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
- Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt
nema heimildar sé getið.
Umbrot, filmuvinna og prentun: Grágás hf., Keflavík
Það er komið sumar
Það er komið sumar. Fólk keppist við að nýta hvern einasta
sólarglampa og það sem af er, getum við ekki annað en verið
ánægð með veðurguðina. Það má greinilega sjá á gróðrinum
sem vex vel. Grænar hendur eru um allt í görðum hér og þar
og bæjarbúar taka óspart til hendinni. Ohætt er að segja að
fegrun og snyrting við hús og torg hafi tekið stakkaskiptum
á undanförnum árunt, bæði við hýbýli fólks og svo hjá
stofnunumog bæjarfélögum. Þaðer vel til þess fundiðaðnýta
atvinnuátak sveitarfélaganna til fegrunarframkvæmda. Það
hefur oft verið sagt að innkoman í Njarðvík t.d. væri ekki
beint til að hvetja ferðafólk á svæðið. Þar hefur orðið gjör-
breyting á til batnaðar og víða annars staðar á Suðurnesjum.
Fegrunarframkvæmdir opinberra aðila hljóta að hvetja íbúa
svæðisins til dáða og útkoman getur ekki orðið önnur en
góð.
Suðumesjomaraþon
Næstkomandi sunnudag fer fram fyrsta maraþonið á Suð-
urnesjum. Von er á mörg hundruð ef ekki þúsund manns.
Framkvæmdaaðilar hafa lagt mikla vinnu í undirbúning og
vonandi tekst vel til og þetta verði árlegur viðburður í fram-
tíðinni. Skokk og hlaup er ódýr og góð heilsubót og hefur
orðið mikill vaxtabroddur í þessari tegund íþróttar meðal al-
mennings. Það hefur jú oft verið sagt að hreyfing sé holl og
nauðsynleg og nú á tímum heilsuræktar er það vel til fundið
að efna til Suðurnesjamaraþons, sem ekki aðeins getur virkað
sem hvatning fyrir fjölda fólks, heldur og verið í leiðinni góð
auglýsing fyrir svæðið.
Páll Ketilsson
Reykjtmes
Á þessu ári hefur Ferðamálaráð
og Samgönguráðuneytið í sam-
vinnu við öflug fyrirtæki hleypt
af stað mikilli auglýsingaherferð
og hvatt Islendinga til að ferðast
um eigið land undir kjörorðinu
„Island, sækjurn það heim !“.
Sömu aðilar hvöttu einnig sveit-
arfélög á landinu og ferðamála-
samtök að kynna átakið heima í
héraði og taka þátt í átakinu auk
þess sem einstökum ferðaaðilum
hefur verið boðið að auglýsa sig
undir kjörorðinu og fá til þess
teikningar sem hentuðu hverjum
og einum. Eitthvað hefur þetta
farið fyrir ofan garð og neðan hér
á Reykjanesskaganum og því
fagnaði ritstjóri Víkurfrétta því
þegar ég bauð honum að skoða
náttúruperlur á Reykjanesi í máli
og myndum fyrir blaðið, lesend-
Afmæli
Elsku Stebbi minn!
Til hamingju með þrí-
tugsafmælið þitt þann 28. júní.
Þín Solla og Snœfí.
Eins og hér sést er Inga blind-
full og sjúskuð en hér eftir
breyttist það. Bílprófið er í
vændum 3. júlí. Hún tekur á móti
flöskum og bíllyklum á laugar-
daginn.
Dine venner...not
UTB0Ð
Almannavarnanefnd Suðurnesja óskar eftir tilboðum í verkið:
HRINGBRAUT 125, KEFLAVÍK
VIÐBYGGING RAFSTÖÐVAR
Verkið felst í uppsteypu og fullnaðar frágangi á 35 m2
viðbyggingu við Hringbraut 125.
Verkinu skal vera lokið 31. október 1994.
Útboðsgögn eru til afhendingar hjáTækniþjónustu S.Á.,
Hafnargötu 37A frá og með föstudeginum 1. júlí 1994 og
verða seld á kr. 2.500.-
Tilboð verða opnuð að Hringbraut 125, Keflavík
þriðjudaginn 12. júIí 1994 kl. 14:00.
t
- sækjum
það heim!
um til ánægju og einhvers fróð-
leiks um hve heimkynni okkar eru
mikil útivistarparadís.
I byrjun langar ntig að vitna í
gagnmerkt rit sem heitir Suður
með sjó, leiðsögn um Suðurnes,
sem Rótarýklúbbur Keflavíkur
gaf út 1988 og Jón Böðvarsson
tók saman, en þar segir hann í
eftirmála: „Til skamms tíma hafa
Suðurnesjamenn lítt hirt um að
kynna sér heimaslóðir suður með
sjó enda sú skoðun ríkt að færra
sé þar markvert en í öðrum
landshlutum. Ferðalög um svæð-
ið voru sjaldgæf þar til fyrir fáum
árum. Tímamót í ferðamálum
urðu hér 1984. Þá kom út og var
borinn í hvert hús veglegur bæk-
lingur á vegum Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum: Tímarit
um Suðurnes. Einnig gaf SSS út
ríkulega myndskreytt Suður-
nesjakort og var það endurútget'ið
skömmu síðar með enskum texta.
Árbók Ferðafélags Islands 1984
fjallar einnig um Suðurnes. þarer
gagnmerkur fróðleikur um jarð-
fræði, gróður og dýralíf í lands-
hluta þessum. Vorið 1985 stóðu
SSS, Fjölbrautarskóli Suðurnesja
og textahöfundur fyrir svæðis-
leiðsögumannanámskeiði, hinu
fyrsta sinnar tegundar hérlendis.
Ferðamálasamtök Suðurnesja
hafa starfað síðan 1985 og 1986
vann Náttúrufræðistofnun ís-
lands skýrslu um náttúrufar,
minjar og landnýtingu fyrir Stað-
arvalsnefnd Iðnaðarráðuneytis-
ins. Var hún prentuð. Allt er þetta
góðra gjalda vert. En..... Bæk-
lingar og kort SSS eru nú fremur
fáséðir gripir, árbók FI er hér lítt
kunn því útbreiðsla hennar er að
mestu bundin við félagsmenn og
skýrsla Náttúrufræðistofnunar er
ekki til sölu á almennum markaði.
Full þörf er því á nýju upp-
lýsingariti um Suðurnes". Þetta
sagði Jón Böðvarsson 1988 þegar
þetta myndarlega rit kom út. en
það var síðan endurprentað 1991
og fæst enn í búðum. Síðan þá er
teljandi á fingrum annarar handar
þau fáu dæmi sem hægt er að kulla
upplýsingarit fyrir ferðamenn,
innlenda sem erlenda, um Suð-
umesin og Reykjanesskagann. Til
að hefja þessa kynningu á nátt-
úruperlum á Reykjanesi liggur
beinast við að leggja leið sína upp
í Reykjanesfólkvang og kynnast
upphafi hans og tilurð. Reykja-
nesfólkvangur var stofnaður með
reglugerð árið 1975, og stóðu að
stofnuninni eftirfarandi sveit-
arfélög: Garðabær. Grindavík,
Hafnarfjörður, Kellavfk, Kópa-
vogur. Njarðvík, Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Selvogur. en síðar
bættust fjögur önnur sveitarfélög
við: Vogar, Garður, Sandgerði og
Hafnir. Fólkvangurinn er um 300
ferkm. að stærð, langstærsta frið-
lýsta svæði sinnar tegundar.
Svæðið nær frá Vesturhálsi austur
að sýslumörkum, til sjávar að
sunnan, en í norðri tengist það
tveimur öðrum útivistarsvæðum,
Bláfjallafólkvangi (84 ferkm.) og
Heiðmörk (25 ferkm.). Landslag
innan fólkvangsins er afar tjöl-
breytt. og þar er meiri gróður en
víðast hvar á Reykjanesskaga.
Landið er því kjörið til útivistar
og náttúruskoðunar.
Kristinn Benediktsson.
I'ramhald í nœsta hlaiti.
REIÐNÁMSKEIÐ
á vegum Hestamannafélagsins
Mána og Suðurnesjabæjar fyrir
börn, unglinga og fullorðna hefjast
5. júlí.
Leiðbeinendur eru Snorri Ólason
og Þóra Brynjarsdóttir.
Skráning og upplýsingará kvöldin
í símum 12030 Snorri og 15631
Þóra.