Víkurfréttir - 14.11.1996, Page 7
Enn flykkjast íslendingar í klúbbana á Keflavíkurílugvelli:
Margfalt lægra vín- og
bjórverð helsta ástæðan
LANCASTER
snyrtivörukynnincf
föstudag frá M. 13-17.
Ester Uynnir nýja Uremlínu
frá Lancaster.
//a/wa/ .g’ö/M 5 7-4 Sími -42 J SJS//
„Það er erfitt að keppa við þerta
og í rauninni ekki hægt“, sagði
Jón M. Harðarson veitingamaður
í Stapanum um samkeppnina við
klúbbana á Keflavíkurflugvelli
en þar hafa margir íslenskir
starfsmannahópar haldið árs-
hátíðir og skemmtanir á undan-
fömum ámm.
Mál tengd klúbbum á Kefla-
víkurflugvelii eru ekki ný af
nálinni. Samkeppnin við ódýrar
vínveitingar á vellinum hefur í
áranna rás verið erfið þó svo
aðsókn Suðurnesjantanna í
kanaklúbbana hafi minnkað
mikið á undanfömum áratugum.
„Það tapa allir aðilar tengdum
veitingarekstri á Suðumesjum í
þessari samkeppni. Starfsfólk
verður af atvinnu og margir
rekstraraðilar missa viðskipti.
Peningamir enda í kassa klúbb-
ana á Keflavíkurflugvelli", sagði
Jón M. Harðarson í Stapanum
sem hefur sett upp mikla sýningu
sem heitir Keflavíkumætur og
sýnt hana í Stapanum að undan-
fömu og einnig síðastliðinn vetur
á skemmtistaðnum Strikinu.
Fyrir síðustu jól héldu starfs-
menn Public works jólahátíð í
Yfirmannaklúbbnum á Kefla-
víkurflugvelli. Þar mættu tæp-
lega 300 manns í mat og drykk.
Fyrir nokkrum dögum var gerð
skoðanakönnun innan vinnu-
staðarins um það hvoit fólk hefði
áhuga á að fara þangað eða á
Keflavíkumætur í Stapanum.
Um 70 manns vildu fara í Stapa-
ann en á milli 50 og 60 í
„Offann'*. Einn starfsmanna
Public works sagði í samtali við
blaðið að þetta hefði ekki verið
talin næg þátttaka því hópurinn
haiði áhuga á að fá Stapann út af
fyrir sig og þá hefði þurft nokkra
tugi manna í viðbót. Og ekki
þótti nægur áhugi til að fara í
Yfirmannaklúbbinn. „Það var
þess vegna ákveðið að fresta
málinu" sagði þessi starfsmaður
Public works.
Starfsfólk í Stapanum hefur lagt
fram kæru til vamarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins
vegna skemmtanahalds Is-
lendinga á Vellinum.
Samkvæmt áreiðanlegum heint-
ildum blaðsins eru á næstunni
margar „íslenskar" skemmtanir
bókaðar í Yfirmannaklúbbnum á
vellinum, „The officers club“.
Einnig hafa margar skemmtanir
á vegum íslendinga verið í
Rockville sem er rétt utan við
Sandgerði.
Stærsti þátturinn sem gerir
samkeppni veitinga- og
skemmtistaða á Suðumesjum við
vallarklúbba erfiða eru ódýrar
vínveitingar. Bjórinn kostar um
70 kr. og rauðvínsflasaka þrisvar
til fjórum sinnum minna en á
íslenskum veitingahúsum.
Bláköld staðreynd er hins vegar
sú að rekstur vamarliðsklúbba
hefur ekki gengið nenta gegn því
að hleypa Islendingum þar inn.
íslenskir „dollarar" hafa haldið
rekstri þeirra gangandi.
* H I » »• f
- oomOw hutfOýtí!
Kjarna - Hafnargötu 57
Sími 42 V-7099
E/NN/G MIKIÐ ÚRVAL AF HÖNSKUM
ibil •“*
Nýtt korW«n’‘’B" {
Hafnargötu 35 - sími 421 7 230
V íkurfréttir
7