Víkurfréttir - 09.11.1995, Blaðsíða 15
VflWPFRBTTIR
9. NÓVEMBER 1995
15
DHL-deildin í körfu:
Toppslagur í Hafnarfirði kvöld
-Suðumesjaliðin á toppi beggja riðla
Topplið A-riðils í DHL-
deildinni í körfuknattleik,
Haukar og Keflavík eigast við í
Hafnarfirði í kvöld kl. 20.
Bæði liðin hafa sigrað í níu
viðureignum en tapað tveimur
leikjum. Njarðvfkingar koma
fast á liæla þessara liða, með
átta sigra og þrjú töp. í B-riðli
eru Grindvíkingar á toppnum
með 14 stig. hafa sigraði í sjö
leikjum en tapað fjórum. í síð-
ustu umferð sl. sunnudag, sigr-
uðu öll Suðumesjaliðin.
Góður sigur Keflavíkur
Keflvfkingar innbyrtu góðan
sigur í Vesturbænum á þjálf-
aralausum KR-ingum en þjálf-
arastarfi Axels Nikulássonar
lauk í síðustu viku hjá þeim
röndóttu. LA Burns og Guðjón
Skúlason voru í miklum ham
gegn KR og skoruðu saman 52
stig í 88-73 sigri Keflavíkur.
Sigur Keflavfkur var öruggur
frá upphafsmínútum. Þeir náðu
forystu í byrjun leiks og héldu
henni út leikinn. Stigahæstur
KR-inga var Jonathan Bow
með 28 stig en LA skoraði 28
hjá Keflavík og Guðjón 24.
Skagasigur hjá UMFN
Njarðvíkingar sigruðu
Skagamenn á Akranesi. Það
var svipað uppi á teningnum
hjá þeim og hjá Keflvíkingum.
♦ Keflvíkiiignr em með nýjan stíl á „fögnum" sínum. Svona liafa
þeir „peppað" upp mannskapinn í byrjun leiks og svo fagnað í lok
lians.
Þeir voru yfir frá fyrstu mín-
útu til hinnar síðustu. Lokatöl-
ur urðu 91-117 eftir að staðan
í hálfleik hafði verið 42-50.
Stigahæstir hjá UMFN voru
Teitur Örlygsson með 30 stig,
Ronday með 21 og Kristinn
með 20. Milton Bell skoraði
flest stig IA eða 31 samtals.
Settust á stólana
Grindvíkingar settust hrein-
lega á Stólana frá Sauðárkróki
í viðureign liðanna í Grindavík
sl. sunnudag. Heimamenn
unnu öruggan sigur 97-68 og
sáu Stólarnir aldrei til sólar í
þessum leik.
Stigahæstir Grindvíkinga
voru Hermann Myers með 24
stig, Helgi Jónas skoraði 15 og
þeir Guðmundur Braga og
Hjörtur Harðarson voru með
13 stig hvor. Stigahæstur Stól-
anna var Torrey með 34 stig.
ISLAIUDSBANKISTYÐUR UMFN
Islandsbanki og Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hafa gert með sér samning
þess efnis að íslandsbanki er aðal styrktaraðili úrvalsdeildarliðs UMR4 á þessu
keppnistímabili. Bankinn er með auglýsingar á keppnisbúningum liðsins og
sagði Soffa Ólafsdóttir í íslandsbanka að forráðamenn bankans væru ánægðir
með samninginn við UMFN, ekki síst t' ljósi þess að félagið er t' fremstu röð og
hafi alltaf verið. Njarðvíkingar eru sem kunnugt er núverandi Islandsmeistarar í
körfuknattleik karla og eiu nú sem endranær í toppbarattunni. A myndinni að
ofan má sjá þau Soffíu Ólafsdóttur og Eink Alexandersson frá íslandsbanka,
Ólaf Eyjólfsson, form. Körfknattleiksdeildar UMFN og liðsmenn ásamt þjálf-
ara. VF-mynd/Oddgeir.
Aðalfundur
Knattspyrnudómarafélags Suðurnesja
verður haldin 16. nóvember kl. 20:30 í
✓
Iþróttarvallarhúsinu við Hringbraut.
Kaffi og snittur, mætið vel.
Stjórnin
TOLVUNAMSKEIÐ
■ I járfestu í eigin framtíð!
• Mánudaginn 13. nóv. kl. 19:00 hefst .
námskeið fyrir byrjendur. Nokkur sæti laus.
• Mánudaginn 20. nóv. kl. 19:00 hefst
námskeið í Excel 5,0 töflureikni. Örfá sæti laus.
• Mánudaginn 27. nóv. kl. 19:00 hefst
námskeið í Word 6.0 ritvinnslu. Nokkur sæti laus.
tölvuskóli
suðurnesja
INNRITUN STENDUR YFIR I SIMA 421 4025
OG í SKÓLANUM AD HAFNARGÖTU 35
tölvuskóli
suðurnesja
HAFNARGÖTU 35 - KEFLAVÍK
TÖLVUNÁMi ER LYKIUJNN
AÐ IMMWmi