Morgunblaðið - 25.04.2016, Page 1
HANDBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar unnu
frábæran sigur gegn Spánarmeist-
urum Barcelona, 29:24, í fyrri leik lið-
anna í átta liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í handknattleik í gær.
Það var boðið upp á frábæran leik í
Sparkassen-höllinni þar sem Kiel
hafði undirtökin nær allan tímann.
Staðan eftir fyrri hálfleikinn var
16:12, Kiel í hag, en strákarnir hans
Alfreðs léku frábæran varnarleik
með danska landsliðsmarkvörðinn
Niklas Landin í fantaformi á milli
stanganna. Dominik Klein var
markahæstur í liði Kiel með 9 mörk,
Johan Canellas skoraði 6 og Domagoj
Duvnjak var með 5. Hjá Börsungum
var Kiril Lazarov markahæstur með
6 mörk en Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði tvö mörk.
„Þessi úrslit eru eins og draumur
hafi ræst en þrátt fyrir þessa forystu
erum við enn litla liðið í þessu einvígi.
Allir sem hafa spilað í Palau Blaugr-
ana vita hvað það þýðir,“ sagði Alfreð
Gíslason eftir leikinn.
„Ég hefði aldrei hugsað mér að
vinna Barcelona með fimm marka
mun,“ sagði Landin eftir leikinn.
„Þetta var frábært kvöld, kvöld
sem við eigum allir eftir að muna
lengi eftir,“ sagði Klein eftir leikinn.
Aron Pálmarsson og samherjar
hans í ungverska liðinu Veszprém eru
í dauðafæri á að komast á Final Four-
helgina í Köln eftir sigur á útivelli
gegn Vardar frá Makedóníu, 29:26.
Aron átti frábæran leik og skoraði 7
mörk úr átta skotum en Momir Ilic
var markahæstur með 9 mörk.
Frönsku meistararnir í Paris SG
eru komnir langleiðina í undan-
úrslitin eftir átta marka útisigur gegn
HC Zagreb, 28:20. Mikkel Hansen
skoraði 9 mörk fyrir Parísarliðið og
Nikola Karabatic var með 6 en Ró-
bert Gunnarsson komst ekki á blað.
Þá skildu Flensburg og Kielce jöfn,
28:28, í Flensburg.
Þetta er eins
og draumur
hafi ræst
Frábær sigur Kiel á meisturunum
AFP
Ánægður Alfreð Gíslason var að vonum ánægður með sigur sinna manna.
MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2016
ÍÞRÓTTIR
Fótbolti Leicester City gefur ekkert eftir í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn. Leicester skellti Swansea
í gær og náði átta stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar 6
Íþróttir
mbl.is
Riyad Mahrez, leikmaður Leicester City, var í gærkvöld út-
nefndur leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni af leik-
mönnum deildarinnar. Mahrez hafði betur í baráttu gegn fé-
lögum sínum, N’Golo Kante og Jamie Vardy, sem voru
tilnefndir, sem og þeir Mesut Özil, Harry Kane og Dimitri Pa-
yet. Mahrez er fyrsti Afríkumaðurinn sem hlýtur þessa við-
urkenningu, en hann hefur farið á kostum með Leicester á
tímabilinu og skoraði í gær sitt 17. mark á leiktíðinni.
Dele Alli, miðvallarleikmaður Tottenham, var valinn besti
ungi leikmaðurinn á tímabilinu en aðrir sem voru tilnefndir
voru Harry Kane, Ross Barkley, Romelu Lukaku, Jack But-
land og Philippe Coutinho. gummih@mbl.is
Mahrez valinn bestur
Eiður Smári varð fyrir meiðslum í nára í viðureign Sarpsborgar
og Molde í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.
Eiður hóf leikinn á varamannabekknum en var skipt inn á á
25. mínútu. Hann þurfti síðan að yfirgefa völlinn á 67. mínútu
vegna meiðslanna og fer að sögn Magnúsar Agnars Magnús-
sonar, umboðsmanns Eiðs, í myndatöku í dag þar sem meiðslin
verða könnuð til hlítar. Líklega er um álagsmeiðsli að ræða hjá
Eiði, enda hefur hann spilað mikið og hefur svo sannarlega látið
að sér kveða með Molde-liðinu á tímabilinu.
Molde steinlá fyrir Sarpsborg, 4:0. Kristinn Jónsson var í
byrjunarliði Sarpsborgar en fór meiddur af velli um miðjan
seinni hálfleikinn. gummih@mbl.is
Eiður í myndatöku
Þrír Íslendingar voru á skotskónum í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær.
Hólmar Örn Eyjólfsson og Guðmundur Þórarinsson skor-
uðu sitt markið hvor fyrir meistarana í Rosenborg, sem unnu
öruggan 4:0 sigur gegn Viking og tylltu sér á toppinn. Guð-
mundur var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu og þakkaði traustið
með því að skora þriðja markið með góðu skoti. Var það hans
fyrsta á tímabilinu. Hólmar Örn skoraði fyrsta markið sem
hann skoraði með hælspyrnu.
Aron Elís Þrándarson innsiglaði stórsigur Aalesund þegar
hann skoraði sjötta mark liðsins í 6:0 sigri gegn Aroni Sig-
urðarsyni og samherjum hans í Tromsö. gummih@mbl.is
Fyrsta mark Guðmundar
Alfreð Finnbogason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, hefur leikið sem
atvinnumaður erlendis síðan árið
2011.
Alfreð hefur tvívegis komist á topp
tíu listann í kjöri íþróttamanns ársins,
2012 og 2013. Hann er uppalinn hjá
Fjölni en fór þaðan til Breiðabliks, þar
sem hann varð bikarmeistari 2009 og
Íslandsmeistari 2010. Hann samdi við
Lokeren árið 2011 og hefur síðan leikið
með Helsingborg, Heerenveen, Real
Sociedad, Olympiacos og Augsburg.
Alfreð hefur leikið 31 A-landsleik og
skorað í þeim 7 mörk.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR
DAGSINS
Ekki náði Kári Steinn Karlsson
að tryggja sér farseðilinn á
Ólympíuleikana í Ríó, en hann
náði sér ekki á strik í maraþon-
hlaupinu í Düsseldorf í gær. Kári
Steinn þurfti að hlaupa á innan
við 2,19 klukkustundum til að
vinna sér keppnisréttinn en kom í
mark á 2,24 klst. Íslandsmet hans
í maraþoni er 2.17,12 klst. Arnar
Pétursson var einnig á meðal
keppenda en náði ekki að ljúka
keppni.
gummih@mbl.is
Vonbrigði hjá
Kára Steini