Víkurfréttir - 14.11.1996, Síða 8
Nýtt heimilisfang:Víkurfréttir, Sparisjóðshúsinu, Grundarvegi 23,2. hæö, 260 Njarðvík
Brussel hefur biSlaS til Margrétar Soffíu Björnsdóttur. Dagný Gísladóttir ræddi viS Sossu:
á heimaslóðum
yndlistarkonan Margrét Soffía
Bjömsdóttir, eða Sossa eins og flestir
þekkja hana flutti fyrir nokkm aftur á
heimaslóðir en hún er borinn og
bamfæddur Keflvíkingur.
Sossa sýndi nýverið verk sín í Galleri
Sct. Gertmd í Kaupmannahöfn þar
sem hún fékk mjög góðar viðtökur.
„Eg var með litla sýningu í þessu
galleni í fýrra og þeim leist það vel á
hana að þeir buðu mér aftur.
Viðtökumar vom mjög góðar og það
voru margir sem sóttu hana, þar á
meðal Islendingar sem búa í
Danmörku. Ég hafði líka gaman af
því að eitt par lét sig hafa það að
koma alla leiðina frá íslandi" segir
Sossa.
Brussel hefur líka biðlað til hennar
um sýningarhald og er Sossa nú í
samningaviðræðum við Belga sem er
mikill áhugamaður um list og starfar
hjá Evrópubandalaginu.
„Svo ætla ég að vera með sýningu í
Keflavík f jólamánuðinum, hugsan-
lega í Bílakringlunni í Grófinni og í
versluninni Persónu. Það fer eftir því
hvað ég verð dugleg“, segir Sossa.
Sossa flutti frá Keflavík á tví-
tugsaldrinum til þess að nema við
Myndlista- og handíðaskóla Islands.
Hún lét ekki staðar numið þar og lauk
nárni frá grafíkdeild Skolen for
Bmgskunst í Kaupmannahöfn og
lauk síðan Masters gráðu í myndlist
frá School of the Museum of Fine
Art/Tufts University í Boston í
Bandaríkjunum.
Vom það ekki viðbrigði að flytja aftur
heim til Keflavíkur?
„Nei í raun ekki því ég var búin að
vera víða á landinu. A Sauðárkróki í
10 ár og eitt ár á Egilstöðum fyrir
utan námið erlendis. Einu viðbrögðin
vom þau hvað ég hafði misst mikið úr
því ég þekkti allt eldra fólkið, alla
púttarana á púttvellinum við
Mánagötu þar sem ég bý en yngra
fólkið ekki eins vel. Maður þekkir
miðbæinn og gamla bæinn en ef ég
fer í nýju hverfm þá villist ég bara
fram og til baka“, segir Sossa og gerir
grín að sjálfri sér.
Keflavík hefur haft áhrif á myndheim
hennar því við heimkomuna hafa
æskuárin rifjast upp. Nú hafa því litlar
stúlkur í ýmsum leikjum fundið sér
leið á léreftið hennar Sossu frá fyrri
tímum þegar prestsdóttirin lék sér í
bænum.
Grafíkin heillaði Sossu til að byrja
með og segir hún ekki vera langt
síðan að hún fór að vinna í olíu. ,,Ég
byrjaði að vinna í olíu í Ameríku og
eftir það hef ég bara verið að mála
hvem einasta dag“, segir Sossa sem
er þekkt fyrir bjarta liti í verkum
sínum. Skyldi ástæðan vera hin
óbilandi íslenska bjartsýni?
„Ég er bara svona ákaflega jákvæð.
Ég vil að fólk gleðjist við að horfa á
myndimar mínar því nóg er um
neikvæðni umhverfis okkur. Þetta er
svona eins og að kaupa sér litríkan
blómvönd til þess að lífga upp
tilveruna þegar hún er grámygluleg
sem ég geri oft og mæli með“, segir
Sossa.
• íorslmra <*n allt!
Fyrirsœta: Helga Erla Gunnarsdóttir
Ljósmyndafyrirsœta Suöurnesja 1996
Föröun: María Rós Skúladóttir
Bakstur: Nýja bakaríiö, Hafnargötu 31
Ljósmyndun: Hilmar Bragi Bárðarson
Sossa á vinnustofu sinni en hún
sýndi nýverið verk sín í Galleri
Sct. Gertrud i Kaupmannahöfn.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Verðlækkun
KINGSDOWN
Komdu oq skoðaðu
myndband um
framlciðslu KINGS-
DOWN í verslunni
'M JÍÚIVJJIM
Einu rúmín með sama gormakerfi í efri og neðri dýnu.
Gorm á Gorm kerfið er betra.
7.000,- kr. afsi
til 17. nóv
Tjarnargötu 2 - Sími 421 3377
Betra rúm + Lægra i/erá = Betri st/efn
HgMMlslaiPiiin Suðumesjameiin koiii út
er Ásgeir Gunnarsson og á bassa
leikur Þórólfur Þórsson.
Karlakór Keflavíkur var stofnaður
1953 og hefur starfað óslitið
síðan. Karlakórinn gaf út hljóm-
plötu árið 1981 og hefur hann
sungið víða um land sem og
erlendis, enda alltaf verið á
stefnuskrá hans að ferðast með
söng sinn.
Fjöldi kórfélaga er nú 41. Ein-
söngvarar sem allir koma úr
röðum kórfélaga eru Eiður Örn
Hrafnsson, Guðmundur Haukur
Þórðarson, Steinn Erlingsson og
Þórður Guðmundsson.
Meðal laga á diskinum má nefna
Suðumesjamenn, þú kysstir mig,
Litla skáld, og Seljadalsrósin.
Upptöku stjómaði Sigurður Rúnar
Jónsson og fór hljóðritun fram í
Grindavíkurkirkju.
I tilefni útgáfunnar vill Karlakór
Keflavíkur sérstaklega þakka
Hitaveitu Suðumesja fyrir veittan
stuðning í gegnum árin sem og
áskriftaraðilum og Reykjanesbæ.
Karlakór Keflavíkur gefur nú út
sinn fyrsta hljómdisk sem nefndur
hefur verið Suðurnesjamenn.
Fögnuðu Karlakórsmenn útgáf-
unni við hátíðlega athöfn í sal KK
hússins sl. föstudag þar sem þeir
sungu m.a. fyrir gesti sína.
Á hljómdiskinum syngur Karla-
kór Keflavíkur lög eftir íslenska
og erlenda höfunda, undir stjóm
Vilbergs Viggóssonar og við
undirleik Ágotu Joó, en þau hafa
starfað með kórnum síðastliðin
þrjú ár. Undirleikari á harmoniku
8
Víkurfréttir
Víkurfréttir
9