Víkurfréttir - 21.11.1996, Blaðsíða 19
011 Suðupnesjaliöin
í 4ra liða úrslitum
Leugjubikarsins
Það verður sannkölluð körfuknatt-
leiksveisla í Laugardalshöllinni {
kvöld en þá fara frani fjögurra liða
úrslit í Lengjubikarnum. Öll
Suðumesjaliðin verða í eldlínunni
því Grindvíkingar mæta KR-
ingum kl. 19.00 og Keflavík og
Njarðvík mætast í nágrannaslag
strax á eftir eða kl. 21.00.
Búast má við hörkuviðureignum.
Keflvíkingar hafa unnið síðustu
tvo leiki sína með miklum yfir-
burðum og hafa skorað vel yfir
100 stig í þeim báðum. Það má því
reikna með að Njarðvíkingar, sem
fengu skell gegn Tindastóli á sun-
nudaginn og ættu því að vera vel
jarðtengdir, reyni að leggja allt
kapp á að stöðva skyttur
Keflvíkinga ásamt Damon
Johnson sem hefur verið að spila
mjög vel fyrir Keflavík að undan-
fömu. Grindvíkingar em án efa vel
stemmdir þrátt fyrir að
Héraðsdómur Vestfjarða hafi
dæmt Isfirðingum sigur í viður-
eign liðanna á ísafirði um daginn,
en þá hljóp liðstjóri Grindavíkur í
skarðið og lék með liðinu því
heimingur þess varð eftir á
Reykjavíkurflugvelli eftir að hafa
niisst af flugvélinni. Síðar kom í
ljós að liðstjórinn haföi leikið með
liði Golfklúbbs Grindavíkur í
annarri deild og var því ólöglegur
að mati Isfirðinga. Grindvíkingar
hafa áfrýjað dómnum til íþrót-
tadómsstóls KKI.
VF hafði samband við fyrrver-
andi leikmann og þjálfara
Keflavíkur, Jón Kr. Gfslason, sem
nú leikur með Grindavík og
Hrannar Hólm þjálfara Njarðvíkur
til að spá í leikina í kvöld. Báðir
vom þeir ákveðnir í að vinna sína
leiki en sögðu jafnframt að það
yrði ekki auðvelt, enda andstæðin-
gamir erfiðir og úrslit myndu sen-
nilega ráðast á síðustu sekún-
dunum. Að sögn Hrannars hafa
Njarðvfldngar í hyggju að stöðva
skyttur Keflvíkinga og reyna að
nota styrkleika sinn undir körfun-
ni. Aðspurður um leikinn gegn
Tindastóli á sunnudaginn sagði
hann að þeir hafi sofið á veiðinum
og vaknað of seint. „Við leikum
örugglega ekki svona gegn
Keflvíkingum því ef við gerum
það getum við bókað 30 stiga tap",
sagði Hrannar sem hallaðist frekar
að sigri Grindavíkur gegn KR. Þó
myndi Jonathan Bow ráða þar
miklu um ef hann gerir eins og
hann er frægur fyrir og á toppleik í
úrslitum. Jón Kr. óttast einnig að
Bow muni gera rósir í kvöld en
þeir væru tilbúnir að mæta því.
Hann sagði einnig að bæði Marel
Guðlaugsson, Grindavík og Her-
mann Hauksson hjá KR væru
meiddir og óvíst hvort þeir myndu
verða með og gæti það líka sett
strik í reikninginn. Jón sagði að
það yrði toppurinn að fá sína
gömlu félaga í Keflavík í úrslila-
leik kæmust þeir alla leið. „Það er
ntikill léttir að mæta í leik einungis
sem leikmaður og laus viö allar
þjálfaraáhyggjur”, sagði Jón.
Ókeypis sætaferðir verða í höllina
frá íþróttahúsi Keflavíkur kl. 17.50
og 19.30 og frá Iþróttamiðstöð
Njarðvíkur kl. 18.00 og 19.40.
Sætaferð frá Grindavík verður frá
Festi kl. 17.30 og kostar kr. 600,-
báðar leiðir.
Ifinnl) fréttir Hvað gerist næst? I kvöld veröur skemmtikvöld á sal. Kósý-kaffihúsakvöld. Þar mun ljósmyndaklúbburinn vera sýningu myndlistarklúbburinn verður með sýningu, píanóleikari verður á svæðinu og einnig verða lesin ljóð, gjömingar fluttir og fullt af óvæntum atriðum verður stungið inn í dagskránna. Þama verður ekki síðri stemming en á fyrri skemmtikvöldum vetrarins. Frítt inn og kaffi t' boði Kaffitárs og mun Maskulinium-Café klúbburinn sjá um uppáhellingu enda em þeir fagmenn í kaffi. Hljóðneminn verður 29. nóvember og em keppendur og hljómsveitin Moðfisk þegar farin að æfa sig fyrir æsispennandi keppni. Seinna um kvöldið verður svo ball, þetla mun allt fara fram í Stapanum. Nú standa yfir leiksýningar hjá leikfélagi skólans Vox Arena, þau sýna verkið Kaffi Kaos, sem samanstendur af 4 einþáttungum og stuttum kynningum milli þeirra. Frábært verk sem enginn ætti að láta frani hjá sér fara, hvorki F.S.-ingar né aðrir landsmenn. Kynnið ykkur sýnangardagana og skellið ykkur. Skemmtikvöld á Sal F.S. N.F.S. hélt tvisvar í síðustu viku skemmtikvöid á sal. Það lyrra var karókí-kvöld þar sem félagar úr Maskulinum-Café kepptu við leiktuana úr Vox Arena./fslitin urðu sú að Mítskulinium-Café sigraði og átti einnig söngvara kvöidsins. Tryggva Þór. Eftir keppnina stigu nemendur á stökk og sungu í kerfmu, sumir af nteiri ánægju en hæfileikum. Frítt var inn og kaffi í boði Kaffitárs. Þetta kvöld var gríðarlega vel heppnað og skemmtu allir sér mjög vel. Síðasta fimmtudag var skemmtunin Flödeskum endurvakin eftir 15 ára svefn. Þar skemmta kennarar og nemendur sér í sátt og sam- lyndi, enginn minnist á verkefni sem ekki hafa skilað sér. Þar komu fram kennara-hljómsveit, Maskulinium-Café hljómsveit og Stjómin tróð upp (stjóm NFS). Stuttmyndir voiu sýndar og haldin var létt ræðukeppni milli kennara og nemenda, þar sem nemendur bám nauman sigur. Þar var einnig frítt inn og útskriftar-aðallinn sá um kaffisölu og vöfflubakstur.
ÆS Aðal- 'JSfcj: fundur Hestamannafélagsins Mána verður haldinn í félagsheimilinu á Mánagrund (uppi), þriðjudaginn 26. nóvember kl. 20:30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Kaffiveitingar. Stjórnin.
ATVINNA Óskum eftir að ráða svæðis- stjóra í matvörudeild Hagkaups í Njarðvík. Leitum af starfsmanni sem er eldri en 25 ára og er reiðubúinn að takast á við krefjandi starf. Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum n.k. mánudag frá kl. 10-12. HAGKAUP Njarövík
Módel óskast!
Spennandi verkefni framundan fyrir
áhugasöm módel. Sendu mynd og
upplýsingar til Víkurfrétta efþú vilt
vera með...
Víkuríréttir eru til húsa á 2. hæð
Sparisjóðsins íNjarðvík, Grundarvegi 23.
AÐAL-
/ G FUNDUR
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags
Keflavíkur og Njarðvíkur verður haldinn
mánudaginn
25. nóvember 1996 í Ásbergi,
Hafnargötu 26.
Á dagskrá eru almenn
aðalfundarstörf.
Fundurinn hefst kl. 20:30.
Stjórn ABKN.
Framleiðum og prentum;
Úti- og innifána, bíirúðubúninga fyrir íþróttafélög,
tölvuskorna límstafi á bíla, báta og glugga,
límmiða sem þola flest efni.
Framleiðum; götuauglýsingaborða, úti- og inniskilti,
skreytum glugga með auglýsingum.
Framleiðum og Offset-fjölritum;
reikninga, bréfsefni, umslög og dreifibréf.
Silkiprentum; á boli, vinnufatnað og íþróttaföt.
Útvegum ódýra T-boli efum magn eraðræða.
Prentum; plaköt sem er hægt að líma á bíla.
Gæða vinna, gerum tilboð og hugmyndir þér að
kostnaðarlausu. Hönnun á staðnum.
Geymið auglýsinguna.
Golfklúbbur Suðurnesja:
Aðal-
fundur
Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja
verður haldinn laugardaginn
30. nóvember kl. 14:00
í Golfskálanum í Leiru.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ka ffi veitingar.
Stjórnin.
V íkurfréttir