Víkurfréttir - 26.06.1997, Blaðsíða 8
Ny umferðarljos a Hringbraut
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar hefur ákveðið að setja upp umferð-
arljós á gatnamót Hringbrautar og Skólavegar en þar fara mörg
skólaböm um og umferð þung.
Afturkallar lóðarúthlutanir
til Húsagerðarinnar hf.
Byggingarnefnd hefur aftur-
kallað lóðarúthlutanir lil
Húsagerðarinnar hf. á tveimur
lóðum en fyrirtækið hefur
fengið frest til haustsins til að
hefja framkvæmdir við lóðina
Aðalgötu 1-3. Lóðarúthlutanir á
Norðurvöllum 61-63 sem veitt
var árið 1995 og Hafnargötu
51-53 sem veitt var 1993 hafa
verið felldar úr gildi.
Frídur hópur málara á
Keflavíkurflugvelli í
nýjum málningargalla
frá Dropanum. Að neðan
erþað síðan kaffi-
hlaðboðið sem boðið
var upp á og þar tóku
menn vel til matar síns.
r:
Flottir málarar á Keflavíkurflugvelli!
Þeir eru heldur betur flottir í tauinu málararnir hjá Málaraverktökum
Keflavíkur. Sl. föstudag fengu þeir allir nýjan málaragalla frá Dropanum í
Keflavík. Málaraverktakar Keflavíkur em stór viðskiptaaðili Dropans og í
tilefni af 40 ára afmæli Keflavíkurverktaka á dögunum var ákveðið að
klæða málarana upp. Nú em allir málaramir í buxum og peysum merktum
Dropanunt og Málningu hf.
Málaramir fengu meira en málningargalla til að klæðast, því þeim var jafn-
framt boðið í morgunkaffi. Myndasmiður blaðsins, Hilmar Bragi, var
snemma á fótum sl. föstudag og tók þá meðfylgjandi myndir.
♦ Verðlaunahafar í Guinot mótinu ásamt umboðsaðilum Guinot í Reykjavík og Keflavík.
Opna Guinot kvennamótið í golfi haldið í Leiru:
FORMANNSFRÚIN í FÍNU FORMI
Formannsfrúin í Golfklúbbi
Suðurnesja, Hafdís Gunn-
laugsdóttir, sigraði með forgjöf
í opna Guinot kvennamótinu í
golfi sem fram fór á
Hólmsvelli í Leiru 14. júní.
Hafdís lék á 64 höggum og
fékk að launum glæsilegan
gjafapakka frá Guinot snyrti-
vöruframleiðandanum sem og
allir verðlaunahafar í mótinu. I
2.-3. sæti urðu þær Ásgerður
Sverrisdóttir, GR, og Magda-
lena S. Þórisdóttir úr GS á 67
höggum.
Án forgjafar bitust þær Þórdís
Geirsdóttir úr GK og Ásgerður
Sverrisdóttir um sigurinn. Þær
léku báðar listavel eða á 75
höggum en Ásgerður hafði
betur í bráðabana. Þriðja án
forgjafar varð Magdalena S.
Þórisdóttir á 83 höggum.
Samhliða mótinu fór fram
kynning á hinum kunnu frön-
sku Guinot snyrtivömnum sem
golfkonurnar kunnu vel að
meta.
♦ Verðlaunin í opna Guinot kvenna-
mótinu voru glæsileg eins og sjá má.
*
»■*
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRIN6INN
SÍMI898 ZZZZ
VEL KLÆDDIR MÁLARAR
8
V íkurfréttir